Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2018, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2018, Síða 18
18 FÓLK 21. sept 2018 PIZZERIA Dalvegi 2, 201 Kópavogi - Dalshrauni 13, 220 Hafnarfirði FYRSTU SKREF FRÆGRA ÍSLENDINGA Í FJÖLMIÐLUM n Páll Óskar bjó til flóknustu orðaþraut samtímans n Fjallið fékk verðlaun fyrir að finna sex villur Í byrjun 21. aldarinnar var enginn maður með mönnum nema viðkomandi héldi úti blogg-síðu. Fjölmiðlar reyndu að skyggnast inn í þennan heim og birtu iðulega brot af því besta. Í DV mánudaginn 20. júní 2005 birtist stuttur moli af bloggsíðu ungs Mosfellings, Steinþórs Hróars Steinþórs- sonar. Sagðist Steinþór, sem síðar varð þekktur sem Steindi Jr., hlakka mjög til sumarsins. Ætlaði hann að vera duglegur að grilla og drekka hvítan rússa og skipuleggja partí. Í ágúst 1987 sendi átta ára gömul stúlka úr Reykjavík, Ásdís Rán Gunnars- dóttir, þessa fallegu mynd inn til ritstjórnar BarnaDV. Hin sjö ára gamla þúfa frá Akranesi, Hafþór Júlíus Björnsson, fann sex villur í þraut sem birtist í BarnaDV árið 1996. Hlaut Hafþór Júlíus, sem síðar varð Fjallið ógurlega, vegleg verðlaun fyrir afrekið. Í Alþýðublaðinu forðum daga birtust myndir af nýfæddum nýburum. Færri komust að en vildu en eitt af þeim undurfögru börnum sem hlutu náð fyrir augum ritstjórnar í janúar 1991 var ónefnd stúlka þeirra Ernu Karenar Sigurbjörnsdóttur og Ragnars Norðfjörð. Það var engin önnur en samfélagsmiðlastjarnan og edikunnandinn Sólrún Diego. Í september 1981 birti tímaritið Vikan tvær gátur eftir ellefu ára gamlan Reyk- víking, Pál Óskar Hjálmtýsson að nafni. Annars vegar flóknustu orðaþraut samtímans og hins vegar skemmtilega mynda- gátu. Hlaut Páll Óskar tímabundna áskrift að Vikunni að launum. Í spurningu vikunnar hjá Dagblað- inu þann 26. október var níu ára gömul blaðsölustúlka spurð að því hvort leyfa ætti hjólreiðar á gangstéttum. Húsavíkurmærin Linda Pétursdóttir var ekki á því en viðurkenndi þó að hún hjólaði stundum á gangstéttun- um í heimabæ sínum. Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is Linda Pétursdóttir var ekki hlynnt hjólreiðum á gangstéttum. Steindi Jr. birtist fyrst á síðum dagblaðanna sem villtur djammari. Ásdís Rán var og er listræn. Sólrún Diego lét snemma ljós sitt skína. Hafþór Júlíus fékk verðlaun fyrir að finna sex villur. Eflaust gat enginn leyst orðaþraut Páls Óskars.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.