Skírnir - 01.09.2005, Page 182
oft tvímælis að vera of áberandi og opinskár. Fyrir nokkrum árum
stofnsetti íhaldsöm hugmyndaveita í Fíladelfíu, sem heitir Middle
East Forum og er stjórnað af Daniel Pipes, vefsíðu er heitir
Campus Watch. Tilgangur hennar, eins og nafnið gefur til kynna,
er að fylgjast með umræðunni um Mið-Austurlönd í háskólum
Bandaríkjanna. Campus Watch vill standa vörð um það að um-
ræðan sé „sanngjörn“ og í „jafnvægi“, sérstaklega þegar kemur að
gagnrýni á utanríkisstefnu Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum
og ekki síst hvað varðar málefni Ísraels. Þeir aðilar sem fara á
„svarta listann“ geta átt von á því að fá mikið af ógeðfelldum
tölvupósti og að viðeigandi háskólayfirvöld fái bréf um „um-
deilda“ háskólakennara. Þessi samtök, og önnur álíka, hafa til
dæmis gert nýlega atlögu að Rashid Khalidi og Joseph Massad,
sem báðir kenna við Columbia-háskólann í New York, og gert
þeim lífið leitt. Þetta er skipulögð starfsemi sem vinnur að því að
ákveðin mál og ákveðnir einstaklingar verði „umdeildir“ og þess
vegna ekki trúverðugir lengur og þaðan af síður hlutlausir fræði-
menn.
Þetta er vissulega gert til að bæla niður umræðuna og er tilraun
til að koma í veg fyrir að ýmis mál og málaflokkar komi upp á
yfirborðið. Þessi samtök krefjast þess að umræðan sé ávallt „hlut-
laus“. Í sjálfu sér er ekkert sérkennilegt við það. En skilgreining
þeirra á hlutleysi byggist á því að þeirra tiltekna sjónarmið sé
ávallt tekið með í reikninginn. Skoðanir þeirra eru þó hápólitísk-
ar. Margir kæra sig hins vegar ekkert um að taka sífellt tillit til
sjónarmiða þeirra og kjósa því frekar að tjá sig ekki um ákveðin
málefni og forðast þau sem heitan eldinn. Þetta hefur því þau áhrif
að sum málefni eru ekki sett á dagskrá, eru ekki rædd á opinber-
um vettvangi og þar með er óbreytt ástand tryggt.
Fræðimenn Mið-Austurlanda eru því í erfiðri aðstöðu, ekki
síst ef ákvæði föðurlandslaganna eru tekin bókstaflega. Einkum á
þetta við um útlendinga í Bandaríkjunum, sem njóta ekki sömu
réttinda og bandarískir ríkisborgarar og bera algeng múslimsk
nöfn. Ummæli á opinberum vettvangi geta verið túlkuð á ýmsa
vegu og kunna að teljast hættuleg þjóðaröryggi Bandaríkjanna,
eins og föðurlandslögin skilgreina það. Margir hafa því mjög góða
magnús þorkell bernharðsson412 skírnir
Skírnir haust 05 RÉTTUR 23.11.2005 13:54 Page 412