Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2018, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2018, Blaðsíða 34
Heilsa 21. september 2018KYNNINGARBLAÐ Nútímafólk sækist í auknum mæli eftir slökun og íhugun til að draga úr streitu og fá stundar- frið frá áreiti heimsins. Sérstakir flott- ankar þar sem hægt er að fljóta um í þyngdarleysi eru áhugaverð nýjung sem veita fólki magnaða upplifun og einstaka kyrrðarstund. Bandaríkjamaðurinn Ryan Kevin- son hefur nú opnað heilsulindina Hydra Flot Spa, að Rauðarárstíg 1, á Hlemmtorgi, og þar eru þrír sérstakir flottankar. Vatnið í hverjum tanki er blandað með 400 kílóum af Epsom- -salti og hitastig er það sama og húðin, sem veitir þá upplifun að svifið sé um í draumkenndu þyngdarleysi. Tankarnir takmarka allt ytra áreiti og maður er einn með skilningarvit- unum. Tankar af þessu tagi hafa verið notaðir af NASA og bandaríska hern- um til að rannsaka mannshugann. Þessi nýstárlega heilsurækt er talin geta unnið gegn svefnleysi, verkjum, kvíða, þunglyndi og jafnvel fíkn. Þeir sem prófað hafa tankana hjá Hydra Flot Spa eru afar ánægðir. Á Face- book-síðu heilsulindarinnar, Face- book.com/hydraflot, er að finna afar jákvæðar umsagnir hrifinna viðskipta- vina. Meðal þeirra er Sylvía Rut sem skrifar: „Fór út fyrir þægindarammann í dag og skellti mér í flot, var bæði mjög spennt að prófa e-ð nýtt en líka kvíðin og stressuð þar sem ég fæ stundum innilokunarkennd. En þetta var „out of this world“ upplifun! Eigandinn fór vel yfir ferlið og gaf góð ráð um hvernig væri best að venjast og ná að slaka á sem þrælvirkaði. Mér leið strax vel ofan í tanknum (engin innilokunar- kennd), meira að segja þegar ljósin slokknuðu sem ég var búin að vera smá stressuð fyrir. Þetta var algjör unaður, bæði náði ég betri slökun en ég hef áður upplifað og saltið í vatninu gerði húð og hár silkimjúkt. Ég mun að öllum líkindum verða fastakúnni hér og get 100% mælt með þessu.Takk fyrir mig.“ Aðrir viðskiptavinir greina meðal annars frá því hve dvölin í tönkunum hafi verið streitulosandi og vöðvaslak- andi. Það er áhugaverð og heillandi hugmynd að svipta mann um stund öllu áreiti, að loka á skynfærin og vera fullkomlega einn með sjálfum sér um leið og líkaminn fær dásamlega hvíld. Þetta er eitthvað sem fólki finnst spennandi að prófa og þeir sem hafa gert það eru mjög hrifnir af upplifun- inni og áhrifunum á líkama og sál. Í takmarkaðan tíma er nú í gildi 2 fyrir 1 tilboð á tíma í Hydra Flot Spa. Hægt er að nota þetta sem gjöf ef þú kýst. Sjá nánar á shop.hydraflot.is/ products/2fyrir1-is Sjá nánar á vefsíðunni hydraflot.is og Facebook-síðunni Facebook.com/ hydraflot. HYDRA FLOT SPA: Lokaðu á áreitið og njóttu þess að fljóta um í þyngdarleysi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.