Skírnir - 01.09.2005, Page 88
Og í lok dómsins segir:
[Það] er engan veginn fyrir það að synja, að höfundur […] hafi til að bera
rithöfundarhæfileika. En það dugir honum skammt. Hann er svo gefinn
fyrir að lýsa kaldrænt lítilsigldum ónáttúrukindum í óþverralegu um-
hverfi – án þess að nokkurs staðar bjarmi fyrir manndómi eða mennileg-
um viðhorfum, að sögur hans verka ekki sem áróður nema gegn honum
sjálfum og því, sem hann kynni að hafa áhuga fyrir.
Þótt Guðmundi virðist Geir „kunna dável íslenzkt mál“ finnur
hann að stafsetningu hans þegar Geir slengir saman ýmsum smá-
orðum í eitt. Guðmundur kann heldur ekki við tilhneigingu höf-
undar að nota ástæðulaus grófyrði og slettur.
Guðmundur fjallar síðan um sögurnar eina af annarri og er
ekki par hrifinn. Athyglisvert er þó hvernig hann snýr túlkun
vinstrisinnaðra gagnrýnenda á annan veg á tveimur sögum og
virðist þannig svara gagnrýni Bjarna og Hannesar: „[Í Hráefninu]
er lýst þýzkum nazistum á leið heim úr fangelsi í Rússlandi, auð-
vitað hreinræktuðum illmennum […] sem á öllum tímum veljast
til vondra verka í þjónustu harðstjóra, ýmist á Spáni, í Þýzkalandi,
í Rússlandi eða Ungverjalandi.“
Stofnunina túlkar Guðmundur einnig á annan hátt en Bjarni
og Hannes:
Hún á að vera táknræn, og virðast lýsingar í flestum atriðum í samræmi
við sönnustu fregnir, sem fengizt hafa af ástandinu í Sovétríkjunum, hvort
sem sú er nú ætlun höfundarins eða ekki. En sagan er ómerkileg sakir
þess, að höfundinum láist að gæða persónurnar lífi og sérkennum.
Ekki stóð á því að ritdómi Guðmundar yrði snarlega svarað. Það
gerði Magnús Torfi Ólafsson í Birtingi og sagði m.a.: „Í ritdómi í
málgagni annars rithöfundafélagsins hefur sögum Geirs verið
fundið það til foráttu, að þær fjalli um lítilsigldar persónur. Slíkt
bókmenntamat hafði maður haldið að væri úr sögunni. Það er ein-
mitt styrkur þessara smásagna, að þar eru vandmeðförnu efni gerð
listaskil.“ Magnús dáist að því að enginn viðvaningsbragur er á
byrjandabókinni. Þarna er kominn „fram þroskaður rithöfundur,
gæddur öfundsverðu valdi yfir efni sínu og hnitmiðuðum stíl.
bragi halldórsson318 skírnir
Skírnir haust 05 RÉTTUR 23.11.2005 13:53 Page 318