Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.07.2018, Blaðsíða 7

Læknablaðið - 01.07.2018, Blaðsíða 7
LÆKNAblaðið 2018/104 331 R I T S T J Ó R N A R G R E I N Presumed consent for organ donation in Iceland Kristinn Sigvaldason MD Head of Intensive care, Landspitali University Hospital, Reykjavík, Iceland doi.org/10.17992/lbl.2018.0708.190 Kristinn Sigvaldason svæfinga- og gjörgæslu- læknir á Landspítala Fossvogi krisig@landspitali.is Meðal merkustu framfara læknisfræðinnar er flutn- ingur líffæris frá líffæragjafa í annan einstakling sem þjáist af alvarlegri líffærabilun. Meðferðin getur bjargað lífi sjúklinga eða bætt lífsgæði þeirra veru- lega og þrátt fyrir að eiga sér ekki langa sögu hef- ur hún verið í mikilli framþróun og er enn. Fjöldi þeirra sem þurfa á líffærum að halda eykst stöðugt en framboð hefur ekki aukist að sama skapi.1 Líf- færagjöf frá látnum einstaklingi er möguleg ef hann hefur verið úrskurðaður látinn samkvæmt skil- merkjum heiladauða og ljóst er að heilastarfsemi hefur stöðvast á óafturkræfan hátt. Helstu orsakir þess eru heilablóðföll eða alvarlegar heilaskemmdir vegna höfuðáverka. Árið 1991 samþykkti Alþingi lög um að nema mætti brott líffæri úr líkama einstak- lings að honum látnum ef hann hefði lýst yfir vilja til þess í lifanda lífi en ef slík yfirlýsing væri ekki fyrir hendi þyrfti samþykki nánustu ættingja.2 Grunnur að þeim lögum var því „ætluð neitun“. Samtímis var sett fram reglugerð um hvernig úrskurða skyldi einstakling látinn samkvæmt heiladauðaskilmerkj- um. Þessi lög gerðu líffæragjafir mögulegar hér á landi. Í slíkum tilfellum kemur teymi lækna og hjúkrunarfræðinga frá erlendu samningssjúkrahúsi og sér um brottnám líffæra en allur undirbúningur er í höndum íslensks heilbrigðisstarfsfólks. Líffæra- gjafir hafa að meðaltali verið um þrjár á ári (um 10 líffæragjafir á milljón íbúa),3 nokkru færri en í ná- grannalöndum okkar. Fyrstu árin höfnuðu aðstand- endur líffæragjöf í 40% tilfella en það hlutfall hefur farið lækkandi á síðustu árum og líffæragjöfum hef- ur fjölgað. Mörg Evrópulönd hafa breytt lagasetningu á þann hátt að gert er ráð fyrir „ætluðu samþykki“ einstaklinga fyrir líffæragjöf nema viðkomandi hafi áður lýst sig andvígan því. Hefur þetta til dæmis verið gert í Svíþjóð, Finnlandi, Austurríki, Noregi, Belgíu, Frakklandi og á Spáni sem fyrstur landa gerði þessa lagabreytingu.4 Hlutfallslega er fjöldi líffæragjafa mestur á Spáni, eða 35 á hverja milljón íbúa á ári. Almennt hefur ekki verið sýnt fram á að lagabreytingin hafi fjölgað líffæragjöfum en laga- setningin staðfestir þjóðfélagssátt um að líffæri frá látnum einstaklingum skuli grædd í sjúklinga sem á þurfa að halda. Yfirgnæfandi meirihluti Íslendinga (80%) er hlynntur löggjöf um ætlað samþykki sam- kvæmt niðurstöðum rannsóknar sem birt var í Læknablaðinu 2014 og í þeirri rannsókn lýstu 84% sig viljuga til að gefa eigin líffæri við andlát sitt. Aðeins 5% höfðu þó skráð þann vilja sinn.5 Nýlega var samþykkt á Alþingi breyting á lög- um um brottnám líffæra þannig að nema megi brott líffæri úr látnum einstaklingi og nota við læknis- meðferð annars einstaklings, hafi hinn látni ekki lýst sig andvígan því í lifanda lífi. Grunnurinn að þeim lögum er því ætlað samþykki. Nýju lögin munu taka gildi 1. janúar 2019. Með þessu er stigið mikilvægt framfaraskref í líffæragjafamálum og er í raun þjóðinni til sóma. Frumvarpið var samþykkt af miklum meirihluta þingmanna og enginn var and- vígur því. Í íslensku lögunum er skýrt tekið fram að ekki megi nema brott líffæri einstaklings leggist nánasti vandamaður gegn því. Þar með er staðfest sú regla sem viðhöfð hefur verið hér á landi og víð- ast annars staðar að ekki er farið gegn vilja ættingja. Lagabreytingin auðveldar heilbrigðisstarfsfólki öll samskipti við aðstandendur einstaklings sem hlotið hefur óafturkræfa stöðvun á heilastarfsemi auk þess sem hún ætti að auðvelda aðstandendum að taka ákvörðun fyrir hönd hins látna. Ef náinn aðstand- andi er mótfallinn líffæragjöf er fullt tillit tekið til þeirrar afstöðu. Líffæragjöf er dýrmætasta gjöf sem við getum gefið öðrum og dæmi eru um að einn látinn einstak- lingur hafi bjargað lífi eða bætt verulega lífsgæði sex annarra. Heiladauði er að sjálfsögðu hörmuleg- ur atburður sem getur hent einstaklinga á öllum aldri en það getur stundum verið aðstandendum huggun harmi gegn að geta hjálpað öðrum í neyð þegar slíkar aðstæður koma upp og mikilvægt að lagaumhverfi okkar auðveldi allan framgang þess. Í þeim tilgangi er þessi lagabreyting afar mikilvæg en kynna þarf mikilvægi líffæragjafar fyrir almenningi og huga vel að skipulagi og umgjörð starfseminnar í heilbrigðiskerfinu. Einnig er afar mikilvægt að hver og einn ákveði með sjálfum sér hvaða viðhorf hann hefur til líffæragjafar og kynni afstöðu sína fyrir sínum nánustu eða skrái ákvörðun sína á heimasíðu Embættis landlæknis. Heimildir 1. Tullius SG, Rabb HN. Improving the Supply and Quality of Deceased- Donor Organs for Transplantation. N Engl J Med 2018; 378: 1920-9. 2. Lög um ákvörðun dauða, nr. 15/1991 og lög um brottnám líffæra, nr. 16/1991. 3. Kárason S, Jóhannsson R, Gunnarsdóttir K, Ásmundsson P, Sigvaldason K. Líffæragjafir á Íslandi 1992-2002. Læknablaðið 2005; 91: 417-22. 4. Rithalia A, McDaid C, Suekarran S, Myers L, Sowden A. Impact of presumed consent for organ donation rates: a systematic review. BMJ 2009; 338: a3162. 5. Rúnarsdóttir K, Ólafsson K, Arnarson Á. Viðhorf Íslendinga til ætlaðs samþykkis við líffæragjafir. Læknablaðið 2014; 100: 521-5. Lög um brottnám líffæra við andlát Öðlastu nýtt viðhorf Inflectra er fyrsta mAb samheitalíftæknilyfið. Lyfið var þróað til að hafa sambærilega virkni og öryggi og frumlyf infliximab til að auka meðferðarval sjúklinga með gigtar-, meltingar- og húðsjúkdóma.1. Heimildir: 1. INFLECTRA™. European Public Assessment Report (EPAR). June 2013. Available at: http://www.ema.europa.eu/docs/en_GB/document_library/ EPAR_-_Public_assessment_report/human/002778/WC500151490.pdf http://www.ema.europa.eu/docs/is_IS/document_library/EPAR_-_Product_ Information/human/002778/WC500151489.pdf Fyrsta samheitalíftæknilyfið sem er einstofna mótefni (mAb) og notað í gigtar-, meltingar- og húðsjúkdómum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.