Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2018, Blaðsíða 32
Heilsa 21. september 2018KYNNINGARBLAÐ
KOLLAGEN ER EKKERT VENJULEGT PRÓTEIN:
Eflir heilsu og varðveitir
æskuljóma húðarinnar
Kollagen er mikilvægt prótein sem gegnir lykilhlutverki í varðveislu á æskuljóma
húðarinnar. Mamma veit best flytur
inn NeoCell kollagen í duftformi,
en NeoCell er leiðandi í framleiðslu
og þróun á kollagenbætiefnum í
heiminum.
„Kollagen er prótein, en það er
ekkert venjulegt prótein. Kollagen
er byggingareining líkamans og er
sérlega mikilvægt þegar kemur að
viðhaldi húðarinnar. Með hækkandi
aldri minnka kollagenbirgðir líkam-
ans og hann á æ erfiðara með að
framleiða það sjálfur. Afleiðingarn-
ar eru þær að byggingar- og
burðarvefur líkamans lætur á sjá.
Eftir því sem kollagenframleiðslan
minnkar verða kollagenþræðirnir
stökkari og byrja að brotna nið-
ur, en það veldur þessum klass-
ísku ummerkjum öldrunar eins og
hrukkumyndun, meiðslum á sinum
og liðverkjum. Þess vegna styður
inntaka á kollageni við heilsu og
æskuljóma líkamans,“ segir Greta
Ósk Óskarsdóttir, bætiefnaráðgjafi
hjá Mamma veit best sem flytur inn
NeoCell kollagen í duftformi.
„Kollagenduftið frá NeoCell hefur
verið þróað þannig að það vinnur
með hinum náttúrulegu endurnýj-
unarferlum í líkamanum. Það er í
senn bætiefni og snyrtivara því það
hjálpar líkamanum að byggja upp
og endurnýja líkamsvefi um leið og
það hefur fegrandi áhrif á húðina.
Kollagenduftið færir húðinni aukna
mýkt og raka og styrkir jafnframt
neglur og hár,“ segir Greta.
NeoCell býður upp á hæsta ráð-
lagða dagskammt á markaðinum til
að snúa hratt og örugglega við tapi
á kollageni í líkamanum. „Með því að
halda uppi heilbrigðu framboði af
kollagenpeptíðum í líkamsvessum
er líkaminn hvattur til uppbyggingar
og nýmyndunar á kollagenvefjum.
Venjulega eru kollagensameindir
mjög stórar og vega að meðal-
tali 400.000 daltón en NeoCell
kollagen hefur verið forunnið með
ensímum svo það vegur aðeins
3.000 daltón. Upptaka á NeoCell
kollageni er um 90% og því vinnst
það einstaklega vel í líkamanum,“
segir Greta.
NeoCell hefur verið leiðandi fyr-
irtæki í framleiðslu á kollageni í tvo
áratugi og bættist nýverið við úr-
valið hjá Mamma veit best. „NeoCell
er söluhæsta kollagen í Bandaríkj-
unum. Fyrirtækið setur markið hátt
og gerir ýtrustu gæðakröfur til vara
sinna og hefur það að markmiði
að vörurnar séu með öllu öruggar
og algjörlega hreinar. Hver einasta
vörulota sem er framleidd er prófuð
og vottuð á rannsóknarstofum af
þriðja aðila,“ segir Greta.
Sjá nánar á mammaveitbest.is
Greta Ósk Óskarsdóttirm, Mamma veit best