Breiðfirðingur - 01.04.2002, Blaðsíða 50
48
BREIÐFIRÐINGUR
in, frá því að ég fór frá Noregi, svo að ég var nú farinn að
venjast yfirheyrslunum. Þessi rannsókn var nákvæmust, að
mér fannst, því að nú voru öll föt rannsökuð, sem ég var í.
Vösum snúið og gáð fram í tær á skóm og sokkum. Það átti
svo sem að gæta þess, að ég væri hvergi með nein leyniskjöl í
fórum mínum.
„Þetta er nú það vanalega,“ sagði skipstjóri, um leið og
hann benti mér á koju sína og sagði mér að liggja þar. Hann
sagðist lítið sofa á þessum ferðum, leggja sig aðeins stund og
stund á bekknum, sem var upp við þilið skammt frá kojunni.
Skipið var komið skammt frá höfninni, þegar skipstjóri
spurði mig, hvaðan ég væri af Islandi og hvers vegna mér lægi
svona mikið á að komast heim. Einhverjar skýringar gaf ég á
þessu öllu, og virtist skipstjóri láta sér þær nægja.
„Hefur þú verið á sjó?“ spurði skipstjóri. „Nei,“ sagði ég,
„ekki nema fjóra sólarhringa, þegar ég fór til Noregs 1938“.
„Það er slæmt,“ sagði hann, „því að þetta skip er aðeins rúmar
400 lestir og fer illa í sjó, enda oft vond veður á þessari leið á
þessum tíma árs.“ „Auk þess eru kafbátar Þjóðverja hér neð-
ansjávar, en þeir hafa aldrei átt neitt við mig, og ég trúi því
heldur ekki, að þeir geri það,“ bætti hann við. Ég hlustaði með
athygli á þetta allt, en fann þó ekki til kvíða. „Jæja, þá fáum
við okkur að borða,“ sagði skipstjóri. Kokkurinn hafði gott
kjöt og ágæta kjötsúpu á borðum. Gerði ég matnum góð skil
og lagði mig síðan. Stuttu síðar var skipið farið að velta svo
mikið, að ég seldi upp matnum og hélt nú kyrru fyrir. Skip-
stjóri kom af og til og rabbaði við mig, en stundum lagði hann
sig, en aldrei lengi í einu.
„Þetta er mynd af fjölskyldu minni,“ sagði hann og benti á
stóra mynd, sem á voru hjón með fjórum sonum og þremur
dætrum. Þetta var myndarleg og glaðleg fjölskylda. Hann
sagði mér frá sonum sínum og dætrum. Þessi mynd var hon-
um áreiðanlega meira virði en ég gerði mér þá í hugarlund.
Það, sem stóð að baki henni, konan og bömin, var honum
styrkur á hættusömum sjóferðum. Skipstjóri var hamingju-
samur maður. Hann sagði mér frá mörgum hættusömum sjó-