Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2018, Blaðsíða 12
12 21. sept 2018FRÉTTIR
Í
búar í fjölbýlishúsi í miðborg
Reykjavíkur eru orðnir lang-
þreyttir á viðvarandi ónæði
eins íbúans sem býr í íbúð á
vegum Félagsbústaða Reykja-
víkurborgar. Úr íbúðinni kemur
stæk lykt inn á sameign og íbúinn
hænir að sér villiketti með mat.
Ítrekað hefur verið haft samband
við Félagsbústaði í gegnum árin
og var því lofað að umræddur íbúi
yrði fluttur út en enn hefur ekkert
gerst.
Blanda af svita-, klóaks-
og kattahlandsfýlu
Einn eigandi íbúðar í stigagangin-
um segist hafa átt erfitt með að
finna leigjendur út af ástandinu.
Hann hafi fengið slæmar umsagnir
á AirBnb frá fólki sem hafi gist þar
og þegar íbúðin var loks seld fékk
eigandinn ekki jafn hátt verð fyrir
og hann hefði getað fengið. Eig-
andinn segir:
„Íbúarnir hérna í húsfélaginu
eru búnir að vera í vandræðum
með mann sem leigir hér íbúð í
eigu Reykjavíkurborgar. Umgengn-
in er hræðilegt og stæk lykt í sam-
eigninni. Heilbrigðiseftirlitið kom
og staðfesti að aðstæðurnar væru
óásættanlegar. Fólk frá Félags-
bústöðum hefur mætt hér á fund
en það hefur ekkert verið gert. Ég
hef leigt mína íbúð út á AirBnb og
fékk þá umsögn að stigagangurinn
lyktaði eins og almenningsklósett
fyrir ketti. Að lokum seldi ég íbúð-
ina því að ég gat ekki lengur staðið í
þessu. Maður er við það að æla við
að koma inn í stigaganginn.“
Vandamálið er vegna eldri
manns, einstæðings sem býr á
jarðhæð hússins. Íbúarnir kvarta
ekki yfir hegðun mannsins, hann
sé vænsta skinn, en sóðaskapur-
inn í hans íbúð er mikill. Það sést
bæði í gegnum glugga og finnst á
lyktinni í sameigininni. Auk þess
hænir hann að sér villiketti með
mat. Íbúarnir hafa margsinnis
rætt við hann um sóðaskapinn, til
dæmis á húsfundi.
„Það er eins og hann meðtaki
þetta ekki. Það er búið að banna
honum að vera með ketti en hann
hlýðir engu. Þetta er ekki manna-
bústaður hjá honum. Ég keypti
íbúð þarna árið 2013 og þá var
þetta búið að ganga lengi en fer
sífellt versnandi því maðurinn
eldist. Þetta er blanda af svita-,
klóaks- og kattahlandsfýlu.“
Segir Félagsbústaði
bregðast við
Auðun Freyr Ingvarsson, fram-
kvæmdastjóri Félagsbústaða,
segist ekki geta tjáð sig um mál
einstakra leigjenda, þegar DV
hafði samband við hann.
Hefur Reykjavíkurborg ekki
ríkar skyldur til að tryggja að
borgararnir verði ekki fyrir óþarfa
ónæði af hálfu leigjenda ykkar?
„Jú, að sjálfsögðu. Þess vegna
bregðumst við við.“
Hvernig þá?
„Við förum yfir þær kvartanir
sem berast og höfum samband við
kvartendur. Eftir það ræðum við
við okkar leigutaka og reynum að
átta okkur á því hvað sé í gangi.“
Koma upp margar kvartanir?
„Já, þær eru algengar. Við erum
með 2.500 íbúðir til leigu og eins
og almennt gerist í húsfélögum,
þá ríkir ekki alltaf sátt.“
Kemur fyrir að það þurfi að
segja leigusamningi upp?
„Það kemur fyrir, já, og erum
við í raun í góðri stöðu til að leysa
málið. Svona mál eru erfiðari ef
viðkomandi á íbúðina sjálfur. Það
er þyngra ferli að neyða fólk til að
selja en að segja upp leigusamn-
ingi. Uppsögn á samningi getur þó
tekið nokkra mánuði.“
Hægt að bera fólk út og selja
eignir á nauðungaruppboði
Ónæðismál koma oft inn á borð
Húseigendafélagsins en misalvar-
leg þó. DV ræddi við Sigurð Helga
Guðjónsson, formann félagsins,
sem segir að kröftugri úrræði séu
í íslenskum lögum en gengur og
gerist í nágrannalöndunum. Hann
segir:
„Í lögum um fjöleignarhús
eru reglur um réttindi og skyldur
eigenda gagnvart öðrum íbúum.
Það hvílir á öllum að haga séreign-
inni og umgengni um sameign
þannig að aðrir verði ekki fyrir
óþarfa ónæði og ama. Það á við um
hljóð, lykt og hvað eina. Ef einhver
stendur sig ekki og brýtur þess-
ar umgengnisreglur þá er ákvæði
í lögunum um að aðrir eigendur
eða húsfélag geti tekið ákvörðun
um að gera viðkomandi að flytja
burt, að undanfenginni aðvörun.
Honum er þá gert að selja og er
bönnuð búseta. Þarna eru úrræði
og þessi grein hefur verið notuð í
dómsmálum.“
Getur þú nefnt dæmi?
„Já. Ákvæðið var notað í máli
sem upp kom á Hverfisgötu fyrir
nokkrum árum. Þar bjó kona sem
hafði safnað rusli í tuttugu eða
þrjátíu ár. Aðrir íbúar voru búnir
að reyna allt til þess að fá hana til
að hætta en þetta var einhver sjúk-
dómur hjá henni. Henni var gert
að flytja út af þessu. Þetta er með-
al alvarlegustu málanna en fyrst
og fremst hefur ákvæðið ákveðið
varnargildi.“
Sigurður segir mál á borð við
þetta geta haft bagaleg áhrif á ná-
granna. Inn á friðsæla stigaganga
þar sem fjölskyldufólk býr geti allt
í einu flutt óreglufólk sem breyti
sinni íbúð í dópgreni og þá er hús-
friðurinn úti.
Hvernig á fólk að bera sig að?
„Fyrst verður að ræða mál-
ið og taka það fyrir á húsfundi.
Svo verður að sanna þessi brot, til
dæmis með lögregluskýrslum eða
öðru. Síðan þarf að höfða mál og ef
dómur fæst er eignin seld á nauð-
ungaruppboði.“
Unnið að flutningi mannsins
í þrjú ár
Málið hefur verið í gangi í mörg ár
og íbúar húsfélagsins kvartað til
Félagsbústaða vegna þess. Í upp-
hafi árs 2015 var ákveðið að Fé-
lagsbústaðir myndu senda ræsti-
tækni til að þrífa íbúðina reglulega.
Við það var staðið til að byrja með
en um sumarið var ástandið aftur
orðið slæmt og aftur haft samband
við Félagsbústaði vegna málsins.
Starfsmaður sagði þá að verið
væri að vinna að flutningi manns-
ins úr íbúðinni og lagði áherslu
á að íbúðin yrði þrifin á meðan
hann væri þarna.
Ekkert hefur hins vegar orðið af
flutningunum og langlundargeð
íbúanna að þverra. Nú í septem-
ber var Félagsbústöðum gert við-
vart um að þetta gengi ekki lengur
og að málsókn væri í undirbún-
ingi. Sami starfsmaður svaraði á
þann hátt að verið væri að vinna í
lausn á málinu og það ætti að leys-
ast á nokkrum vikum. Það er rúm-
um þremur árum eftir að flutn-
ingurinn átti að vera í vinnslu. n
Gylfaflöt 6 - 8
S. 587 - 6688
fanntofell.is
BORÐPLÖTUR
& SÓLBEKKIR
Íbúar í fjölbýlishúsi langþreyttir á
sóðaskap leigjanda Félagsbústaða
n Stæk lykt og villikettir n Hægt að höfða mál og neyða eiganda til að selja
Sigurður Helgi Guðjónsson, formaður
Húseigendafélagsins
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
Villikettir, myndin tengist fréttinni ekki beint.