Skírnir - 01.09.2005, Síða 21
sem var.43 Þjóðólfur fjallaði um leigu landstjórnarinnar á Gullfossi
veturinn 1908. Þar sagði um kosti málsins:
Verða nú útlendingar, þeir, er ætla sér að nota fossinn, að semja við land-
stjórnina, og er því betri trygging fengin fyrir því en ella, að fossinn verði
ekki leigður til málamynda að eins, heldur til reksturs einhvers nytsemd-
ar-fyrirtækis, er landstjórnin getur þá haft eptirlit með, enda er oss kunn-
ugt um, að slíkir samningar við stjórnina munu verða auðsóttir með nægi-
legum tryggingarskilyrðum frá hálfu leigutaka, og ef hún sannfærist um,
að hugur fylgi máli og að eitthvað verði gert, sem verulegt gagn er að fyrir
landið og einstaka landshluta.44
Sömu skýringu gáfu menn í Stjórnarráðinu. Klemens Jónsson
kvað tilganginn með leigu landssjóðs á Gullfossi eingöngu hafa
verið þann að koma í veg fyrir að Gullfoss yrði leigður útlendingi
áður en fossalögin yrðu staðfest og öðluðust lagagildi.45
Ekkert var fjallað um náttúru svæðisins umhverfis Gullfoss
eða væntanlega röskun á landslagi nema hvað snerti hvamminn
vestan ár. Í þriðju grein samningsins var kveðið á um að hvamm-
urinn við fossinn skyldi vera undanskilinn öllu landnámi og jarð-
raski nema brýna nauðsyn krefði. Minnt var á að fossinn væri
áfangastaður ferðamanna í samningnum með þeim hætti að kveð-
ið var á um að leigutaki mætti ekki girða svo fyrir gangstíg niður
í hvamminn að fólk kæmist ekki að fossinum. Ekki kemur fram
hvort menn gerðu ráð fyrir að fossinn breyttist ekki að mun við
virkjun og yrði áfram aðdráttarafl fyrir ferðamenn eða hvort gert
var ráð fyrir því að fólk kæmi til að skoða virkjun fossins.46
En hvernig hljóðuðu virkjanaáformin varðandi Gullfoss og til
hvers átti að virkja hann? Því er til að svara að fossinn átti að nota
til að knýja saltpétursframleiðslu og fyrirhugað var að stífla ána
nokkuð fyrir ofan fossinn og leiða svo vatnið í stokk fyrir austan
gulls ígildi 251skírnir
43 ÞÍ Stj.Í. II. Dagb. 2 nr. 880. Eftirrit úr kaup- og veðbókum Árnessýslu, nr. 85.
Eftirrit af leigusamningi um Gullfoss, dags. 31. jan. 1908.
44 „Gullfoss leigður“, Þjóðólfur 28. febr. 1908.
45 ÞÍ Stj.Í. II. Dagb. 2 nr. 880. Greinargerð Klemensar Jónssonar, dags. 4. júní
1909.
46 ÞÍ Stj.Í. II. Dagb. 2 nr. 880. Eftirrit úr kaup- og veðbókum Árnessýslu, nr. 85.
Eftirrit af leigusamningi um Gullfoss, dags. 31. jan. 1908.
Skírnir haust 05 RÉTTUR 23.11.2005 13:52 Page 251