Skírnir - 01.09.2005, Síða 107
KATRÍN AXELSDÓTTIR
Gunnlaugur Leifsson
og Ambrósíus saga
1. Ábendingarfornafnið sjá
Fornafnið sjá, nú þessi, hefur tekið allmiklum breytingum frá
fornu máli. Helstu breytingar á beygingardæminu eru þær að
myndin þessi tók við af sjá í nefnifalli karlkyni eintölu og nefnifalli
kvenkyni eintölu, og stofninn þess- lengdist í þessar- í þágufalli og
eignarfalli kvenkyni eintölu og eignarfalli fleirtölu. Þannig var í
fornu máli sagt sjá maður, sjá kona, frá þessi konu, til þessar konu
og til þessa manna/kvenna/barna en nú þessi maður, þessi kona, frá
þessari konu, til þessarar konu og til þessara manna /kvenna/ barna.
Þessar breytingar hófust allar snemma á 13. öld og var lokið á 14.
öld; fyrst breyttist nefnifall kvenkyni eintölu, þá nefnifall karlkyni
eintölu og loks lengdist stofninn (Katrín Axelsdóttir 2003).
Tafla 1 gefur nokkra hugmynd um gang breytinga í nefnifalls-
myndunum (Katrín Axelsdóttir 2003:52). Hún sýnir hlutfall sjá
og nýju myndarinnar þessi í nefnifalli karlkyni eintölu og nefni-
falli kvenkyni eintölu í ýmsum ritum frá 12. til 14. aldar. Rauntöl-
ur eru í svigum.
Tafla 1: Hlutfall sjá/þessi í ýmsum ritum frá 12. til 14. aldar
NF.KK.ET. NF.KVK.ET.
sjá þessi sjá þessi
Elstu handrit 100% (73) 0% (0) 100% (66) 0% (0)
Möðruvallabók 45% (40) 55% (49) 33% (21) 67% (43)
Fornaldars. Norðurl., 13. öld 38,5% (37) 61,5% (59) 31% (13) 69% (29)
Sturlunga 10,5% (4) 89,5% (34) 23,5% (9) 76,5% (29)
Fornaldars. Norðurl., um 1300+14. öld 29,5% (11) 70,5% (26) 22% (7) 78% (25)
Guðmundar saga Arngríms ábóta 10,5% (4) 89,5% (34) 3,5% (1) 96,5% (26)
Skírnir, 179. ár (haust 2005)
Skírnir haust 05 RÉTTUR 23.11.2005 13:53 Page 337