Læknablaðið - 01.07.2018, Blaðsíða 32
356 LÆKNAblaðið 2018/104
Nýtt aðildarfélag Læknafélags Íslands
leit dagsins ljós 18. janúar á Læknadög-
um þegar haldinn var stofnfundur Félags
sjúkrahúslækna. Stofnun félagsins kem-
ur í kjölfar mikilla breytinga á skipulagi
Læknafélags Íslands sem samþykktar
voru á síðasta aðalfundi. Niðurstaða
vinnuhóps á vegum Læknafélags Íslands
var að fjögur félög: Læknafélag Reykja-
víkur, Félag íslenskra heimilislækna, Fé-
lag almennra lækna og Félag sjúkrahús-
lækna yrðu aðildarfélög Læknafélags
Íslands með tvo fulltrúa hvert í stjórn LÍ
og færu með atkvæði félagsmanna sinna
á aðalfundi LÍ.
Hið nýja félag á að rúma alla sérfræði-
lækna sem starfa á sjúkrahúsum og opin-
berum stofnunum og skarast þannig að
nokkru leyti við Læknafélag Reykjavíkur
sem er félag sjálfstætt starfandi lækna.
Eins og fram kom á fundinum er ekkert
sem hindrar þá er vilja að vera félagar í
báðum félögum. Sjúkrahúslæknar voru
áður flestir í Læknafélagi Reykjavíkur og
Læknafélagi Akureyrar.
Í fyrstu stjórn Félags sjúkrahúslækna
sitja María Ingibjörg Gunnbjörnsdóttir
formaður, Hjörtur Friðrik Hjartarson vara-
formaður, Ólafur Helgi Samúelsson gjald-
keri, Sunna Snædal ritari og Ragnheiður
Baldursdóttir meðstjórnandi.
Hverjir eru helstu hagsmunir félagsmanna?
Helstu hagsmunir félagsmanna snúa að
starfsumhverfi í víðum skilningi, vinnu-
aðstöðu, endurmenntun, gæða- og kjara-
málum, svo eitthvað sé nefnt. Skilgrein-
ingar á verkefnum og skýrar starfslýsingar
eru mikilvægar sem og sameiginleg túlk-
un á eðlilegu vinnuframlagi og ábyrgð
lækna. Mikið álag einkennir vinnudag
margra sérfræðilækna og því er nýliðun
mikilvæg til að tryggja að vinnuálag sé
hæfilegt. Við þurfum að horfast í augu við
að læknar geta misst starfsgetu til lengri
eða skemmri tíma ef álag er óviðunandi.
Það að hafa áhrif á sínum vinnustað er
mikilvægt, eflir fólk í starfi og eykur
starfsánægju.
Hvaða mál brenna helst á sjúkrahúslækn-
um?
Starfsumhverfi lækna er okkur hug-
leikið og í því felst uppbygging heilbrigð-
isþjónustu landsmanna og skilgreining
verk efna á hverju þjónustustigi. Kerfin
þurfa að vinna saman með heildarhags-
muni landsmanna að leiðarljósi því við
eru á einhverjum hluta ævinnar öll neyt-
endur og greiðendur fyrir þessa þjónustu.
Þjóðin er sammála um að heilbrigðis-
þjónusta sé mikilvæg, eigi að vera í
forgangi og við þurfum að taka þessa
umræðu. Regluleg endurskoðun á upp-
byggingu heilbrigðiskerfisins á að vera
sjálfsögð, með gæði og hagkvæmni að
leiðarljósi.
Við þurfum skýra framtíðarsýn, lang-
tímamarkmið að geta byggt upp heil-
brigðisþjónustu landsins. Félagið telur að
læknar eigi að hafa meiri áhrif á þá vinnu
og leiðbeina stjórnvöldum.
Áherslumál
Á hvaða mál munt þú sem formaður leggja
áherslu?
Verkefni haustsins er að hefja samtal
við sérfræðilækna. Kanna hvaða málefni
liggja félagsmönnum á hjarta. Markmið
félagsins eru fjölþætt og nauðsynlegt að
forgangsraða í samráði við félagsmenn.
Sem formaður tel ég að mitt mikilvægasta
verkefni sé að halda yfirsýn, vinna að sett-
um sameiginlegum markmiðum félagsins
„Þurfum að taka
umræðu um endurskoðun
og uppbyggingu
heilbrigðiskerfisins”
– segir María I. Gunnbjörnsdóttir
formaður Félags sjúkrahúslækna
■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson