Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2018, Blaðsíða 60
60 21. sept 2018
Í Shoreditch er afar mikilvægt að vera
töff. Því kemur það sér vel að það er
ekki hægt að gista á meira töff stað en
CitizenM-hótelinu í hverfinu. Um er að
ræða litla hótelkeðju sem er aðeins í ellefu
borgum í veröldinni en auðvitað bara mjög
töff borgum, til dæmis á Times Square í
New York, í Taipei, Amsterdam og Kúala
Lúmpúr, svo einhverjar borgir séu nefndar.
Staðsetning hótelsins er frábær en það
eru opnu rýmin, mótakan og barinn,
sem eru framúrskarandi. Þar er mikið
líf og þægilegt að setjast niður með
drykk og njóta lífsins. Sjálf herbergin
eru frekar lítil en afar vel hönnuð.
Þar er stórt og þægilegt rúm krúnudjásnið
en einnig sú staðreynd að öllu rafmagni,
hljóði og birtu er stjórnað úr handhægri
spjaldtölvu.
Rúsínan í pylsuendanum er að tveggja
manna
herbergi kostar um 20 þúsund krónur á
hverja nótt sem verður að teljast hagstætt
verð á góðu hóteli í London.
FÓLK - FERÐALÖG
Shoreditch í London er perla
sem allir verða að heimsækja
M
argir Íslendingar sem
heimsækja London
reglulega eiga það til að
dveljast um of í sömu
hverfunum, til dæmis Soho,
Covent Garden, Kensington,
Mayfair, Marylebone og Notting
Hill. London hefur upp á margt
annað að bjóða og því getur verið
skemmtilegt að brjótast úr viðjum
vanans og heimsækja önnur hverfi
stórborgarinnar. Eitt slíkt hverfi er
Shoreditch-hverfið í London sem
er falin perla í stórborginni.
Á 8. og 9. áratug síðustu ald-
ar var Shoreditch í niðurníðslu og
þar var fátt sem gladdi augað. Fast-
eignaverð var lægra þar en annars
staðar og það er gömul saga og ný
að slík hverfi fara smátt og smátt
að vekja athygli fjöldans. Ungt
fólk og listamenn fóru gera sig
þar heimkomna og skyndilega var
Shoreditch orðið paradís „hipster-
anna“.
Shoreditch liggur alveg við
fjármálahverfi London, „City“.
Andstæðurnar verða vart meiri
því flestar byggingarnar í Shore-
ditch eru lágreistar og skreytt-
ar götulistaverkum sem síðan
renna saman við ógnarhá glerhýsi
mammons. Það gerir að verkum
að það mallar í suðupotti mannlífs
í hverfinu.
DV lagði línurnar fyrir stór-
kostlega helgarferð til Shoreditch
í London.
Stórkostlegur markaður sem hefur verið starfræktur í um 350 ár. Markaðurinn var
endurhannaður í október 2017 og er óhætt að fullyrða að það hafi heppnast vel. Litlir
áhugaverðir verslunarbásar í rólegu umhverfi og allt um kring eru frábærir matarvagnar
sem eru hver öðrum betri. Þegar maður gengur um markaðinn er ekki hægt annað en
að skammast sín fyrir Kolaportið íslenska. Óhætt er að mæla með „pulled pork“-
samlokunni frá Dirty Bagels.
Við Bethnal Green Road stendur Boxpark-verslunarmiðstöðin, sú fyrsta sinnar tegundar.
Hún var opnuð árið 2011 og síðan endurhönnuð árið 2017. Um er að ræða verslunarmið-
stöð sem er búin til úr um 60 gámum sem eru haganlega tengdir saman. Þar eru um 27
skemmtilegar búðir og 19 veitingastaðir og barir, hver öðrum skemmtilegri. Halloumi-
-franskarnar á Poptata eru syndsamlega góðar.
Við Great Eastern Street, skammt frá Box-
park, er hin stórskemmtilega matarhöll
Dinerama sem nýtur mikilla vinsælda.
Þar eru tæplega fimmtíu veitingabásar,
frekar en staðir, sem bjóða upp á mat og
drykk frá öllum heimshornum. Tónlistin
er nokkuð hávær þarna og staðurinn er
smekkfullur allar helgar. Nauðsynlegt er
að bragða á bao bun-samlokunum frá
Yum Bun.
Einn besti veitingastaðurinn í Shoreditch
er íransk/indverski veitingastaðurinn
Dish oom, sem er við Boundary Street.
Ekki er hægt að panta borð en gestir geta
vænst þess að bíða í 1–1½ klukkustund eft-
ir borði. Það er þó fullkomlega þess virði.
Ef lambaheili (behja) er á matseðlinum
þá má enginn láta það ljúfmeti framhjá
sér fara.
Það er afar skemmtilegt að ganga niður Brick Lane og skoða það sem fyrir augu ber,
sérstaklega úrvalið af indverskum og bangladesskum matsölustöðum. Þar eru margir
gimsteinarnir en einnig margir forarpyttirnir sem ber að varast. Einn af þeim allra bestu
og vinsælustu er veitingastaðurinn Aladin sem fékk heiðursútnefningu „besta karríhúsið
á Brick Lane“ og flaggar því við hvert tækifæri.
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is Gisting:
Dishoom
Dinerama:
Boxpark:
Rölt niður Brick Lane
Herbergi á
CitizenM-hótelinu
Bar og
setustofa á
CitizenM
Old Spitalfields Market: