Morgunblaðið - 28.06.2018, Side 76
FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 179. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Hjörtur segir upp störfum
2. Krabbamein gerði út um …
3. Leyndarmál Nicole Kidman …
4. Dónalegur Maradona …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Helguleik fagnað í
FÍH-salnum í dag
Hóf vegna útgáfu bókarinnar
Helguleikur - saga Helgu Ingólfs-
dóttur og Sumartónleika í Skálholts-
kirkju verður haldið kl. 17 í dag í sal
FÍH við Rauðagerði. Auk bókarinnar
verður þar kynnt starf Sumartón-
leikanna en dagskrá þeirra hefst 7.
júlí næstkomandi.
Listakonan Zoé
Sauvage opnar
myndlistarsýn-
inguna Welcome
to New Zoéland
kl. 18 í dag í Lista-
stofunni, Hring-
braut 119. Nýja-
Zoéland er inn-
blásin ferð í duttl-
ungafullan hugarheim listamannsins
Zoé Sauvage gegnum teikningu/
málverk, myndband og innsetningu.
Landið sem er heimsótt: frændeyja
Nýja-Sjálands.
Velkomin í ferðalag
til Nýja-Zoélands
Gunnar Björn Guðmundsson, leik-
stjóri íslensku kvikmyndarinnar
Astrópíu, leiðir menningar- og heilsu-
göngu um tökustaði kvik-
mynda í miðbæ Hafn-
arfjarðar kl. 20 í
kvöld. Lagt verður af
stað frá Bæjarbíói
eftir sýningu stutt-
myndarinnar Kara-
mellumyndarinnar.
Gangan tekur um
eina og hálfa
klukkustund.
Á kvikmyndaslóðum
í Hafnarfirði
Á föstudag Sunnan 3-8 m/s og rigning með köflum, en þurrt og
bjart veður austanlands. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast á Austurlandi.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðaustan 8-13 m/s suðvestan- og vestan-
lands, annars heldur hægari. Rigning með köflum, en bjart veður á
NA- og A-landi. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast norðaustantil.
VEÐUR
„Þetta var mjög skemmtilegt
en svolítið brjálað á köflum,
sérstaklega þar sem maður var
að ferðast mikið á stuttum
tíma og taka þátt í æfingum.
En það var gaman að skoða
þetta og sjá hvernig þessi
heimur er,“ segir Tryggvi
Snær Hlinason um þátttöku
sína í nýliðavali NBA-
deildarinnar í körfuknatt-
leik í Bandaríkjunum á
dögunum. »1
Skemmtilegt en
svolítið brjálað
„Ferillinn með landsliðinu hefur verið
skemmtilegur, ekki síst sigurstund-
irnar á Ólympíuleikunum í Peking
2008 og á Evrópumótinu í Austurríki
2010. Það hefur alla tíð verið til-
hlökkunarefni að mæta í leiki með
landsliðinu og kynnast
öllum þeim sem æft
hafa og leikið með
mér á þeim 15 ár-
um sem liðin
eru frá
mín-
um
fyrsta
lands-
leik,“ segir Ásgeir Örn
Hallgrímsson, sem
flytur heim í sum-
ar eftir 13 ára
feril sem at-
vinnumaður í
handknattleik.
»4
Alltaf tilhlökkun að
mæta á landsliðsæfingar
Það virðist ekki fylgja því nein sér-
stök gæfa að mæta til leiks á heims-
meistaramót sem ríkjandi heims-
meistari. Því fengu Þjóðverjar að
kynnast í gær þegar þeir féllu úr
keppni eftir tap, 2:0, fyrir Suður-
Kóreu í lokaleik sínum í F-riðli. Þjóð-
verjar eru þar með á heimleið. Tvenn-
ir síðustu meistarar á undan Þjóð-
verjum hlutu sömu örlög. »2
Þjóðverjar á heimleið
frá HM í Rússlandi
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra og Heather Alda Ireland, fyrr-
verandi ræðismaður Íslands í Van-
couver, verða heiðursgestir á
Íslendingadagshátíðinni á Gimli í
Kanada í ár. Katrín verður einnig
heiðursgestur á hátíð í Mountain í
Norður-Dakóta í Bandaríkjunum um
sömu helgi.
Viðburðurinn á Gimli er fjölmenn-
asta hátíð Manitoba ár hvert, en und-
anfarin ár hafa um 50.000 manns
heimsótt „höfuðstað“ Nýja-Íslands
við Winnipegvatn um verslunar-
mannahelgina, þegar skemmtunin
er.
Grant Stefanson, forseti Íslend-
ingadagsnefndar, hélt aftur til Kan-
ada síðastliðinn sunnudag eftir að
hafa tekið þátt í opinberri dagskrá
hátíðarhaldanna í Reykjavík 17. júní í
boði stjórnvalda, kynnt hátíðina
vestra fyrir ráðamönnum og spilað í
golfmótinu Arctic Open á Akureyri.
Hann segist meðal annars hafa átt
ánægjulega fundi með Katrínu
Jakobsdóttur forsætisráðherra og
Guðna Th. Jóhannessyni forseta.
„Á fundinum með forsætisráð-
herra ræddum við meðal annars sögu
landnáms Íslendinga í Norður-
Ameríku og sérstaklega merkilega
sögu Nýja-Íslands,“ segir Grant og
bætir við að þau hafi m.a. farið yfir
stöðuna í kanadískum stjórnmálum.
„Íslenskur“ fótbolti
Íslendingahátíðin fer nú fram í
129. skipti. Dagskráin er í föstum
skorðum og mikið lagt upp úr menn-
ingu og íþróttum auk skemmtana af
ýmsum toga. Sérstök hátíðardagskrá
er á mánudeginum, síðasta degi há-
tíðarinnar, og þá flytur Katrín minni
Kanada, en Heather minni Íslands.
„Sem fyrr er tilgangurinn að vekja
athygli á íslenskri menningu, vernda
hana og efla,“ segir Grant. „Öll dag-
skráin tekur mið af upprunanum og
ekki fer framhjá neinum að yfir-
bragðið er íslenskt.“
Framganga íslenskrar knatt-
spyrnu á alþjóðavettvangi hefur ekki
farið framhjá skipuleggjendum há-
tíðarinnar, en fótbolti hefur ekki mik-
ið verið stundaður á Gimli og í nær-
sveitum. Á hverju ári er bryddað upp
á einhverju nýju og að þessu sinni
ætla nokkrir Íslendingar að sýna
hvernig leika á „íslenska“ knatt-
spyrnu. Strandblakið verður á sínum
stað sem og koddaslagurinn, sem
gjarnan vekur mikla athygli. „Að
vanda blöndum við saman gamni og
alvöru,“ segir Grant, sem hefur kom-
ið sjö sinnum til Íslands, fyrst með
„öldungaliði“ í íshokkíi, sem kom, sá
og sigraði í alþjóðlegri keppni í
Reykjavík. „Það er alltaf jafn gaman
að koma til Íslands,“ segir keppnis-
maðurinn. „Vinahópurinn stækkar
með hverri heimsókn og orðaforðinn
eykst.“ Hann hælir Jaðarsvelli, golf-
vellinum á Akureyri, en segir hann
lúmskan og erfiðan. „Ég mæli með
honum en minni kylfinga á að taka
með sér nógu margar golfkúlur.“
Katrín heiðursgestur vestra
Íslendingadags-
hátíðin í Manitoba
í 129. skipti
Leiðtogar Hjónin Shannon og Grant Stefanson með Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra í Reykjavík.
Á Jaðarsvelli Grant, Björgólfur Jóhannsson og Eric, föðurbróðir Grants.