Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.07.2018, Blaðsíða 51

Læknablaðið - 01.07.2018, Blaðsíða 51
LÆKNAblaðið 2018/104 375 Til félagsmanna í Læknafélagi Íslands Kópavogi 11. júní 2018. Efni: Skipulagsbreytingar Læknafélags Íslands. Eins og áður hefur komið fram voru gerðar breytingar á lögum LÍ á síðasta aðalfundi sem fela í sér talsverðar skipulagsbreytingar hjá félaginu. Í breytingunum felst að læknar eru framvegis félagsmenn í Læknafélagi Íslands (LÍ) og velja síðan aðildarfélag til að tilheyra. Svæðafélögin eru ekki lengur aðildarfélög. Aðildarfélög LÍ eru framvegis fjögur: • Félag almennra lækna (FAL). Félagsmenn eru aðallega læknar sem ekki hafa lokið sérfræðinámi. • Félag íslenskra heimilislækna (FÍH). Félagsmenn eru aðallega læknar sem hafa heimilislækningar að aðalstarfi. • Félag sjúkrahúslækna (FSL). Félagsmenn eru aðallega læknar sem starfa á sjúkrahúsum og öðrum heilbrigðisstofnunum. • Læknafélag Reykjavíkur (LR). Félagsmenn eru aðallega læknar sem starfa að hluta eða öllu leyti sjálfstætt. Aðildarfélögin fara með atkvæðisrétt félagsmanna sinna á aðalfundi LÍ og geta félagsmenn falið einu félagi atkvæðisrétt sinn eða skipt því milli tveggja félaga samkvæmt lögum LÍ. Velji læknir að vera í tveimur félögum getur hann falið öðru félaginu að fara með atkvæði sitt á aðalfundi eða skipt atkvæði sínu milli beggja félaganna. Fyrir 15. ágúst nk. þurfa læknar sem vilja breyta því hvaða aðildarfélag fer með atkvæði þeirra eða sem vilja skipta atkvæði sínu milli tveggja aðildarfélaga að tilkynna það til stjórnar LÍ. Tilkynning um atkvæðisréttinn mun ráða því hversu marga aðalfundarfulltrúa hvert aðildarfélaganna hefur á aðalfundi LÍ 2018 sem haldinn verður 7.-9. nóvember nk. í Hlíðasmára í Kópavogi. Með félagskveðju, f.h. stjórnar LÍ, Reynir Arngrímsson formaður. Tilkynning vegna atkvæðisréttar á aðalfundi Læknafélags Íslands Nafn _____________________________________________________________________________ Kt. ________________________________ Netfang: ___________________________ fel/ur hér með [merkja skal við eitt eða tvo félög. Ef merkt er við tvö félög er atkvæðinu skipt milli þeirra tveggja félaga]: _______ Félagi almennra lækna _______ Félagi íslenskra heimilislækna _______ Félagi sjúkrahúslækna _______ Læknafélagi Reykjavíkur að fara með aðalfundaratkvæðið á aðalfundi Læknafélags Íslands 2018 og þangað til annað verður tilkynnt. Ef engin tilkynning berst verður atkvæðið áfram hjá því félagi sem það var síðast falið. Sendist með tölvupósti á netfangið lis@lis.is eða með landpósti á Hlíðasmára 8, 200 Kópavogi FYRIR 15. ÁGÚST 2018. ✂
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.