Læknablaðið - 01.07.2018, Blaðsíða 39
LÆKNAblaðið 2018/104 363
■ ■ ■ Magnús Hlynur Hreiðarsson
Í lok maí stóðu Heilbrigðisstofnun
Suðurlands (HSU) og Heilbrigðisstofn-
un Austurlands (HSA) fyrir sameiginlegu
málþingi á Kirkjubæjarklaustri. Tilefnið
var upphaf á innleiðingu á notkun á
fjarheilbrigðisþjónustu á 8 nýjum stöðum
á Suður- og Austurlandi. Tækjabúnaður-
inn sem um ræðir var keyptur fyrir styrk-
fé velferðarráðuneytisins frá fyrirtækinu
AMD Global Telemedicine. Tæki HSU eru
staðsett í Laugarási, á Hellu, Hvolsvelli
og í Vestmannaeyjum en tæki HSA eru
á Egilsstöðum, Reyðarfirði, Eskifirði og í
Neskaupstað.
Frumkvöðulsstarf á Kirkjubæjarklaustri
Kirkjubæjarklaustur er gott dæmi um
fjarheilbrigðisþjónustu sem hefur verið
innleidd að frumkvæði heimamanna.
Ástæðan er sú að þar er ekki alltaf læknir
á staðnum en það er þá hlutverk hjúkr-
unarfræðingsins á staðnum að sjá til þess
að læknirinn fái upplýsingar og gögn en
á Klaustri hafa verið tæki til fjarheilbrigð-
isþjónustu í 5 ár og gefist einstaklega
vel. Fimm fyrirlestrar voru haldnir á
málþinginu en þau sem töluðu voru þau
Auðbjörg Bjarnadóttir hjúkrunarstjóri
Kirkjubæjarklaustri, Guðjón Hauksson
forstjóri HSA, Hjörtur Kristjánsson fram-
kvæmdastjóri HSU og þeir Eric Bacon for-
stjóri og Riley Normandin fram-
kvæmdastjóri alþjóðaviðskiptadeildar
AMD Global Telemedicine fyrirtækisins
þar sem fjarlækningatækin voru keypt.
Miklar væntingar til fjarheilbrigðisþjónustu
Á málþinginu kom meðal annars fram
að væntingar eru miklar til fjarheilbrigð-
isþjónustu, ekki eingöngu til notkunar á
nýrri tækni heldur einnig væntingar um
að geta fært sérhæfða heilbrigðisþjón-
ustu nær íbúum í dreifðum byggðum.
„Árangur af verkefnum á sviði fjarheil-
brigðisþjónustu hefur oft skilað miklu
hagræði, sem er meðal annars fólgið í því
að sjúkraflutningum hefur fækkað, ferða-
kostnaður skjólstæðinganna sem þurfa á
sérfræðiþjónustu að halda hefur minnkað
og skilað betri nýtingu sérfræðinga og fag-
fólks. Verkefni sem þetta er ekki hugsað til
að leggja niður þjónustu eða spara,“ segir
Herdís Gunnarsdóttir, forstjóri HSU, um
leið og hún leggur áherslu á að fjarheil-
brigðisþjónustan snúist um að nýta tíma
og fjármuni á sem bestan hátt á sama tíma
og þjónustan sé færð nær íbúum með
aukinni samvinnu fagaðila innan og milli
stofnana í heilbrigðisþjónustu. „Það sem er
mikilvægast er að sjúklingar fái skoðun og
úrlausn í sínu héraði þegar þess er kostur,“
segir Herdís.
Búnaðurinn er tengdur við Sögu
Búnaðurinn sem HSA og HSU keyptu
gengur með öðrum tölvubúnaði og hann
má nýta á margan hátt og búið er að
tengja tækin við rafræna sjúkraskrárkerf-
ið Sögu. Fjarheilbrigðistækjunum fylgja
ýmis tæki, meðal annars til að mynda í
eyru, augu, munn, húð. Að auki fylgja
hjartsláttarrit, blóðþrýstingsmælir, mett-
unarmælir, hjartalínurit og öndunarmælir.
Tæknin býður upp á þrívíddarskoðun, þar
sem hægt er að skoða hreyfingu sjúklings
og fleira. Samhliða almennri heilsugæslu-
þjónustu og þjónustu sérgreinalækna má
einnig nýta búnaðinn til bráðaþjónustu,
sálfræðiþjónustu, fjareftirlits með sjúk-
lingum, heimahjúkrunar og fjarþjálfun-
ar. „Svona tæki gætu mögulega verið til
staðar til dæmis í skólum og á fjölsóttum
ferðamannastöðum eða litlum þéttbýl-
isstöðum þar sem engin heilbrigðis- eða
læknisþjónusta er venjulega til staðar,“
bætir Herdís við.
Um 50 stjórnendur úr heilbrigðiskerfinu ásamt erlendum gestum og sérfræðingum mættu á málþing um fjarlækningar
á Kirkjubæjarklaustri 28. maí í vor.
Sigurður Árnason læknir
á Kirkjubæjarklaustri
og Riley Normandi
frá AMD Global Tel-
emedicine við hluta af
fjarlækningarbúnaðnum
sem staðsettur er á
heilsugæslustöðinni á
Kirkjubæjarklaustri.
Fram kom á málþinginu
að þjálfun starfsmanna
á nýju tækin er hafin og
það er hugur í heilbrigð-
isstarfsfólki og stjórn-
endum HSA og HSU að
leggja sitt af mörkum til
að jafna aðgengi íbúa á
landsbyggðinni að heil-
brigðisþjónustu.
Miklar væntingar gerðar til fjar-
heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni