Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2018, Blaðsíða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2018, Blaðsíða 50
50 21. september 2018 A ðfaranótt 15. ágúst 1977 var eins og hver önnur nætur­ vakt í Big Ear útvarps­ sjónaukanum hjá The Ohio State University í Bandaríkjunum. Skyndilega nam tækjabúnaðurinn öðruvísi merki en venjulega. Það varði í 72 sekúndur og var „hávært“ og mun sterkara en önnu merki sem bárust utan úr himingeimn­ um þessa nótt. Merkið var einnig á þröngu tíðnisviði, það náði aðeins yfir mjög lítið tíðnisvið, svipað og gervimerki. Merkið var á tíðninni 1,420 megahertz sem er einnig köll­ uð 21 sentimetra línan. Það er sama tíðni og útvarpsbylgjur sem hlut­ laus vetnisgös úti í geimnum senda frá sér. Þessi tíðni er að mestu laus við hljóðtruflanir frá öðrum hlut­ um. Einn þeirra vísindamanna sem unnu í Big Ear hafði mikinn áhuga á þessari tíðni í leitinni að merkja­ sendingum frá vitsmunaverum utan jarðarinnar og taldi að tíðnin gæti verið notuð til að senda skila­ boð um óravíddir alheimsins. Merkið var ekki endurtekið og síðari tilraunir til að finna það báru ekki árangur. Á þessum tíma var Big Ear útvarpssjónaukinn notað­ ur til að leita að merkjasendingum frá vitsmunaverum utan jarðarinn­ ar en enginn hafði búist við að sjá neitt í líkingu við þetta merki og það heyrðist aldrei aftur í Big Ear. Þar sem fleiri merki bárust ekki var ómögulegt að segja mikið um merkið og það var líka erfitt að rekja uppruna þess, hvaðan það var sent, vegna þess hversu skammvinnt það var. Það virtist koma frá Bogmanns­ merkinu en ekki var hægt að segja til um það með fullri vissu. Stjörnufræðingurinn Jerry R. Ehman tók eftir merkinu nokkrum dögum síðar þegar hann var að fara yfir gögn sem Big Ear hafði numið. Hann skrifaði þá WOW! með rauð­ um penna á útprentun á merkinu og gerði hring utan um það. Það varð síðan þekkt sem WOW! merk­ ið. Ehman og fleiri stjörnu­ fræðingar reyndu ítrekað að nema merkið aftur og bera kennsl á það og uppruna þess. Reiknað var með að merkið myndi heyrast með þriggja mínútna millibili í móttöku­ hornum útvarpssjónaukans en það gerðist ekki. Ehman reyndi í marga mánuði að finna merkið aftur eftir að Big Ear nam það fyrst en án ár­ angurs. 1987 og 1989 leitaði Robert H. Gray að merkinu með því að nota META loftnetssamstæðuna í Oak Ridge Observatory en hann fann það ekki. Það sama var uppi á teningnum 1995 þegar H. Paul Shuch, forstjóri SETI (sem er verk­ efni sem snýst um að leita að vits­ munalífi utan jarðarinnar), gerði nokkrar tilraunir með 12 metra út­ varpssjónauka hjá National Radio Astronomy Observatory í Green Bank í Vestur­Virginíu. Hann gerði aðra tilraun, sem stóð frá 1995 til 1996, og notaði þá Very Large Array, sem er miklu nákvæmari en Big Ear en niðurstaðan var sú sama, ekkert heyrðist. Árið 2012 voru 35 ár liðin frá því að WOW! merkið heyrðist. Til að halda upp á það var straum­ ur stafrænna merkja sendur frá Arecibo stjörnuathugunarstöðinni í átt að upptakasvæði merkisins. Sendingin samanstóð af um 10.000 Twitter­skilaboðum sem voru sam­ in sérstaklega af þessu tilefni af National Geographic Channel og var myllumerkið #Chasing UFOs notað en það var um leið kynning á samnefndri þáttaröð sjónvarps­ stöðvarinnar. Einnig fylgdu með stutt myndskeið þar sem frægt fólk flutti stutt skilaboð. Margar kenningar hafa verið settar fram í gegnum tíðina um uppruna merkisins. Því hefur ver­ ið varpað fram að það hafi átt nátt­ úruleg upptök. Aðrir hafa haldið því fram að það hafi verið af völd­ um vitsmunavera. En þær skýringar sem voru settar fram skýrðu merk­ ið ekki og áratugum saman var það talið sterkasti möguleikinn á að við hefðum numið merkjasendingu frá vitsmunaverum utan jarðarinnar. 40 árum síðar töldu vísindamenn sig hafa leyst málið Eins og gefur að skilja höfðu vís­ indamenn og áhugamenn um rannsóknir á himingeimnum velt þessu máli fyrir sér í gegnum tíð­ ina. Það var síðan á síðasta ári sem vísindamenn töldu sig hafa fundið skýringuna á uppruna hins dularfulla WOW! merkis. Þá stigu vísindamenn við the Centre of Planetary Science fram og sögðust hafa skýringu á hugsanlegum upp­ runa merkisins. Þeir sögðust telja að merkið hafi komið frá halastjörnu sem ekki hafi verið þekkt 1977 þegar merkið barst til Big Ear. Nán­ ar tiltekið sögðu þeir að merkið hafi komið frá vetnisskýi sem fylgdi halastjörnunni. Þeir sögðu að hreyfingar halastjörnunnar skýrðu af hverju merkið hafi aldrei heyrst aftur. Tvær halastjörnur voru á ferð um himingeiminn, á því svæði sem talið er að Big Ear hafi numið merk­ ið frá, 1977 en á þeim tíma var ekki vitað um tilvist þeirra. Þær birtust aftur á himinhvolfinu frá nóvem­ ber 2016 þar til í febrúar 2017 og þá höfðu vísindamenn tækifæri til að prófa kenningu sína. Að þeirra sögn pössuðu merkin sem bárust frá þeim við WOW! merkið sem Big Ear útvarpssjónaukinn nam 40 árum áður. Til að staðfesta þetta enn betur rannsökuðu þeir merki frá þremur halastjörnum til viðbót­ ar og fengu svipaðar niðurstöður. Vísindamennirnir segja að þeir geti ekki sagt til um með fullri vissu að WOW! merkið hafi borist frá þess­ um tveimur halastjörnum en geti með nokkuð mikilli vissu sagt að það hafi átt uppruna sinn hjá ein­ hvers konar halastjörnu. n TÍMAVÉLIN LOWE ALPINE BAKPOKI 18L 14.995 kr. Faxafen 12 108 Reykjavík Sími 534 2727 alparnir.is HREYFING • KRAFTUR • ÁNÆGJA Erum f utt í Faxafen 12 PROVIDUS PRIMUS 4.995 kr. SALOMON XA ENDURO HERRA OG DÖMU SKÓR 23.995 kr. 15. ágúst 1977 – WOW! Wow! merkið fræga Kristján Kristjánsson ritstjorn@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.