Læknablaðið - 01.07.2018, Page 51
LÆKNAblaðið 2018/104 375
Til félagsmanna í Læknafélagi Íslands
Kópavogi 11. júní 2018.
Efni: Skipulagsbreytingar Læknafélags Íslands.
Eins og áður hefur komið fram voru gerðar breytingar á lögum LÍ á síðasta aðalfundi sem fela í sér talsverðar skipulagsbreytingar hjá
félaginu. Í breytingunum felst að læknar eru framvegis félagsmenn í Læknafélagi Íslands (LÍ) og velja síðan aðildarfélag til að tilheyra.
Svæðafélögin eru ekki lengur aðildarfélög. Aðildarfélög LÍ eru framvegis fjögur:
• Félag almennra lækna (FAL). Félagsmenn eru aðallega læknar sem ekki hafa lokið sérfræðinámi.
• Félag íslenskra heimilislækna (FÍH). Félagsmenn eru aðallega læknar sem hafa heimilislækningar að aðalstarfi.
• Félag sjúkrahúslækna (FSL). Félagsmenn eru aðallega læknar sem starfa á sjúkrahúsum og öðrum heilbrigðisstofnunum.
• Læknafélag Reykjavíkur (LR). Félagsmenn eru aðallega læknar sem starfa að hluta eða öllu leyti sjálfstætt.
Aðildarfélögin fara með atkvæðisrétt félagsmanna sinna á aðalfundi LÍ og geta félagsmenn falið einu félagi atkvæðisrétt sinn eða skipt
því milli tveggja félaga samkvæmt lögum LÍ. Velji læknir að vera í tveimur félögum getur hann falið öðru félaginu að fara með atkvæði sitt
á aðalfundi eða skipt atkvæði sínu milli beggja félaganna.
Fyrir 15. ágúst nk. þurfa læknar sem vilja breyta því hvaða aðildarfélag fer með atkvæði þeirra eða sem vilja skipta atkvæði sínu milli
tveggja aðildarfélaga að tilkynna það til stjórnar LÍ.
Tilkynning um atkvæðisréttinn mun ráða því hversu marga aðalfundarfulltrúa hvert aðildarfélaganna hefur á aðalfundi LÍ 2018 sem
haldinn verður 7.-9. nóvember nk. í Hlíðasmára í Kópavogi.
Með félagskveðju,
f.h. stjórnar LÍ,
Reynir Arngrímsson formaður.
Tilkynning vegna atkvæðisréttar á aðalfundi Læknafélags Íslands
Nafn _____________________________________________________________________________
Kt. ________________________________
Netfang: ___________________________
fel/ur hér með [merkja skal við eitt eða tvo félög. Ef merkt er við tvö félög er atkvæðinu skipt milli þeirra tveggja félaga]:
_______ Félagi almennra lækna
_______ Félagi íslenskra heimilislækna
_______ Félagi sjúkrahúslækna
_______ Læknafélagi Reykjavíkur
að fara með aðalfundaratkvæðið á aðalfundi Læknafélags Íslands 2018 og þangað til annað verður tilkynnt.
Ef engin tilkynning berst verður atkvæðið áfram hjá því félagi sem það var síðast falið.
Sendist með tölvupósti á netfangið lis@lis.is eða með landpósti á Hlíðasmára 8, 200 Kópavogi
FYRIR 15. ÁGÚST 2018.
✂