Breiðfirðingur - 01.04.2002, Blaðsíða 34
32
BREIÐFIRÐINGUR
Það var eftir jarðarför, en ég man ekki hve langt var þá liðið
frá henni. Ég átti eitthvert erindi að Hömrum. - Pabbi minn,
sem þá var á Hömrum að hjálpa ekkjunni við skepnuhirðingu,
var staddur þar þennan dag.
Það var hláka þennan dag og snjófönn að síga og leysti
þetta snjóríki, sem var ofan á harðsköfnum þiljunum. Ég reið
upp með girðingunni rétt undan staðunum, sem Lárus hafði
háð sitt dauðastríð.
Nokkru ofar tók ég eftir förum innan við girðinguna og fór
að athuga þau. Þama var stór þúfnablettur og lágu sporin (sem
voru sjáanlega gömul) innan af mýrarbletti og út í þetta þúfna-
stykki í stefnu þvert á girðinguna og til baka aftur. Ég mældi
frá sporunum að girðingunni, og það voru fimm, heldur stutt
skref. Þar hafði þá Lárus heitinn komist næst því að finna eitt-
hvað, sem hefði getað komið honum til þess að átta sig eftir
að hann komst í girðinguna.
Ég fór að reika þarna um og sá greinilega harðspora á harð-
skafinni þilju, eins og tuttugu og fimm til þrjátíu faðma frá
girðingunni. Þar hafði markað undan yl á bletti, sem var eins
og tuttugu faðma langur og átta til tíu faðma breiður. Þarna
hafði verið sígengið frá austri til vesturs - spor við spor. - Þá
hefur stormurinn verið á hlið. - Ég sagði ekki frá þessu, það
gerði engum gagn en gat vakið meiri sárindi hjá þeim sem
voru nógu sárir fyrir.
Kindurnar fjórar, sem Lárus heitinn var að leita að, fundust
strax, þegar tími vannst til að leita að þeim. Þær voru í
Selhæðunum fram undir Hólmavatni.
Það sáust merki í brotasnjónum að Lárus hefði fundið þær,
en lítið getað fært þær úr stað vegna ófærðar. Öll merki, sem
sáust, víkja að sama punkti. Hann hefur verið að fást við að
færa kindumar eftir að frostskelin kom á lognfennið og þá
hefur verið kominn hörkubylur og myrkur, þegar hann gekk
frá þeim. Hann hefur af ráðnum hug slegið undan veðri, ofan
að Laxá, af því hann vissi að áin var auð.
Hann hefur alltaf haft girðinguna í huga og honum tókst
með ágætum að komast inn um hliðið. Þegar hann fór í gegn-