Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2018, Síða 27
KYNNING
Ég er valkostur við stóru skipafélögin, Eimskip og Samskip, um búslóða-
flutninga milli Íslands og
Skandinavíu og vöruflutninga
og búslóðaflutninga innan-
lands. Stundum er ég ódýrari,
stundum ekki, það fer allt eftir
eðli verkefnanna hverju sinni.
Hér er engin yfirbygging og
þjónustan er hurð í hurð, það
eru engin vöruhús, lyftarar
eða starfsfólk á milli, sem
sagt engir milliliðir, heldur flyt
ég vöruna eða búslóðina upp
að dyrum í flestum tilfellum.“
Þetta segir Jón Tómas
Ásmundsson sem rekur flutn-
ingaþjónustu undir heitinu
Vöruflutningar.is. Hann hefur
starfað við vöruflutninga frá
árinu 1993 og kveður þar
mest að reglulegum vöru-
flutningum og búslóðaflutn-
ingum milli Reykjavíkur og
Akureyrar einu sinni til tvisvar
í viku.
Búslóðaflutningar milli Ís-
lands og hinna Norðurland-
anna
En síðustu ár hafa búslóða-
flutningar milli Íslands og
hinna Norðurlandanna verið
mjög fyrirferðarmiklir. Jón
segist raunar líka hafa flutt
búslóðir til Spánar og er hann
opinn fyrir flutningum hvert
sem er, en langmest kveður
að Skandinavíu-flutningun-
um. Flutningabílunum er þá
ekið til Seyðisfjarðar þar sem
þeir fara um borð í Norrænu.
Túrinn tekur allt í allt tvær
vikur og þessar ferðir eru á
u.þ.b. sjö vikna fresti.
Jón Tómas segir marga
veigra sér við að nýta sér
þjónustu hans þar sem þeir
finni meira öryggi í því að
skipta við þekkt fyrirtæki
eins og Eimskip og Samskip.
Reynslan og orðsporið vinni
hins vegar alltaf með honum
og þeir sem hafi einu sinni átt
viðskipti við hann mæli nær
alltaf með honum við aðra.
Einfaldur rekstur og engin
yfirbygging gera honum kleift
að bjóða oft mun betra verð
en stóru flutningafélögin.
„Ég er með þrjá flutninga-
bíla í eigin eigu en ég kalla
alltaf til mína samstarfsaðila
fyrir stærri verkefni. Ég er í
samstarfi við nokkra félaga
sem sinna vöruflutningum
eins og ég en ég er sá eini
sem er í búslóðaflutningum
milli Íslands og hinna Norður-
landanna. En ég get einfald-
lega tekið það með mér sem
hentar hverju sinni og ef ég
er búinn að fylla mína bíla hef
ég einfaldlega samband við
félagana.“
Aðstöðubílar fyrir kvik-
myndabransann
Jón Tómas og fyrirtæki hans
er nú tengt upptökum á
framhaldi hinnar geysivin-
sælu þáttaraðar Ófærðar.
„Ég hef verið tengdur kvik-
myndabransanum í um 18
ár en lengst af snerist það
eingöngu um flutning á bílum
fyrir auglýsingamyndatökur.
Núna er ég farinn að færa
mig út í aðstöðubíla. Ég get
skaffað hillubíla, hvort sem
það er venjulegur sendibíll
eða þriggja öxla aldrifsbíll; ég
get skaffað búningadeild eða
bíl sem er bara með speglum
og borðum fyrir förðun og
þess háttar; ég get skaffað
skrifstofubíl, klósett, bún-
ingaaðstöðu, kaffistofu,“ segir
Jón Tómas sem hefur yfir
alls átta bílum að ráða en bíll
frá honum hýsir núna bún-
ingadeild kvikmyndatökuliðs
Ófærðar:
„Þetta er búningadeild á
hjólum. Búningahönnuðurinn
getur þá verið með alla bún-
inga í bílnum ásamt vinnu- og
viðgerðaraðstöðu. Fólk getur
skipt þarna um föt, mátað og
svo framvegis – allt í bílnum.“
Nánari upplýsingar um
þjónustuna veitir Jón Tómas í
síma 896-2063 en einnig er
áhugavert að skoða heima-
síðuna voruflutningar.is og
Facebook-hópinn Jón Tómas
Flutningar- Ísland Noreg-
ur- Noregur Ísland, til að fá
upplýsingar um þjónustuna.
Vöruflutningar, búslóða-
flutningar og aðstöðubílar
fyrir kvikmyndabransann