Skírnir - 01.09.2005, Page 40
kaup ríkissjóðs á fossinum. Hún gafst þó ekki strax upp og leitaði
til sama manns og flutt hafði mál föður hennar í fossmálinu, þ.e.
til Sveins Björnssonar, síðar forseta. Í bréfi til Sveins frá 1950 sagði
Sigríður að búið væri að taka vatn hennar til sölu án þess að talað
hefði verið orð við hana um hvort hún vildi selja eða ekki. Erindi
hennar við Svein var að spyrja hvort það væri á hans færi að láta
kaup ríkissjóðs á Gullfossi ganga til baka.118
Greinilegt er af öðrum bréfaskriftum Sigríðar vegna málsins að
hún treysti stjórnvöldum ekki fyrir fossinum. Gullfossi mátti ekki
raska eða eins og hún orðaði það: „Það er [að] hann fái að flæða af
hamrinum meðan loft og láð leyfir það, óseljanlegur, óhaggaður af
höndum manna til nota hverju nafni sem nefnist.“119
Sveinn Björnsson forseti gat ekki orðið við bón Sigríðar um að
láta kaup ríkissjóðs á Gullfossi ganga til baka. Hann skrifaði henni
og sagði það ekki á sínu færi. Það væri ráðuneytið en ekki hann
sem hafði gert kaupsamninginn og réði þessu. Sjálfur hefði hann
ekkert um það vitað fyrr en hann fékk bréf frá henni um málið.
Það er greinilegt að hann vildi minnka áhyggjur Sigríðar því að
hann sagði:
Ráðuneytið, þingið og þjóðin munu allir vera á sömu skoðun, sem þú:
Gullfoss má aldrei virkja nokkurntíma. Eins og nú er komið getur ráðu-
neytið ekki afhent fossinn nema með heimild Alþingis. Hvorki ráðuneyt-
ið né Alþingi hefir slíkt í huga. Þótt þetta breyttist einhverntíma, þá er
varla sennilegt að almenningur, þjóðin myndi þola það. Því hefir barátta
þín fyrir „Gullfossi“ ekki verið til ónýtis, og hennar mun jafnan minst og
verða til verndar náttúrufegurð fossins.120
Þessi orð féllu um miðja síðastliðna öld. Gullfoss skipaði þá
greinilega þann sess í hugum manna að við honum mætti aldrei
hrófla. Lítið fór fyrir umræðu um framfarir, mikilvægi fossins í
því sambandi og þörf landsins fyrir raforku. Fossinn hafði frið-
unnur birna karlsdóttir270 skírnir
118 ÞÍ E 67. Afrit af bréfi Sigríðar Tómasdóttur í Brattholti til herra forseta Sveins
Björnssonar, dags. 23. sept. 1950.
119 ÞÍ E 67. Bréf Sigríðar Tómasdóttur til séra Eiríks Þ. Stefánssonar á Torfastöð-
um, ódags.
120 ÞÍ E 67. Bréf Sveins Björnssonar til Sigríðar í Brattholti, dags. 20. des. 1950.
Skírnir haust 05 RÉTTUR 23.11.2005 13:53 Page 270