Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2018, Qupperneq 27

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2018, Qupperneq 27
KYNNING Ég er valkostur við stóru skipafélögin, Eimskip og Samskip, um búslóða- flutninga milli Íslands og Skandinavíu og vöruflutninga og búslóðaflutninga innan- lands. Stundum er ég ódýrari, stundum ekki, það fer allt eftir eðli verkefnanna hverju sinni. Hér er engin yfirbygging og þjónustan er hurð í hurð, það eru engin vöruhús, lyftarar eða starfsfólk á milli, sem sagt engir milliliðir, heldur flyt ég vöruna eða búslóðina upp að dyrum í flestum tilfellum.“ Þetta segir Jón Tómas Ásmundsson sem rekur flutn- ingaþjónustu undir heitinu Vöruflutningar.is. Hann hefur starfað við vöruflutninga frá árinu 1993 og kveður þar mest að reglulegum vöru- flutningum og búslóðaflutn- ingum milli Reykjavíkur og Akureyrar einu sinni til tvisvar í viku. Búslóðaflutningar milli Ís- lands og hinna Norðurland- anna En síðustu ár hafa búslóða- flutningar milli Íslands og hinna Norðurlandanna verið mjög fyrirferðarmiklir. Jón segist raunar líka hafa flutt búslóðir til Spánar og er hann opinn fyrir flutningum hvert sem er, en langmest kveður að Skandinavíu-flutningun- um. Flutningabílunum er þá ekið til Seyðisfjarðar þar sem þeir fara um borð í Norrænu. Túrinn tekur allt í allt tvær vikur og þessar ferðir eru á u.þ.b. sjö vikna fresti. Jón Tómas segir marga veigra sér við að nýta sér þjónustu hans þar sem þeir finni meira öryggi í því að skipta við þekkt fyrirtæki eins og Eimskip og Samskip. Reynslan og orðsporið vinni hins vegar alltaf með honum og þeir sem hafi einu sinni átt viðskipti við hann mæli nær alltaf með honum við aðra. Einfaldur rekstur og engin yfirbygging gera honum kleift að bjóða oft mun betra verð en stóru flutningafélögin. „Ég er með þrjá flutninga- bíla í eigin eigu en ég kalla alltaf til mína samstarfsaðila fyrir stærri verkefni. Ég er í samstarfi við nokkra félaga sem sinna vöruflutningum eins og ég en ég er sá eini sem er í búslóðaflutningum milli Íslands og hinna Norður- landanna. En ég get einfald- lega tekið það með mér sem hentar hverju sinni og ef ég er búinn að fylla mína bíla hef ég einfaldlega samband við félagana.“ Aðstöðubílar fyrir kvik- myndabransann Jón Tómas og fyrirtæki hans er nú tengt upptökum á framhaldi hinnar geysivin- sælu þáttaraðar Ófærðar. „Ég hef verið tengdur kvik- myndabransanum í um 18 ár en lengst af snerist það eingöngu um flutning á bílum fyrir auglýsingamyndatökur. Núna er ég farinn að færa mig út í aðstöðubíla. Ég get skaffað hillubíla, hvort sem það er venjulegur sendibíll eða þriggja öxla aldrifsbíll; ég get skaffað búningadeild eða bíl sem er bara með speglum og borðum fyrir förðun og þess háttar; ég get skaffað skrifstofubíl, klósett, bún- ingaaðstöðu, kaffistofu,“ segir Jón Tómas sem hefur yfir alls átta bílum að ráða en bíll frá honum hýsir núna bún- ingadeild kvikmyndatökuliðs Ófærðar: „Þetta er búningadeild á hjólum. Búningahönnuðurinn getur þá verið með alla bún- inga í bílnum ásamt vinnu- og viðgerðaraðstöðu. Fólk getur skipt þarna um föt, mátað og svo framvegis – allt í bílnum.“ Nánari upplýsingar um þjónustuna veitir Jón Tómas í síma 896-2063 en einnig er áhugavert að skoða heima- síðuna voruflutningar.is og Facebook-hópinn Jón Tómas Flutningar- Ísland Noreg- ur- Noregur Ísland, til að fá upplýsingar um þjónustuna. Vöruflutningar, búslóða- flutningar og aðstöðubílar fyrir kvikmyndabransann
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.