Læknablaðið - 01.07.2018, Blaðsíða 3
Hlíðasmára 8
201 Kópavogi
sími 564 4104
Útgefandi
Læknafélag Íslands
Læknafélag Reykjavíkur
Ritstjórn
Magnús Gottfreðsson,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Elsa B. Valsdóttir
Gerður Gröndal
Hannes Hrafnkelsson
Magnús Haraldsson
Sigurbergur Kárason
Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir
Tölfræðilegur ráðgjafi
Thor Aspelund
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaður
Hávar Sigurjónsson
havar@lis.is
Auglýsingastjóri og ritari
Esther Ingólfsdóttir
esther@lis.is
Umbrot
Sævar Guðbjörnsson
saevar@lis.is
Upplag
2000
Prentun, bókband
og pökkun
Prenttækni ehf.
Vesturvör 11
200 Kópavogi
Áskrift
14.900,- m. vsk.
Lausasala
1490,- m. vsk.
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta
og geyma efni blaðsins á rafrænu formi,
svo sem á netinu. Blað þetta má eigi
afrita með neinum hætti, hvorki að hluta
né í heild, án leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru skráð-
ar (höfundar, greinarheiti og útdrættir)
í eftirtalda gagnagrunna: Medline
(National Library of Medicine), Science
Citation Index (SciSearch), Journal Cita-
tion Reports/Science Edition, Scopus
og Hirsluna, gagnagrunn Landspítala.
The scientific contents of the Icelandic
Medical Journal are indexed and
abstracted in Medline (National Library
of Medicine), Science Citation Index
(SciSearch), Journal Citation Reports/
Science Edition and Scopus.
ISSN: 0023-7213
LÆKNAblaðið 2018/104 327
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL
www.laeknabladid.is
Læknablaðið hefur fengið Önnu Þorbjörgu Þorgrímsdóttur til að velja og skrifa um kápumyndir
á 104. árgangi blaðsins í tilefni 100 ára afmælis Læknafélags Íslands. Myndirnar tengjast þeim efnum sem
eru í brennidepli afmælisgreina hvers tölublaðs.
Anna er sagnfræðingur og safnafræðingur og fyrrum stjórnandi Lækningaminjasafnsins.
… og eitt herbergi fyrir „min electriske
machine og andre instrumenter …”
skrifaði Bjarni Pálsson landlæknir árið 1771 í bréfi til
yfirvalda þar sem hann lýsir afnotum sínum af Nesstofu í
þeim tilgangi að hindra að húsinu yrði skipt á milli emb-
ætta landlæknis og lyfsala. Bjarna er greinilega annt um
rafmagnsvélina sem hann hugðist nota til að rannsaka
klínískt „electricitetens virkninger“ á epilepsie (flogaveiki)
og apoplexie (lömun). Þótt engum sögum fari af afdrifum
rannsóknarinnar efast enginn um áhuga og hæfni Bjarna
sem vísindamanns. Hitt er víst að ytri aðstæður voru mót-
drægar. Þrátt fyrir mótmælin hafði lyfsalinn fengið hálft
húsið og hvar rafmagnsvélin endaði við þær tilfæringar
vitum við ekki. Auk þess var Bjarni í annasömu starfi og
á þeim tíma fáir í landinu þess umkomnir að skilja eða
styðja vísindarannsóknir. Eins og oft vill verða var viljinn
eitt, reyndin annað.
Hins vegar er löng hefð fyrir því á Íslandi að
einstaklingar, fyrirtæki og félagasamtök styðji við heil-
brigðisstofnanir með kaupum á nauðsynlegum lækninga-
tækjum. Þó var hún óvenjulega höfðingleg gjöfin sem
barst þjóðinni frá varnarliðinu í Keflavík árið 1963 fyrir
tilstilli Lt. Commander W. R. Johns yfirlæknis. Þetta voru
ný og nýleg lækningatæki af sjúkrahúsi varnarliðsins sem
átti að endurnýja í samræmi við reglur hersins. Sigurður
Sigurðsson landlæknir og nafni hans Samúelsson pró-
fessor sögðu blaðamönnum að flest tækin ættu að geta
komið að góðum notum, ef ekki á stóru sjúkrahúsunum
þá á sjúkrahúsum úti á landi. Einhver vandkvæði væru
þó tengd notkun rafmagnstækjanna enda bæði spenna
og straumur á rafmagninu á Keflavíkurflugvelli önnur en
annars staðar á landinu.
Tækin fylltu fjóra vörubíla og Sveinn Þormóðsson tók
myndina í anddyri Landspítala þegar sjóliðar voru að losa
einn bílanna. Yfir framkvæmdinni vakir sjóliðsforinginn og
merkir við númer hvers kassa sem íslenskir verkamenn
báru inn í nýja spítalann.
Myndin er birt með leyfi Ljósmyndasafns Reykjavíkur.
Anna Þorbjörg Þorgrímsdóttir
Siðfræðiþing lækna í Reykjavík
Læknafélag Íslands var einn af stofnendum Alþjóðalæknafélagsins (World Medical Association, WMA)
árið 1947 í kjölfar seinni heimsstyrjaldarinnar og var þá haft að leiðarljósi að alþjóðasamvinna lækna
gæti gert ómetanlegt gagn fyrir heilbrigðis- og félagsmál.
Alþjóðalæknafélagið heldur nú í fyrsta skipti aðalfund sinn hér á landi í byrjun október og í tengslum
við það er haldið alþjóðlegt siðfræðiþing í Reykjavík.
Þetta eru tímamót fyrir læknasamfélagið í heild, og ekki á hverjum degi sem þvílíkt tækifæri gefst
til að hlusta á alla helstu sérfræðinga í siðfræði undir einu þaki. LÍ hvetur félagsmenn sína til að taka
þátt í þinginu.
Skráið ykkur sem allra fyrst á: medicalethicsiceland.is
* gáttatif án lokusjúkdóms.
Heimildir: 1. Patel MR, Mahaffey KW, Garg J, et al. Rivaroxaban versus warfarin in non-
valvular atrial fibrillation. N Engl J Med. 2011;365(10):883–91. 2. SmPC fyrir Xarelto.
L.
IS
.M
K
T.
01
.2
01
8.
01
56
Ja
nú
ar
2
01
8
XARD0112 – Bilbo
▼
Staðfest virkni og
öryggi hjá sjúklingum
með gáttatif* og
marga fylgisjúkdóma1
Virkni og öryggi Xarelto til varnar
heilablóðfalli voru sannreynd í
þýði þar sem 87 % sjúklinga voru
með CHADS2-skor milli 3 og 6.1
Vörn gegn heilablóðfalli
með einni töflu á dag2