Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.06.2018, Blaðsíða 38

Læknablaðið - 01.06.2018, Blaðsíða 38
310 LÆKNAblaðið 2018/104 Samtök norrænna fæðingarlækna sem sinna fósturgreiningu og meðgöngu- sjúkdómum, Nordic Network of Fetal Medicine (NNFM) funduðu í Reykjavík í byrjun maí en þetta er í fjórða sinn sem hópurinn fundar. Það voru þær Hildur Harðardóttir, fæðingarlæknir, dósent og fyrrverandi yfirlæknir á fæðingadeild Landspítala og Hulda Hjartardóttir, fæðingarlæknir og yfirlæknir fæðingadeildar sem meðal annarra sáu um undirbúning fundarins. Þær settust niður með blaðamanni að loknum fundinum og ræddu ýmislegt sem þar kom fram. „Þetta var tveggja daga fundur og hefur vaxið talsvert að umfangi frá fyrsta fund- inum sem haldinn var í Gautaborg 2015. Sá fundur var haldinn á Sahlgrenska- sjúkrahúsinu og tiltölulega fáir gestir en við Hulda höfum farið á alla fundina og þannig náð að fylgjast með frá upphafi,“ segir Hildur. „Samtökin heita „Nordic Network of Fetal Medicine“ og eru öll Norðurlöndin auk Eystrasaltslandanna þriggja innan samtakanna. Þetta hefur gefið okkur Huldu tækifæri til að kynnast kollegum okkar á Norðurlöndunum sem er sér- staklega mikilvægt því hvorug okkar er menntuð á Norðurlöndunum, ég í Banda- ríkjunum og Hulda í Bretlandi, svo tengsl okkar voru mun minni en ella við starfs- systkin okkar á Norðurlöndunum.“ „Það kom okkur reyndar verulega á óvart að þegar þessi hópur byrjaði að hitt- ast þá héldum við að allir þekktust nema við. En það kom í ljós að samskiptin milli Norðurlandanna voru lítil og þetta samráð hefur fært alla nær hvert öðru, ekki bara okkur. Við erum öll að fást við sams konar verkefni þó við hér á Íslandi séum með mjög fá alvarleg tilfelli og séum reglu- bundið að senda frá okkur þannig tilfelli því við teljum okkur ekki geta haldið uppi nauðsynlegri færni því við fáum tilfellin svo sjaldan. Við höfum sent sjúklinga til Skotlands og Leuven í Belgíu en núna þegar tengsl hafa myndast á milli Norður- landanna höfum við í vaxandi mæli beint tilfellum þangað. Það er svo mikilvægt að mynda þessi persónulegu tengsl og kynnast, því oft er þetta spurning um að taka upp símann og hringja vegna bráða- tilfellis. Þá skiptir máli að fólk viti deili á hvert öðru, bæði persónulega og faglega. Á Karolinska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi er íslenskur starfsmaður sem sér um mót- töku sjúklinga og lóðsar þá í gegnum spít- alakerfið sem er mikill munur því fólk er undir miklu álagi þegar það er sent utan í svona sérhæfðar og alvarlegar meðferðir,“ segir Hulda. Þetta eru helst aðgerðir eins og blóðgjöf til fósturs í móðurkviði vegna blóðflokka- misræmis og eins þarf stundum að setja kera í fóstur þar sem tappa þarf vökva úr brjóstholi þess. „Þá eru á hverju ári nokk- ur tilfelli tvíburaþungana þar sem þarf að skilja að blóðrásir fóstranna svo þau þroskist bæði eðlilega og eins er farið að gera aðgerðir á klofnum hrygg í móður- kviði. Við höfum sent þau tilfelli til Leu- ven og fengið mjög góða þjónustu þar en nú er spurning hvort Kaupmannahöfn eða Stokkhólmur taki við því hlutverki.“ Viljum auka rannsóknasamstarfið „Það hefur verið þróunin alls staðar í heiminum að þrengja hópinn sem tekur þátt í aðgerðum sjaldgæfra sjúkdóma. Við þurfum auðvitað að halda okkur í þjálfun hér og gerum það í sambandi við óm- skoðanir og legástungur en fyrir flóknari meðferðir á fóstrum í móðurkviði er ekki mögulegt fyrir okkur að halda okkur í þjálfun. Innan Norðurlandanna er þetta að þróast þannig að æ færri sjúkrahús sinna alvarlegum tilvikum og æskilegt væri að hafa bara eitt sjúkrahús í hverju landi sem sinnir slíkum tilfellum. Það hefur jafnvel komið til tals að þrengja þetta enn meira því tilfellin eru fá og aldrei að vita nema þróunin verði í þá átt að sérfræðingarnir verði hreyfanlegri, komi til sjúklingsins í stað hins gagnstæða. Þannig er verið að ræða hvað sé heppilegasta fyrirkomulag- ið,“ segir Hulda. „Það er undirhópur sem er sérhæfður í fósturgreiningu og meðferð og hefur verið að taka saman upplýsingar til sjúklinga og hvað sé best að gera í mismunandi að- stæðum. Það er kannski ekki komið alveg á það stig að verið sé að senda sjúklinga milli Norðurlandanna, nema þá héðan, en að samtalið eigi sér stað er mjög stórt skref í átt til aukinnar samvinnu,“ segir Hildur. Aðspurðar um hvað Ísland hafi fram að færa í þetta samstarf segja þær að vissu- lega séum við þiggjendur að miklu leyti. „En við komum þó með sjónarhorn annars staðar frá þar sem við erum ekki þjálfaðar á Norðurlöndunum en nánast allir læknar á Norðurlöndunum hafa stundað sitt læknanám og sérfræðinám í heimalandinu. Við þekkjum því betur til hvernig hlutirnir eru gerðir í Bretlandi og Bandaríkjunum og getum þannig stækkað alþjóðlegan bakgrunn hópsins. Það verð- ur líklega aldrei þannig að við förum að gera flóknari aðgerðir hér heima en það er mikilvægt að kollegar okkar viti hvað við getum gert hér heima og hverju er hægt að varpa yfir til okkar. Eftirfylgni eftir aðgerðir af þessu tagi er mikilvæg til að tryggja að meðgangan gangi eins vel og hægt er í framhaldi inngripsins sem gert var. Það má líka segja að þegar kem- ur að rannsóknum höfum við talsvert til málanna að leggja sem heilt land og með þokkalega stórt háskólasjúkrahús,“ segir Hulda. „Það er hugur í hópnum að efla rannsóknasamstarf sem myndi auka marktækni rannsóknanna til muna. Eitt rannsóknaefni er að skima fyrir því hvaða konur eru í hættu að fá snemmkomna meðgöngueitrun og gefa í kjölfarið við- eigandi meðferð, sem felst í 150 mg af hjartamagnýli að kvöldi. Snemmkomin meðgöngueitrun getur leitt til alvarlegra veikinda móður ásamt því að leiða til fyrirburafæðingar, sem getur haft alvar- legar afleiðingar fyrir barnið. Danir munu líklega hafa forgöngu um slíka rannsókn og við viljum gjarnan vera þátttakendur í henni. Meðgöngueitrun síðar á meðgöngu er einnig rannsóknarefni en þar er verið Sérgrein í örri þróun - segja þær Hildur Harðardóttir og Hulda Hjartardóttir um fósturgreiningar og áhættumeðgöngu- lækningar ■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.