Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2018, Blaðsíða 35
Heilsa 21. september 2018 KYNNINGARBLAÐ
Eríal Pole hefur verið starfandi síð-an í september 2012 og sérhæfir sig í ýmsum og fjölbreyttum af-
brigðum súlufimi. Á allra síðustu árum
hefur þessi líkamsrækt orðið þekktari
og vinsælli og virðist komin til að vera.
Við gefum Evu Rut hjá Eríal Pole orðið:
„Pole fitness hefur hingað til verið
aðal áherslan hjá okkur en undanfarið
höfum við aukið áherslu á fleiri tegundir
loftfimleika.
Öll námskeiðin okkar eiga það sam-
eiginlegt að reyna í senn á jafnvægi,
styrk, samhæfingu og liðleika og okkur
langar einnig til þess að koma því á
framfæri að það er algengur misskiln-
ingur að þetta séu aðeins tímar fyrir
konur. Hjá okkur æfir fólk á öllum aldri,
bara til gamans og fyrir sig sjálft. Engin
pressa er á að keppa eða sýna og hver
og einn fer upp um erfiðleikastig á eigin
tíma og forsendum.
Lyran, sem er einnig þekkt sem
aerial hoop eða loftfimleikahringir, er
t.d. sífellt að verða vinsælli. Til að byrja
með vorum við bara með einn lyru-hóp
sem samanstóð af pole fitness-nem-
endunum okkar sem langaði að brjóta
upp vikuna sína og taka einstaka tíma
en núna er kominn stór hópur sem sem
æfir eingöngu lyru sem er nú kennd
á þremur erfiðleikastigum. Það er
ótrúlega gaman að sjá þessa þróun
og aldrei að vita nema lyra verði jafn
vinsæl og pole á næstunni.
Lyra á rætur sínar að rekja til
sirkuslista og í byrjendatímunum eru
kenndar aðferðir við að komast inn í
hringinn, einfaldar stöður og styrkta-
ræfingar sem hægt er að gera með og
í hringnum. Lyrurnar er hægt að hækka
og lækka eftir þörfum svo hver sem er
getur gert fallegar samsetningar strax
í fyrsta tíma og ekki er nauðsynlegt að
hafa neinn grunn í öðrum íþróttum eða
dansi til að byrja að æfa.
Aerial hammock eru glænýir og
spennandi tímar sem hófust í sept-
ember og hafa strax slegið í gegn, en í
þessum tímum munum við velta, rúlla,
lyfta, snúast á hvolf og takast á flug.
Æfingarnar eru framkvæmdar í mjúkri
silkilykkju og sameinast áhrif úr sirku-
slistum, jóga og dansi í skemmtilegri
líkamsrækt. Hér er lykkjan notuð sem
loftfimleikaáhald með áherslu á að búa
til fallegar stöður, læra að vefja sig inn
í efnið, klifra og æfa samsetningar og
flæði.
Önnur nýjung sem við munum byrja
með í október er pole parkour sem er
sambland af parkour og freerunning
við pole fitness. Pole parkour byggir á
ýmsum stökkum og lendingum af og
á súlunni ásamt flæði og kennir fólki
að yfirstíga hindranir. Notast er við
hin ýmsu pole fitness-grip til þess að
aðlaga heljarstökk og aðrar aflmiklar
hreyfingar að súlunni.
Við mælum líka mikið með flex-
-tímunum okkar. Það hefur verið mjög
mikil vöntun á liðleikatímum þar sem er
einmitt verið að einblína á að komast í
splitt og spígat og brú. Það eru auðvit-
að jógatímar á flestum ræktarstöðvum
en þeir eru ekki að einblína á þessi
stóru markmið eins og splittið, sem
flestir fullorðnir láta sig bara dreyma
um. Fólk sem lyftir mikið þarf til dæmis
nauðsynlega á góðum axlateygjum og
bakteygjum að halda sem flexið bíður
einmitt upp á.
Komdu og upplifðu skemmtilega og
krefjandi tíma sem koma þér í frábært
form.
Hvetjandi andrúmsloft og fjölbreytt
námskeið. Lífið er betra á hvolfi í Eríal
Pole!“
Á myndunum eru Davíð Már, pole
parkour-þjálfari, og Lilja Salóme, lyru-
og hammock-þjálfari.
www.erialpole.is
Auk námskeiða þá var Erial Pole
einnig að opna meðferðarstofu í
Fascial Stretch Therapy sem er sú eina
sinnar tegundar á Íslandi. Hægt er að
lesa sér til um það á vefsíðunni.
Lífið er betra á
hvolfi í Eríal Pole!