Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2018, Blaðsíða 6
6 21. sept 2018FRÉTTIR
NÆSTI KAFLI HEFST HÉR
Bjó
ðu
m
up
pá
frít
t s
ölu
ve
rðm
at
LAXATUNGA 40, 270 MOSFELLSBÆR
54.900.000 kr.
Tegund
Stærð
Herbergi
Raðhús
203 M2
6
Bjó
ðu
m
up
pá
frít
t s
ölu
ve
rðm
at
BREIÐAVÍK 11, 112 REYKJAVÍK (GRAFARVOGI)
43.500.000 kr.
Tegund
Stærð
Herbergi
Fjölbýli
109 M2
3
Bjó
ðu
m
up
pá
frít
t s
ölu
ve
rðm
at
HRAUNBÆR, 110 REYKJAVÍK
45.000.000 kr.
Tegund
Stærð
Herbergi
Fjölbýli
87,5 M2
2
Grensásvegi 13 / 108 Reykjavík / S. 570 4800
Þ
etta eru gríðarlegir hags
munir fyrir íslenska skatt
borgara og því afar mikil
vægt að allt sé uppi á
borðinu. Að mínu mati er algjör
lega óásættanlegt að það sé verið
að pukrast með hverjir festu kaup
á þessum eignum,“ segir Þorsteinn
Sæmundsson, þingmaður Mið
flokksins, í samtali við DV.
Í mars á þessu ári lagði Þor
steinn fram fyrirspurn til félags
og jafnréttismálaráðherra þar sem
hann óskaði eftir upplýsingum
um hversu margar fullnustueignir
Íbúðalánasjóður hefði selt árlega
2008–2017, hvar þær voru stað
settar og hvert heildarsöluverð
þeirra var. Þá óskaði hann einnig
eftir upplýsingum um hverjir það
voru sem keyptu þessar eignir,
einstaklinga og fyrirtæki.
Eftir drjúgan tíma barst loks
svar við fyrri liðnum. Rúmlega
3.500 eignir voru seldar á tímabil
inu og var söluandvirði þeirra
yfir 57 milljarðar króna. Ekkert
svar barst um hverjir voru kaup
endur eignanna og lagði Þor
steinn því fram sömu fyrirspurn
öðru sinni í júní síðastliðinn. „Þá
brá svo við að ráðuneytið bar fyr
ir sig Persónuvernd og taldi að
ekki væri heimilt að gefa upp nöfn
kaupenda eignanna. Ég óskaði
þá eftir áliti frá Persónuvernd og
fékk fljótlega svar um að Persónu
vernd gerði ekki athugasemd við
að þær upplýsingar yrðu birtar. Þá
bjóst ég við að fá upplýsingarnar
í hendur en svar var þá sent á Al
þingi og þinginu látið eftir hvort
það yrði birt eða ekki. Það er að
sjálfsögðu ekki hlutverk Alþingis
að taka ákvarðanir um hvort svör
ráðuneyta séu birt eða ekki. Þegar
þarna var komið sögu var nýtt þing
tekið við og því þurfti ég að leggja
fram sömu fyrirspurn aftur á nýju
þingi,“ segir Þorsteinn.
Að eigin sögn ætlar hann sér
að fá þessar upplýsingar opinber
ar. „Öll þessi fasteignakaup voru
þinglýst og því er hér um opinber
ar upplýsingar að ræða. Ég tel það
afar brýnt að það sé upplýst um
hverjir keyptu eignir fyrir 57 millj
arða króna af ríkinu,“ segir Þor
steinn.
Þetta er ekki eina fyrirspurn
varðandi Íbúðalánasjóð sem Þor
steinn hefur mátt bíða drjúga
stund eftir svörum við. Hann lagði
einnig fram fyrirspurn um hvaða
fjárfestar eða lántakendur leigu
íbúðalána Íbúðalánasjóðs hefðu
gert upp 256 lán vegna fasteigna
viðskipta á Reykjanesi og hversu
háa upphæð hver og einn hefði
greitt.
„Fjármálaeftirlitið gerði
athugasemdir við lánveitingar
ÍLS til félaga sem áttu að vera
með óhagnaðardrifna leigustarf
semi en voru það ekki, eins og til
að mynda Heimavellir hf. Þegar
tekið var harðar á því gerðu fjöl
margir aðilar upp lán sín við sjóð
inn. Ég tel mikilvægt að fá fram
í dagsljósið hvaða aðilar sóttust
eftir þessum lánum og hversu há
þau voru,“ segir Þorsteinn. Svar
ið sem barst frá ráðuneytinu var
að mögulegt væri að afhenda Al
þingi upplýsingarnar en að því til
skildu að þær berist ekki óviðkom
andi og þagnarskyldu sé gætt. Enn
var Alþingi gert að skera úr um
hvort birta bæri svarið eða ekki og
nú hefur Þorsteinn þurft að leggja
fram fyrirspurnina að nýju.
„Ég mun ekki gefast upp í
þessari baráttu. Þessar upplýs
ingar verða að komast upp á yfir
borðið,“ segir Þorsteinn. n
„ Ég mun ekki
gefast upp í
þessari baráttu. Þessar
upplýsingar verða að
komast upp á yfirborðið.
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
„ÉG MUN EKKI GEFAST UPP“
n Fær ekki uppgefið hverjir keyptu fullnustueignir Íbúðalánasjóðs
n Rúmlega 3.500 eignir seldar fyrir meira en 57 milljarða króna