Breiðfirðingur - 01.04.2002, Page 85
Hornstrandir 2001. Ferðadagbók
Ferðafrásögnin mín
Boga , Bjarni, Hildur Boga,
Böggý, Siggi og Sigurður yngri.
20 júlí 2001
Leggjum af stað kl 11:00 fyrir hádegi í meinlætis veðri, stopp-
um í Borgamesi. Þá liggur leiðin yfir Bröttubrekku, yfir í
Dalina mína og síðan í Búðardal. Þar hittum við Pétur og
Kristínu Unu á leið í Gufudal ásamt fleirum til að veiða. Síðan
er ekið yfir Svínadal til Saurbæjar, þar sýni ég Böggý og
Sigga eldri og yngri sveitina mína, bendi þeim á Tjaldanesið.
Það er gaman að bruna yfir Gilsfjörð, þar er fjaran óvenju
mikil þennan daginn og mig dauðlangar í söl þegar ég lít yfir
allar eyjamar og Breiðafjörðinn. Eyjamar eru eins og hillingar
í Sahara. Það skot gengur að Melgraseyri við Isafjarðardjúp í
logni og mildu veðri, komum aðeins við í Nauteyrarlaug til að
sýna samferðarfólkinu. Snævar og Anna tóku á móti okkur, en
þau voru á fullu í heyskap þegar okkur bar að garði. Það er
einstakt að koma þangað okkur öllum tekið með opnum
örmum og mat fyrir allan skarann. Anna er mikil handavinnu-
og listakona og er hún búin að fylla heimilið af fallegum hlut-
um sem hún hefur gert sjálf. Mikið leið manni vel þarna hjá
þeim. Báturinn átti að koma kl 20:00 og sækja okkur að Mel-
graseyri, það drógst aðeins og kom hann um kl 21:30. Snævar
keyrði okkur niður að bryggju og fylgdi okkur úr hlaði. Það
sómdi sér vel að vera í Önnu, sómabáti þeirrra Homstranda-
ferða með Henrý skipstjóra við stýrið.