Skírnir - 01.09.2005, Page 227
„Og eina litla kók handa honum Sigmari hérna,“ segir hún. (Nætur-
luktin 18)
Honum hlýnar svo um hjartarætur að þegar hann kemur út í jökulkaldan
bílinn sýpur hann á kókinu sínu og hugsar „um gamla sumardaga með
henni mömmu.“ (Næturluktin 18)
Sjá má að Sigmar hagræðir sannleikanum þegar honum finnst erfitt að
ræða það sem honum liggur á hjarta. Lýsing hans á veruleikaflótta Ágústs
í Gangandi íkorna bendir til að barnið kríti liðugt en þó má sjá fleiri vís-
bendingar í báðum bókunum um að fóstri hans eigi við þunglyndi að
stríða. Hann virðist til dæmis vera ákaflega ómannblendinn; bíður í bíln-
um, skjálfandi af kulda, á meðan Björg rekur erindi sín í þorpinu.
Ágúst hefur ekki komið fram í allan dag. Björg segir að hann sé veik-
ur og bannar mér að fara inn til hans. Hún færir honum mat á tré-
bakka, og kringum diskinn og glasið skoppa gular töflur. Ég veit að
hann liggur í hvítri náttreyju og les bók úr ritsafni Theresu Charles.
Þegar dimmir kveikir hann á lampa sem er með sívalan skerm, alsett-
an upphleyptum djúpfiskum. Skermurinn snýst, fiskarnir svamla,
Ágúst les við grænleita birtuna, andar með þungum sogum. (Gang-
andi íkorni 21–22)
Efasemdir hljóta að vakna um sannleiksgildi þessarar frásagnar. Ágúst
virðist ekki sú manngerð sem dundar sér við að lesa ástarsögur og við sem
munum eftir lömpum þeirrar gerðar sem þarna er lýst, vitum að ekki var
mikil lesbirta af þeim. Til að grafa enn frekar undan frásögninni þykist
sögumaður nokkru síðar geta séð í hug Ágústs, en þetta er eina skiptið
sem slíkt gerist. Í Næturluktinni kemur í ljós að bóndinn les einkum
ferðasögur heimskautafara (29) en Björg les sögur Theresu Charles „og
fleiri góða höfunda.“ (19)
Milli bókanna tveggja eru skörp skil eins og hér hefur komið fram. Þegar
Næturluktin hefst hefur orðið grundvallarbreyting á viðhorfi Sigmars til
hjónanna og dvalar hans í sveitinni. Hann virðist nú vera sáttur við vistina.
„Þú verður hérna hjá okkur, drengur,“ segir Björg við mig meðan ég
sötra morgunkaffið, sem er mjólkurminna en áður af því ég er búinn
að eiga afmæli. Björg segir að nú geti ég drukkið almennilegt kaffi
einsog aðrir á þessu heimili, enda sé nóg annað að gera við mjólkina.
Ég hef ekkert á móti því. Það er að segja, ég hef ekkert á móti því að
ugla sat á kvisti 457skírnir
Skírnir haust 05 RÉTTUR 23.11.2005 13:54 Page 457