Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2018, Síða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2018, Síða 31
Jólahlaðborð 5. október 2018 KYNNINGARBLAÐ ÚT Í BLÁINN – PERLUNNI: Brot af því besta í íslenskri og erlendri villibráð Við bjóðum upp á brot af því besta í íslenskri og erlendri villibráð fyrir jólin. Við leikum okkur talsvert með klassíska jólarétti og jólahefðir. Perlan hefur í gegnum tíðina verið einn helsti staðurinn fyrir Íslendinga að hittast og njóta samverunnar á aðventunni og ætlum við að halda því áfram. Við munum t.d. heiðra hefðina með því að gera okkar útgáfu af frægri rjúpusúpu sem boðið var upp á hér á árum áður,“ segir Atli Þór Erlendsson, yfirmatreiðslumaður á veitingastaðn- um Út í bláinn, sem er í Perlunni. Atli segir að ásamt þessu hefð- bundna sem finna má á jólahlaðborð- um sé áhersla lögð á nýjungar og að mæta ólíkum þörfum: „Við höfum alveg frá opnun stefnt að því að bjóða upp á eitthvað fyrir alla og því má nefna að við bjóðum ekki bara upp á þungar steikur heldur líka fjölbreytta græn- metisrétti.“ Veisla á hverjum degi Jólahlaðborðið hefst þann 16. nóv- ember og er í boði daglega eftir það alveg fram til Þorláksmessu. Stað- urinn er opnaður kl. 18 öll kvöld. Verð sunnudaga til miðvikudaga er 8.500 kr. á mann en fimmtudaga til laugar- daga 9.900. Sérvalin vín kosta 7.200 á manninn. 50% afsláttur er fyrir börn 6 til 12 ára og frítt fyrir börn 5 ára og yngri. Matseðill jólahlaðborðsins: FORRÉTTIR Brauðkarfa frá Kruðeríi, súrdeigsbrauð, sólkjarnabrauð, laufabrauð og þeytt smjör Rjúpusúpa 2018 Graskerssúpa (vegan) Bökuð dönsk lifrarkæfa með steiktum sveppum og stökku beikoni Grafin rjúpa með kjúklingalifrarparfait og rifsberjum Rauðrófusalat (vegan) Sætar kartöflur með trönuberjum og hnetum (vegan) Jóla-kryddsíld Heitreyktur lax Grafinn lax Blandað skelfisksalat Hreindýrabollur í bragðmikilli villi- bráðarsósu Villibráðar vol-au-vent AÐALRÉTTIR Jólakrydduð purusteik Hægelduð kalkúnabringa með salvíu og rósmaríni Grilluð rauðhjartarsteik Heileldað nauta rib-eye Hin margrómaða hnetusteik að hætti Kela (vegan) Grillað toppkál með poppuðu kínóa og blóðberg (vegan) Rauðvínssósa Villisveppasósa (vegan) Okkar eigin rauðkál, eplasalat, steikt- ar kartöflur og grænmeti Glæsilegt eftirréttahlaðborð unnið af matreiðslumönnum staðarins í góðu samstarfi við bakarameistara og köku- gerðarmenn Kruðerís. Vefsíða: https://utiblainn.is/

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.