Læknablaðið - 01.04.2018, Qupperneq 57
Ö L D U N G A D E I L D
LÆKNAblaðið 2018/104 217
saman um taxtann. Hæpið mun það þó vera, að
Alþingi fáist til þess að fara hana.
Þá gæti komið til mála, að semja nýjan taxta
og leggja frv. fyrir alþingi í þá átt. Móti þessu
mælir, að slíkt er nokkurt vandaverk, en auk
þess sjálfsagt, að læknastéttinni gefist kostur
á að segja álit sitt um málið, sem væntanlega
gæti orðið á almennum læknafundi 1919. Stjórn
Lf. Ísl. treystist því ekki til, að gera tillögu um
nýjan taxta, enda óvíst hvort alþingi hefði ekki
viljað láta endurskoðun taxtans fylgjast með
launamálinu.
Þriðja úrræðið er, að leita dýrtíðaruppbótar
til bráðabyrgða á borgun fyrir læknisstörf, en
halda að öðru leyti töxtunum óbreyttum. Þessa
leið taldi stjórn Lf. Ísl. óbrotnasta og fór því
fram á það við landsstjórnina, að hún legði fyrir
Alþingi frv. um hækkun á borgun fyrir öll læknis-
verk, sem nemi því er peningar hafa falliðí verði frá
1914-1918 og þá væntanlega eigi minna en 100%. Er
hér í raun og veru ekki að ræða um neina hækk-
un frá því sem var, heldur ráðstöfun til þess að
hinir afarlágu taxtar falli ekki í dýrtíðinni niður
úr öllu valdi.
Allir fulltrúar félagsins eru sammála stjórn-
inni um þetta og allir þeir héraðslæknar, sem
málið hefir verið borið undir. Er vonandi, að
alþingi bregðist vel við þessari sanngirniskröfu
læknastéttarinnar.
2. Almennan læknafund boðar stjórn Lf. Ísl.
ekki í þetta sinn, nema áskoranir berist um það
efni frá héraðslæknum. Samgöngur eru erfiðar
og dýrt að ferðast, Alþingi yrði væntanlega
lokið áður fundur kæmist á, svo hann gæti
engin áhrif haft á gerðir þess. Aftur ber brýna
nauðsyn til, að fundur komist á næsta sumar
meðan þing situr, og að læknar hafi þá gert
ákveðnar tillögur um nauðsynlegar endurbætur
á sínum högum.
3. Vikaramálið hefir verið að nokkru athugað.
Sér stjórnin fél. væntanlega þeim fyrir vikörum,
sem þess óska, áður en langt um líður.
G.H.
*Má nefna sem dæmi, að skoðun á sjúkl. í fyrsta sinni
kostar í Noregi 2-3 kr. og á nú að hækka upp í 3-5 kr., en
fyrir röska klukkutíma ferð (tæpa 10 km.) fá læknar þar
7-8 kr. og ókeypis flutning. Næturtaxti 30-50% hærri. Og
þó eru laun norsku læknanna miklu hærri, byrjunarlaun-
in 2000-5000 kr. og hækka um 200 kr.3., 6. og 9. árið eða
600 kr. alls.
Nokkrir læknar lögðu leið sína á námskeið í Egilshöll um daginn til að undir-
búa sumarið og æfa sig í flugukasti. Aðalkennari á námskeiðinu var Jónas
Magnússon sem kominn var frá Bandaríkjunum til að sýna fólki réttu hand-
brögðin, ekki með skurðhnífinn á lofti heldur með flugukaststöngina. Og virtist
hvorki kennara né nemendum leiðast þegar Læknablaðið renndi við til skoða
þessa kennslu. Hinu hundrað ára gamla Læknafélagi er ekkert óviðkomandi og
flugu kast er þar ekki undanskilið. Einn meginboðskapur kennarans var þessi:
Ekki nota alltof mikið afl við flugukast. Það eina sem þarf að gera er að sveigja
stöngina, sem síðan kastar línunni. – Myndirnar voru teknar á námskeiðinu í
Egilshöll.
Flugukast - námskeið
Jónas að kenna Gunnari Bjarna
Ragnarssyni krabbameinslækni
réttu handbrögðin og hugar-
farið.