Skírnir - 01.09.2005, Page 41
helgi í hugum þeirra sem um þetta rituðu, friðhelgi sem hann hafði
ekki haft nokkrum áratugum áður, enda þótt hann hafi líka þótt
fagur þá. Ekki er hægt að fullyrða að Sigríður í Brattholti hafi
verið ein um að valda þessari hugarfarsbreytingu en hún var
tvímælalaust oddviti þessara skoðana í hugum margra eins og fram
kemur í áðurgreindum umsögnum ýmissa samferðamanna. Um-
mæli hennar um Gullfoss á árunum 1940 til 1950 heimila auk þess
að hún sé talin með þeim sem töluðu fyrir náttúrufriðun og gegn
virkjun á fyrri hluta 20. aldar, í þessu tilviki gegn virkjun Gullfoss.
Varð hún með þeirri baráttu sinni einna fyrst manna, ef ekki fyrst,
til að taka skýra afstöðu gegn virkjun vatnsfalls hér á landi og
mæla fyrir ævarandi friðun þess.
Áform um virkjun Hvítár
Áform um virkjun Hvítár voru ekki þar með úr sögunni þótt ekki
stæði til að virkja sjálfan fossinn. Sogið var fullvirkjað árið 1959. Í
kjölfarið var leitað að nýjum virkjanastöðum. Á árunum í kring-
um 1960 var lagður fram fjöldi virkjanaáætlana. Fjögur vatnsföll
þóttu vænlegustu kostirnir: Brúará í Biskupstungum, Hvítá í Ár-
nessýslu (við Hestvatn), Jökulsá á Fjöllum og Þjórsá. Niðurstað-
an varð sú að Þjórsá var virkjuð við Búrfell.121 Hvítá var þó ekki
útilokuð sem mögulegur virkjunarkostur. Á sjötta áratugnum og
fram á þann áttunda voru gerðar margar rannsóknir og áætlanir
um hagnýtingu árinnar. Meðal annars var rætt um þann möguleika
að leiða vatn úr farvegi Hvítár í grennd við miðlunarlónið í Hvít-
árvatni og síðan með skurðum og veitugöngum framhjá Gullfossi
og aftur með frárennslisgöngum frá stöðvarhúsi í farveg Hvítár
nokkuð neðan við fossinn, eða við Haukholt. Þessi virkjunarkost-
ur hefði minnkað vatnsmagn í Gullfossi og höfðu menn áform um
að vega á móti því yfir sumartímann, að hluta með framhjá-
rennslisvatni úr Hvítárvatni („ferðamannarennsli“) og að hluta
með því að veita auknu rennsli af öðrum svæðum í Hvítá ofan
fossins, t.d. af Tungufljótssvæðinu. Með þessu móti átti að halda
gulls ígildi 271skírnir
121 Sigurjón Rist, Vatns er þörf (Reykjavík 1990), bls. 25.
Skírnir haust 05 RÉTTUR 23.11.2005 13:53 Page 271