Skírnir - 01.09.2005, Síða 244
er á stórfenglegt landslag, þá er das Unheimliche lýsing á þeirri til-
finningu sem vaknar innra með okkur þegar við horfum á eitthvað
kunnuglegt og heimilislegt sem vekur upp óþægilegar kenndir.
Eitthvað sem hefði betur mátt kyrrt liggja.19
Myndheimur Haraldar varpar því ljósi á mótsögnina sem felst
í skilgreiningu Freuds á fyrirbærinu Heimlich og Unheimlich.
Verk hans eru sprottin af því hversdagslega og heimilislega að því
leyti að þau tengjast þekktu umhverfi, almennum tilfinningum svo
sem hræðslu, sorg og trega, og líkamanum sjálfum sem er vissu-
lega það umhverfi sem stendur öllum næst. Um leið eru þau
óheimilisleg, að því leyti að þau vekja óhugnað, svima eða jafnvel
grun um glæp og falla þannig inn í fagurfræðilega orðræðu tíma-
bilsins um þetta undarlega flöktandi fyrirbæri.
Myrkrið hefur fylgt okkur eins og skugginn
Óháð vitsmunalegri greiningu, tilfinningalegri samsvörun og upp-
lifun áhorfandans af einstakri mynd eða af innsetningunni í heild
á Þjóðminjasafninu, þá er einnig hægt að líta á verkið The Story of
Your Life sem samnefnara fyrir þau viðfangsefni sem Haraldur
hefur verið að fást við í listsköpun sinni undanfarin ár. Myndirn-
ar vísa leiðina inn í aðra myndheima hans, innsetningar, teikning-
ar, skúlptúra og önnur verk, jafnvel ritverk, en Haraldur hefur gef-
ið út bæði skáldsögu og ljóð.
Ljósmynd af dreng í syrpunni The Story of Your Life (hann
stendur við torræð skilti í óskilgreindu erlendu landi) kallast á við
verk Haraldar Anatomy of Feelings (1999)20, þar sem Haraldur
notaði pappír grasafræðingsins til að draga upp útlínur tilfinninga
með sams konar táknum og hægt er að greina á skiltinu. Náttúran
er sínálæg; bæði hin ytri áþreifanlega náttúra í formi ljósmynda af
hverasvæðum, trjám, blómum, heitum lækjum eða snævi þöktum
æsa sigurjónsdóttir474 skírnir
19 Sigmund Freud, L’inquiétante étrangeté et autres essais, París: Folio/Gallimard
1988. Ritgerð Freuds hefur valdið miklum heilabrotum. Fyrirbærið kveikti í
fræðimönnum á sjöunda og áttunda áratug 20. aldar og opnaði fyrir gáttir afar
frjórrar orðræðu sem hér verður ekki rakin.
20 Sýningin var í Oneone galleríi, Laugavegi 48b.
Skírnir haust 05 RÉTTUR 23.11.2005 13:54 Page 474