Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2018, Blaðsíða 18
18 FÓLK 21. sept 2018
PIZZERIA
Dalvegi 2, 201 Kópavogi -
Dalshrauni 13, 220 Hafnarfirði
FYRSTU SKREF FRÆGRA
ÍSLENDINGA Í FJÖLMIÐLUM
n Páll Óskar bjó til flóknustu orðaþraut samtímans n Fjallið fékk verðlaun fyrir að finna sex villur
Í byrjun 21. aldarinnar var enginn maður með
mönnum nema viðkomandi héldi úti blogg-síðu.
Fjölmiðlar reyndu að skyggnast inn í þennan heim
og birtu iðulega brot af því besta. Í DV mánudaginn
20. júní 2005 birtist stuttur moli af bloggsíðu
ungs Mosfellings, Steinþórs Hróars Steinþórs-
sonar. Sagðist Steinþór, sem síðar varð þekktur
sem Steindi Jr., hlakka mjög til
sumarsins. Ætlaði hann að vera
duglegur að grilla og drekka
hvítan rússa og skipuleggja
partí.
Í ágúst 1987 sendi átta ára gömul stúlka úr
Reykjavík, Ásdís Rán Gunnars-
dóttir, þessa fallegu mynd
inn til ritstjórnar BarnaDV.
Hin sjö ára gamla þúfa frá Akranesi, Hafþór Júlíus
Björnsson, fann sex villur í þraut sem birtist í
BarnaDV árið 1996. Hlaut Hafþór Júlíus, sem síðar
varð Fjallið ógurlega, vegleg verðlaun
fyrir afrekið.
Í Alþýðublaðinu forðum daga birtust myndir af
nýfæddum nýburum. Færri komust að en vildu en
eitt af þeim undurfögru börnum sem hlutu
náð fyrir augum ritstjórnar í janúar
1991 var ónefnd stúlka þeirra Ernu
Karenar Sigurbjörnsdóttur og
Ragnars Norðfjörð. Það var engin
önnur en samfélagsmiðlastjarnan
og edikunnandinn Sólrún Diego.
Í september 1981 birti tímaritið Vikan tvær
gátur eftir ellefu ára gamlan Reyk-
víking, Pál Óskar Hjálmtýsson að
nafni. Annars vegar flóknustu
orðaþraut samtímans og hins
vegar skemmtilega mynda-
gátu. Hlaut Páll Óskar
tímabundna áskrift
að Vikunni að
launum.
Í spurningu vikunnar hjá Dagblað-
inu þann 26. október var níu ára
gömul blaðsölustúlka spurð að
því hvort leyfa ætti hjólreiðar á
gangstéttum. Húsavíkurmærin
Linda Pétursdóttir var ekki á því en
viðurkenndi þó að hún hjólaði
stundum á gangstéttun-
um í heimabæ sínum.
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Linda Pétursdóttir var ekki hlynnt
hjólreiðum á gangstéttum.
Steindi Jr. birtist fyrst
á síðum dagblaðanna
sem villtur djammari.
Ásdís Rán var og er listræn.
Sólrún Diego lét
snemma ljós sitt skína.
Hafþór Júlíus fékk verðlaun
fyrir að finna sex villur.
Eflaust gat
enginn leyst
orðaþraut Páls
Óskars.