Breiðfirðingur - 01.04.2002, Page 78
76
BREIÐFIRÐINGUR
Guðrún Vala Elísdóttir.
mörkuðum. Hann var villingur í skóla, rekinn úr tveimur ung-
lingaskólum og féll á sex prófum af sjö á síðasta ári. Eftir það
vann hann ýmsa vinnu, s.s. við uppþvott á hóteli, í sögunar-
myllu, skógarhögg, við færiband í verksmiðju, gróf brunna og
fór til sjós. Þessi lífsreynsla hans varð til þess að hann fór að
leita svara við spumingunni „Hvers vegna eru sumir farsælli
en aðrir?“
Tracy komst að því að þekkingin opnar allar dyr og að hann
gat lært allt sem hann þurfti að vita til þess að öðlast vel-
gengni í hverju sem hann kærði sig um. Það tók hann tuttugu
ár að vinna sig úr fátækt og frá peningaáhyggjum. Ennfremur
gerði hann sér grein fyrir því að ef hann tæki það sem hann
hafði lært um farsældina, saman í kenningu, gæti hann gert
öðrum kleift að spara sér bæði fé og áralangan þrældóm. Síð-
an þá hefur Brian Tracy sett saman námskeið og skrifað
margar bækur sem allar lúta að því að ná árangri á einhverjum
eða öllum sviðum lífsins.
I bókinni Hámarksárangur er manni kennt að bæta líf sitt,
ná markmiðum, og möguleikar manns skýrðir til að komast
áfram og öðlast lífshamingju.
í fyrsta kafla teflir Tracy fram þessari gullnu reglu „Hver er
sinnar gæfu smiður“ og segir að alltaf megi ná betri árangri,