Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2018, Blaðsíða 30
Heilsa 21. september 2018KYNNINGARBLAÐ
Það gengur yfirleitt vel hjá mér og mínum viðskiptavinum að sameinast um markmið en
margir átta sig ekki á því að þetta
tekur tíma, fólk vill árangur
strax. Ég reyni að breyta
hugarfarinu úr kapp-
hlaupi í lífsstílshugsun,“
segir Daníel Fjeldsted,
einkaþjálfari hjá Reebok
Fitness.
Daníel er ÍAK einka-
þjálfari með fjögurra
ára reynslu af einka-
þjálfun, ásamt því
að hafa stýrt ýmsum
námskeiðum og hópum
hjá Reebok Fitness sem
og annars staðar. Daníel
er einnig ÍAK styrktarþjálf-
ari og hefur til dæmis séð
um styrktarþjálfun hjá
yngri flokkum ÍR í
knattspyrnu. Dan-
íel leggur mikla
áherslu á
að afla
sér
nýrrar þekkingar á sviði þjálfunar
til að geta boðið iðkendum sem til
hans leita upp á það besta í faginu
hverju sinni. Hann hefur meðal
annars sótt námskeið í
Bandaríkjunum tengd
styrktarþjálfun.
Viðskiptavinir
Daníels eru á öllum
aldri, allt frá 13 ára
knattspyrnuiðkend-
um til fólks á sjö-
tugsaldri. Yngstu
þátttakendurnir fá
ómetanlega þekk-
ingu á líkamsrækt
og æfingatækni sem
veitir þeim forskot inn
í framtíðina. Dan-
íel leggur jafnframt
þunga áherslu á mikil-
vægi þess að stunda
líkamsrækt á
efri árum:
„Styrktarþjálfun er fyrir alla og ekki
síður mikilvæg á efri árum þar sem
að hún getur bætt lífsgæði fólks
gífurlega.“ Margir leita til hans
vegna ofþyngdar og þar
leggur Daníel áherslu á
langtímaárangur og að
fólk tileinki sér breyttan
lífsstíl til frambúðar:
„Ef fólk nær að tvinna
saman gott mataræði,
hreyfingu, góðan svefn
og að lágmarka stress
í sínu lífi þá mun það
ná árangri. Þetta er ekki
flókið en getur reynst fólki
erfitt.“
Einkaþjálfun, fjarþjálfun og
Hybrid-þjálfun
„Það er mikilvægt að hafa pró-
gramm þegar maður fer í ræktina
og stefna að einhverju markmiði
því annars er hætta á að fólk gefist
bara upp,“ segir Daníel en hann
býður upp á þrjár þjónustuleið-
ir. Langalgengast er að fólk velji
einkaþjálfun en þá æfir það með
einkaþjálfaranum tvisvar til þrisvar í
viku. Hins vegar er hægt að æfa hjá
honum í litlum hópum og geta 2–4
sameinast í hópþjálfun.
Fjarþjálfun hentar þeim sem vilja
æfa sjálfir en fá stuðning og pró-
gramm til að fara eftir. Sumir velja
fjarþjálfun frekar en einkaþjálfun
þar sem fólk er ekki bundið við
ákveðinn æfingatíma.
Hybrid-þjálfun er áhugaverð
nýjung á markaðnum en þar er
tvinnað saman einkaþjálfun og
fjarþjálfun. „Þessi hugmynd kom frá
einum af viðskiptavinum mínum sem
hefur verið í einkaþjálfun hjá mér í
nokkur ár og er blanda af því besta
úr einkaþjálfun og fjarþjálfun og er
einnig ódýrari kostur en einkaþjálf-
un.“ Viðskiptavinur hittir
þá þjálfarann þrisvar
sinnum í fyrstu vikunni en næstu
þrjár vikurnar æfir hann sjálfur á
þeim tíma sem honum hentar eftir
prógramminu frá þjálfaranum sem
farið var yfir í fyrstu vikunni.
Nánari upplýsingar um þetta
og verðlista er að finna á vefsíðu
Daníels, dfthjalfun.is, og þar er líka
hægt að hafa samband og panta
sér þjónustu hans.
Sem fyrr segir þjálfar Daníel í
Reebok Fitness sem rekur mjög
vel útbúnar líkamsræktarstöðvar
víðs vegar um höfuðborgarsvæðið.
Brátt verður ný og glæsileg Reebok
Fitness-stöð opnuð í Lambhaga. Sjá
nánar á reebookfitness.is.
DANÍEL FJELDSTED EINKAÞJÁLFARI:
Áhersla á langtímaárangur