Læknablaðið - 01.07.2018, Blaðsíða 50
374 LÆKNAblaðið 2018/104
Norrænir geðlæknar héldu sitt 32. þing
hér í Reykjavík 13.-16. júní. Þingið er eitt
hið stærsta sem haldið hefur verið en
þátttakendur voru á sjöunda hundrað frá
fjölmörgum löndum þó flestir væru frá
Norðurlöndunum. Þetta er í fjórða sinn
sem íslenskir geðlæknar standa fyrir
þinginu sem haldið er á þriggja ára fresti
en áður var það haldið hérlendis 1973, 1988
og 2003.
Frummælendur á þinginu voru 8 tals-
ins: Alan Tasman frá Louisianaháskóla,
Elias Eriksson frá Gautaborgarháskóla,
Jan Olav Johannesen frá háskólanum
í Stafangri, John Geddes frá Oxford-
háskóla, Kerstin Jessica Plessen frá
Kaupmannahafnarháskóla, Oliver
Howes frá Imperial College London, Olli
Kampman frá Tampereháskóla og Unnur
Valdimars- dóttir frá Háskóla Íslands.
Á þinginu voru haldnar á þriðja tug
málstofa um fjölbreytt efni og má þar
nefna rannsóknir um fíkn og fíknsjúk-
dóma, fæðingarþunglyndi, kynskipti-
aðgerðir, gervigreind og fjarlækningar,
ljósameðferð og áhrif birtu á svefn og
skammdegisþunglyndi. Mörg þessara við-
fangsefna kalla á þverfaglega nálgun fleiri
sérgreina læknisfræði en fyrirlestur Alans
Tasman minnti þátttakendur á hversu
mikilvægt er á tímum hraðfara tækniþró-
unar í heimi lífvísinda og læknisfræði að
hlusta á sjúklinginn og og gefa sér tíma
til að mynda tengsl á milli geðlæknis og
sjúklings.
Fjölmennt norrænt geðlæknaþing
Geðlæknar messuðu ekki
bara í Silfurbergi og Norð-
urljósum heldur í hverjum
krók og kima í Hörpu,
og hér er Nanna Briem
geðlæknir með lítinn hóp
þátttakenda á ráðstefnunni
í fundarherbergi á jarð-
hæðinni.
Þetta lyf er undir sérstöku eftirliti til að nýjar upplýsingar um öryggi lyfsins komist fljótt og örugglega til skila. Heilbrigðisstarfsmenn eru hvattir til að
tilkynna allar aukaverkanir sem grunur er um að tengist lyfinu. Inflectra 100 mg stofn fyrir innrennslisþykkni, lausn. Virkt efni: infliximab er blendings manna-
-músa IgGl einstofna mótefni sem er myndað í músa blendingsæxlisfrumum með DNA samrunaerfðatækni. Ábendingar: Iktsýki gefið samhliða metotrexati
- hjá fullorðnum sjúklingum með virkan sjúkdóm þegar svörun við öðrum gigtarlyfjum sem draga úr sjúkdómseinkennum (sjúkdómstemprandi gigtarlyfjum
- DMARDs), þar með talið metotrexat, hefur ekki verið fullnægjandi.- hjá fullorðnum sjúklingum með alvarlegan, virkan og versnandi sjúkdóm sem hafa
ekki áður verið meðhöndlaðir með metotrexati eða öðrum gigtarlyfjum (sjúkdómstemprandi gigtarlyfjum). Crohns sjúkdómur hjá fullorðnum, meðferð við
miðlungs virkum eða mjög virkum Crohns sjúkdómi hjá fullorðnum sjúklingum sem hafa ekki svarað þrátt fyrir fullnægjandi barkstera- og/eða ónæmisbælandi
lyfjameðferð; eða hjá sjúklingum sem ekki þola þá meðferð eða slík meðferð er ekki viðeigandi af læknisfræðilegum ástæðum. Meðferð við fistilmyndandi,
virkum Crohns sjúkdómi hjá fullorðnum sjúklingum sem hafa ekki svarað þrátt fyrir fullnægjandi hefðbundna lyfjameðferð (þar með talið sýklalyf, afrennsli
(drainage) og ónæmisbælandi lyfjameðferð). Crohns sjúkdómur hjá börnum, meðferð við alvarlegum virkum Crohns sjúkdómi hjá börnum og unglingum 6
til 17 ára sem hafa ekki svarað hefðbundinni meðferð þar með talið með barksterum, ónæmismótandi lyfjameðferð og næringarmeðferð; eða hjá sjúkling-
um sem ekki þola eða eru með frábendingar fyrir þannig meðferðum. Infliximab hefur eingöngu verið rannsakað í samsettri meðferð með hefðbundinni
ónæmisbælandi meðferð. Sáraristilbólga Inflectra er ætlað til meðferðar við miðlungs virkri eða mjög virkri sáraristilbólgu (ulcerative colitis) hjá fullorðnum
sjúklingum sem hafa ekki fengið nægilega góða svörun við hefðbundinni meðferð (að meðtöldum barksterum og 6-merkaptópúríni (6-MP) eða azatíópríni
(AZA) og hjá sjúklingum sem ekki þola þá meðferð eða slík meðferð er ekki viðeigandi af læknisfræðilegum ástæðum. Sáraristilbólga hjá börnum, Inflectra er
ætlað til meðferðar við mjög virkri sáraristilbólgu (ulcerative colitis) hjá börnum og unglingum á aldrinum 6 til 17 ára sem hafa ekki fengið nægilega góða svör-
un við hefðbundinni meðferð að meðtöldum barksterum og 6-merkaptópúríni (6-MP) eða azatíópríni (AZA) og hjá sjúklingum sem ekki þola þá meðferð eða
slík meðferð er ekki viðeigandi af læknisfræðilegum ástæðum. Hryggikt, meðferð við alvarlegri, virkri hryggikt hjá fullorðnum sjúklingum sem hafa ekki svarað
hefðbundinni meðferð á fullnægjandi hátt. Sóraliðagigt, meðferð við virkri og framsækinni sóraliðagigt hjá fullorðnum sjúklingum, þegar ekki hefur fengist
fullnægjandi svörun við fyrri sjúkdómstemprandi gigtarlyfjameðferð. Inflectra á að gefa í samsettri meðferð með metotrexati eða eitt og sér hjá sjúklingum
sem þola ekki metotrexat eða hjá sjúklingum sem eiga ekki að nota metotrexat vegna frábendinga.Psoriasis, meðferð við miðlungs alvarlegum eða alvarleg-
um skellupsoriasis hjá fullorðnum sjúklingum sem svara ekki, mega ekki fá eða þola ekki aðra meðferð sem tekur til alls líkamans, þar með talið ciklósporín,
metotrexat og psoralen útfjólubláir geislar af gerð A (PUVA). Frábendingar Sjúklingar með sögu um ofnæmi fyrir infliximabi (sjá kafla 4.8), ofnæmi fyrir öðrum
músapróteinum eða einhverju hjálparefnanna. Sjúklingar með berkla eða aðrar alvarlegar sýkingar eins og blóðsýkingu, ígerð og tækifærissýkingar. Sjúklingar
með miðlungs alvarlegan til alvarlega hjartabilun (NYHA flokkur III/IV). Upplýsingar um aukaverkanir, milliverkanir, varnaðarorð og önnur mikilvæg atriði
má nálgast í sérlyfjaskrá - www.serlyfjaskra.is. Markaðsleyfishafi: Hospira UK Ltd. Ef óskað er eftir frekari upplýsingum má hafa samband við umboðsaðila:
Alvogen HS, Sæmundargötu 15-19, 101 Reykjavík, sími 522 2900. ATH. Textinn er styttur, sjá nánari upplýsingar á vefsíðunni www.serlyfjaskra.is.