Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.07.2018, Page 40

Læknablaðið - 01.07.2018, Page 40
364 LÆKNAblaðið 2018/104 Árni Kristinsson fyrrverandi prófessor og yfirlæknir á hjartadeild Landspítala kristinsson@simnet.is Á aldarafmælinu höfum við minnst frækinna frumkvöðla sem allir kannast við. Mér barst í hendur nær aldargam- alt póstkort með jólakveðju frá Ingólfi Gíslasyni, sem þá var héraðslæknir í Vopnafirði, til Skúla Guðjónssonar stud. med. (sjá mynd). Það ýtti við mér að rifja upp sögu hans sem fulltrúa gleymdu einyrkjanna sem með fábreyttum tækja- kosti og meðferðarúrræðum stóðu við rúmstokk sjúklinga og urðu að lækna eða líkna, oft örmagna eftir háskalegar svaðilfarir um fjöll og firnindi. Ingólfur Gíslason var bláfátækur bóndasonur, fæddur 1874 og uppalinn að Þverá í Fnjóskadal. Hann lýsir skemmti- lega í minningabók sinni, Læknisævi, æskuárunum, námi í Menntaskólanum í Reykjavík og síðan Læknaskólanum og kennurum þar, Guðmundunum þremur. Eftir útskift í febrúar 1901 vann hann um vorið á sjúkrahúsum í Kaupmannahöfn og var skipaður héraðslæknir í Reykjadal í Þingeyjarsýslu í ágúst sama ár. Ekki leið á löngu þar til hann 2. ágúst fékk að reyna á eigin skinni hættuna af því að veikjast af botnlangabólgu úti á landsbyggðinni: „Ég varð sjálfur eitt af fyrstu og erfiðustu við- fangsefnunum í þeirri grein norðanlands,“ segir hann. Eftir fjögurra daga kölduköst, lítt þolandi kvalir og nokkuð háan hita var lagt af stað með hann í kistu á kviktrjám: „Settir voru plankar á hlið tveggja, stilltra hesta og kista með sjúklingnum sett þversum á trén. Tveir hraustir menn gengu og studdu kistuendana og þriðji maður reið eða gekk á undan og teymdi. Ég lá í kistunni, hreyfingin var ónotaleg og þrautin óx, en til allrar hamingju held ég, að ég hafi verið hálf meðvitundarlaus með köflum.“ Fyrra daginn var farið yfir Reykjaheiði og gist um nóttina að Hálsi í Fnjóskadal, og seinni daginn „ferjað yfir Fnjóská, sem þá var óbrúuð, og svo haldið eftir bröttum, ósléttum, krókóttum vegi yfir Vaðlaheiðina niður að sjó hjá Veiga- stöðum, ferjað yfir Eyjafjörð og kistan loks borin af bryggjunni á sjúkrahúsið. Mun það ferðalag hafa minnt á líkfylgd, því góðgjarnir og hjálpsamir menn komu þarna til aðstoðar, hjálpuðu til að bera, en aðrir fylgdust með eins og gengur.“ Guðmundur Hannesson og Steingrímur Matthíasson nýútskrifaður skáru hann svo upp og Matthías Einarsson nemandi svæfði. Nú tóku við blóðuppköst, hita- og svitaköst og loks var hann borinn út af sjúkrahúsinu 9. desember og vóg þá 40 kg. Þetta mun hafa verið fyrsti botnlanga- skurðurinn á Íslandi. Árið 1906 varð Ingólfur héraðslæknir í Vopnafirði. Í minningabókum sínum segir hann frá svaðilförum til að sinna sjúkling- um, meðal annars Lárusi: „Við héldum af stað ríðandi inn Tang- ann, fórum af baki í sköflum, skeiðriðum sandinn fyrir fjarðarbotninum, teymdum yfir Hofsá á lélegum ís, og svo var löng ferð út með firðinum. Ekki sá til sólar, jörðin hulin snjó, brotin og bækluð brú á Gljúfurá, mannskæð heiði framundan og svo áhyggjurnar út af veslings Lárusi. Allt þetta gerði ferðalagið fremur ömurlegt, ekki að tala um að syngja eða kveða, né segja kýmnisögur, sem annars var oft Háskaferðir héraðslæknis fyrir einni öld – um Ingólf Gíslason Ingólfur Gíslason læknir var bláfátækur bóndasonur, fæddur 1874 og uppalinn að Þverá í Fnjóskadal.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.