Breiðfirðingur


Breiðfirðingur - 01.04.2002, Page 123

Breiðfirðingur - 01.04.2002, Page 123
MINNING 121 1947. Hann varð síðan verkstjóri hjá stofnuninni við hafnar- gerðir víða urn land. Því starfi gegndi hann þar til hann lét af störfum fyrir aldurs sakir 1991, að undanskildum tveimur ár- um er hann var sveitarstjóri í Stykkishólmi, 1966-68. Bergsveinn hóf sambúð árið 1946 með Sigrúnu Sigurðar- dóttur, f. 23. nóvember 1920. Foreldrar hennar voru Sigurður Einarsson, bóndi í Gvendareyjum á Hvammsfirði, og Magnús- ína Guðrún Bjömsdóttir kona hans. Bergsveinn og Sigrún slitu samvistir 1983. Börn þeirra eru: Brynja f. 11. ágúst 1947, Sigurður f. 22. júní 1949, Lára, f. 20. ágúst 1953, Alma, f. 1. september 1955 og Freyja, f. 8. janúar 1958. Afkomendurnir eru orðnir 26 talsins. Bergsveinn var mikill áhugamaður um bridds og spilaði um áratugaskeið með Breiðfirðingafélaginu. Hann var félagi í Verkstjórafélagi Reykjavíkur og sat í trúnaðarráði þess frá 1976-88. Hann stundaði söfnun örnefna í Breiðafirði um langt skeið og skráði niður mikinn fróðleik um þau. Hann var alla tíð tengdur hinu breiðfirska umhverfi sterkum böndum. Trillu átti Bergsveinn sem hann geymdi í Stykkishólmi. „Hann þekkti að sjálfsögðu hverja eyju og gat vísað á byggðarleifar hennar, vatnsból, slægjur, mótak og vissi hvaða lendingu skyldi nota í hverri vindátt. Auk eyjanna sjálfra áttu hólmar og sker sína sögu, ýmist kátlega eða dapurlega, sannsögulega eða uppdiktaða og færða í stíl af listfengum sagnamanni. Þá var einkar lærdómsríkt að kynnast í návígi þeim hættum og þeirri gjörþekkingu sem þurfti til að stýra rétt milli einstakra skerja.“ Þetta segir Árni Bjömsson þjóðháttafræðingur í minningar- grein um Bergsvein. Eftirtaldar greinar ritaði Bergsveinn í Breiðfirðing: Eyja- flutningar (1990); Bátasmíðastöð Breiðfirðinga Bátalón hf: fyrstir til að smíða skip til útflutnings (1997); Oddbjamarsker (1998); Ein á báti (1998); Magðalena Lára Kristjánsdóttir 100 ára (1998); Síðasti Sauðeyingurinn (1999); Stóra flyðran (1999); Lárus Skúlason (2002) og Minningar úr ævidagbók- inni, Frostdynkir (2002). Hann var einnig fundvís á forvitni- legt efni frá öðrum og kom mörgu því á framfæri í ritinu.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Breiðfirðingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Breiðfirðingur
https://timarit.is/publication/1303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.