Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2018, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2018, Blaðsíða 16
16 21. sept 2018FRÉTTIR EIGUM MARGA LITI Á LAGER Nánari upplýsingar á mt.is og í s: 580 4500 HANNAÐ FYRIR ÍSLENSKT VEÐURFAR ÁLKLÆÐNINGAR & UNDIRKERFI Grunar að Darin hafi verið byrluð ólyfjan áður en hann lést E ina vonin er að einhver gefi sig fram með upplýsingar,“ segir Tammy Goettemoeller, móðir Darins Maverick Goodman, 25 ára pilts sem lét líf- ið á hroðalegan hátt á Íslandi í lok júní síðastliðnum. Enn er ekki vitað hver aðdragandinn var að þessu hörmulega atviki. Fjöl- skylda Darins vill ekki útiloka að dauða hans hafi borið að með sak- næmum hætti. Sitja eftir með ótal spurningar DV greindi upphaflega frá mál- inu en Darin fannst látinn eftir að hafa fallið fram af þaki á byggingu í miðborg Reykjavíkur þann 30. júní síðastliðinn. Hann var fluttur með hraði á Landspítalann en úrskurð- aður látinn skömmu síðar. Engin vitni voru að atvikinu. Þann 31. ágúst síðastliðinn birti lögreglan ljósmyndir af upptök- um úr öryggismyndavélum í mið- borginni og óskaði eftir að ná tali af fólkinu á myndunum í tengsl- um við rannsókn málsins. Fram kom að fólkið átti í samskiptum við Darin fyrr um kvöldið og gæti mögulega sagt til um um málsat- vik áður en slysið átti sér stað. DV ræddi við Tammy síðast- liðinn föstudag þar sem hún sagði að aðstandendur Darins ættu enn- þá eftir að fá svör við ótal spurn- ingum varðandi atburðarás þessa kvölds. Setur spurningarmerki við áreiðanleika eiturefnarann- sóknar Í samtali við DV segir Tammy að fjölskyldan sé engu nær um at- burði kvöldsins eða hvað leiddi til þess að Darin endaði uppi á þaki American Craft Bar í Lækjargötu þann 30. júní síðastliðinn. „Við höfum ekki fengið neinar nýjar upplýsingar frá rann- sóknarlögreglunni. Það var reynd- ar bandaríska sendiráðið sem lét okkur vita með tölvupóstskeyti að það væri verið að lýsa eftir þessum einstaklingum sem sjást á mynd- unum. Rannsóknin stöðvaðist þegar einn af lögreglumönnunum fór í mánaðarlangt frí. Við höfum mætt kurteisi og hlýju frá íslensku lög- reglunni en það hefur ekkert kom- ið fram sem getur útskýrt hvers vegna Darin fór þarna upp. Okkur var sagt að eiturefnar- annsókn hefði sýnt fram á áfengi í blóði hans og smávegis koffín, og að hann hefði látist vegna innvort- is blæðinga.“ Hafið þið einhverjar hugmynd- ir um hvað gerðist þetta kvöld? „Okkur grunar að honum hafi verið byrluð ólyfjan. Samkvæmt eiturefnarannsókn þá neytti hann aðeins áfengis en satt að segja þá set ég spurningarmerki við það hversu áreiðanlegar þessar niður- stöður eru þegar eiturefnarann- sókn er framkvæmd níu dögum eftir andlátið. Við erum hrædd um að ein- hver hafi verið að elta hann, eða að hann hafi sjálfur verið að elta einhvern sem stal frá honum, eða þá að hann hafi verið með of- skynjanir eftir að hafa verið byrluð ólyfjan.“ Segja útilokað að Darin hafi neytt eiturlyfja Darin var að sögn Tammy alls ekki hvatvís. „Hann var einstaklega skipulagður. Hann setti allt upp í Excel-skjal, Íslandsferðina þar á meðal. Áður en hann fór var hann búinn að skipuleggja hvern einasta dag í ferðinni, kortleggja allan kostnað og lista niður kosti og galla þess að dvelja á gistiheim- ili eða í tjaldi. Hann skipti mánað- arlaununum sínum niður á mis- munandi reikninga, einn fyrir ferðalög, einn fyrir skattgreiðslur, einn fyrir sparnað og svo framveg- is. Þar sem þetta var hans persónuleiki þá vitum við fyrir víst að hann myndi aldrei fara að ferð- ast þvert yfir hnöttinn til þess að neyta eiturlyfja,“ segir Tammy og bætir við að þau hafi rætt ítarlega við nánustu vini Darins. Þeir segjast aldrei hafa séð hann snerta eiturlyf. „Darin var heldur ekki þung- lyndur eða neitt slíkt. Það eina sem komst að hjá honum var hvert hann ætti að ferðast næst. Ég veit það fyrir víst að hann var í full- komnu andlegu jafnvægi og það sem var efst í huga hans var að skipuleggja næsta ferðalag. Hann var hraustur og liðugur og ein- hverra hluta vegna hefur hann klifrað upp á þakið á Icelandic Craft Bar. Eins og ég segi, það er eins og hann hafi verið að flýja í burtu frá einhverjum, eða þá verið með ofskynjanir.“ Að framanverðu virðist þakið vera mjög bratt. Ef einhvern ann- ar hefur komist upp á þakið líka þá er líklegt að sá hinn sami hefði líka fallið. Kannski hefur einhver elt hann á bak við húsið?“ segir Tammy jafnframt. „Við erum viss um að mennirnir tveir sem sjást á myndinni vita eitthvað um mál- ið. Það væri óskandi ef við gætum bara fundið þá.“ Tammy segir að það hafi einnig verið gríðarlega erfitt ferli sem tók við þegar flytja þurfti lík son- ar hennar heim til Bandaríkjanna. „Það tók 15 daga að fá hann hingað út til Bandaríkjanna vegna þess að það þurfti fyrst að fram- kvæma krufningu. Við erum ekki enn búin að sjá skýrsluna. Hann bjó í rúmlega níu klukku- stunda akstursfjarlægð frá okkur og var komin í sitt fyrsta starf eftir útskrift, en hann hafði áður verið í lærlingsstöðu hjá sama fyrirtæki. Samstarfsfélagar hans hafa margir hverjir haft samband við mig og deilt með mér fallegum orðum um Darin. Planið hjá honum var að flytja til New Orleans þegar hann kæmi heim frá Íslandi, en þar beið hans verkefni. Viku áður en hann hélt til Ís- lands var honum úthlutað hættu- legu verkefni í vinnunni þar sem hann þurfti að fara niður í stórt tæki. Hann hringdi bæði í pabba sinn og mig og sagðist elska okkur. Eftir á sendi hann okkur síðan skilaboð til að láta okkur vita að allt hefði gengið vel og að það væri í lagi með hann. Við vorum stöðugt með áhyggjur af Darin á þessum ferða- lögum hans af því að hann óttaðist aldrei neitt. Það er versta martröð allra foreldra að fá símtal í líkingu við það sem við fengum frá sendi- ráðinu. Við sitjum hér eftir með tómarúm í hjartanu og ég efast um að það muni nokkurn tím- ann hverfa. Þetta er það skelfileg- asta sem hægt er að ganga í gegn- um.“ n Auður Ösp Guðmundsdóttir audur@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.