Skírnir - 01.09.2005, Page 36
ingar fékk Sigríður í formi aðdáunar fólks á afstöðu hennar í Gull-
fossmálinu, eins og sjá má af bréfum til hennar þegar hún var orð-
in öldruð kona. Þar voru henni færðar þakkir fyrir baráttuna
„gegn því að Gullfoss yrði í fjötra færður. Þetta dásamlega náttúr-
unnar fyrirbæri, sem auðgar sveit okkar svo mjög að tign og feg-
urð, í svipmóti og sögu“, eins og sagði í bréfi til hennar frá Félagi
Biskupstungnamanna.103 Í öðru bréfi var þjóðin sögð eiga henni
„skuld að gjalda fyrir einurð og festu og ást á landinu og þjóðinni,
svo sem birzt hefur í afstöðu hennar“.104
Segja má að framangreind ummæli séu eftirmæli um leiguna á
Gullfossi og stefnu landstjórnarinnar í þeim efnum og sýna að
dómur sögunnar er ekki alltaf samhljóma þeim viðhorfum sem
uppi eru á hverjum tíma. Eins og fram kom hér áður taldi stjórn-
in virkjun fossins vera í þágu landsmanna þar sem hún myndi hafa
í för með sér samgöngubætur og atvinnuuppbyggingu á Suður-
landi. Nokkrum áratugum síðar litu menn á áformin um virkjun
Gullfoss sem árás á einn glæsilegasta fulltrúa íslenskrar náttúru-
fegurðar. Í því sambandi kallaði Sveinn Björnsson almenningsálit-
ið til sem afl sem gæti og ætti að láta sig verndun fossins varða.
Taldi hann að Íslendingum muni sennilega „aldrei fara svo aftur,
að almenningsálitið rísi ekki upp á móti því, að farið verði að
hrófla við Gullfossi af manna höndum, svo eindregið, að ekki þyki
fært.“ Mun þá „barátta Sigríðar í Brattholti ekki hafa verið alveg
til ónýtis, og hún á það skilið, að hennar sé jafnan minnzt fyrir
landvörn sína“.105 Forsetinn sá þannig fyrir sér að almenningur í
landinu myndi standa vörð um Gullfoss og taka við þar sem Sig-
ríður í Brattholti hafði staðið föst á sínu. Sjálfri þótti Sigríði
verndun fossins ekki vera orðin trygg um alla framtíð eins og rak-
ið verður hér á eftir.
unnur birna karlsdóttir266 skírnir
103 ÞÍ E 67. Bréf frá Félagi Biskupstungnamanna til Sigríðar í Brattholti, dags. 20.
nóv. 1952.
104 ÞÍ E 67. Bréf frá Tímanum til Sigríðar í Brattholti, dags. 15. des. 1952.
105 Sveinn Björnsson, Endurminningar, bls. 76.
Skírnir haust 05 RÉTTUR 23.11.2005 13:53 Page 266