Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2018, Side 16
16 21. sept 2018FRÉTTIR
EIGUM MARGA
LITI Á LAGER
Nánari upplýsingar á
mt.is og í s: 580 4500
HANNAÐ FYRIR
ÍSLENSKT VEÐURFAR
ÁLKLÆÐNINGAR
& UNDIRKERFI
Grunar að Darin hafi verið
byrluð ólyfjan áður en hann lést
E
ina vonin er að einhver gefi
sig fram með upplýsingar,“
segir Tammy Goettemoeller,
móðir Darins Maverick
Goodman, 25 ára pilts sem lét líf-
ið á hroðalegan hátt á Íslandi
í lok júní síðastliðnum. Enn er
ekki vitað hver aðdragandinn var
að þessu hörmulega atviki. Fjöl-
skylda Darins vill ekki útiloka að
dauða hans hafi borið að með sak-
næmum hætti.
Sitja eftir með ótal spurningar
DV greindi upphaflega frá mál-
inu en Darin fannst látinn eftir að
hafa fallið fram af þaki á byggingu í
miðborg Reykjavíkur þann 30. júní
síðastliðinn. Hann var fluttur með
hraði á Landspítalann en úrskurð-
aður látinn skömmu síðar.
Engin vitni voru að atvikinu.
Þann 31. ágúst síðastliðinn birti
lögreglan ljósmyndir af upptök-
um úr öryggismyndavélum í mið-
borginni og óskaði eftir að ná tali
af fólkinu á myndunum í tengsl-
um við rannsókn málsins. Fram
kom að fólkið átti í samskiptum
við Darin fyrr um kvöldið og gæti
mögulega sagt til um um málsat-
vik áður en slysið átti sér stað.
DV ræddi við Tammy síðast-
liðinn föstudag þar sem hún sagði
að aðstandendur Darins ættu enn-
þá eftir að fá svör við ótal spurn-
ingum varðandi atburðarás þessa
kvölds.
Setur spurningarmerki við
áreiðanleika eiturefnarann-
sóknar
Í samtali við DV segir Tammy að
fjölskyldan sé engu nær um at-
burði kvöldsins eða hvað leiddi til
þess að Darin endaði uppi á þaki
American Craft Bar í Lækjargötu
þann 30. júní síðastliðinn.
„Við höfum ekki fengið neinar
nýjar upplýsingar frá rann-
sóknarlögreglunni. Það var reynd-
ar bandaríska sendiráðið sem lét
okkur vita með tölvupóstskeyti að
það væri verið að lýsa eftir þessum
einstaklingum sem sjást á mynd-
unum.
Rannsóknin stöðvaðist þegar
einn af lögreglumönnunum fór í
mánaðarlangt frí. Við höfum mætt
kurteisi og hlýju frá íslensku lög-
reglunni en það hefur ekkert kom-
ið fram sem getur útskýrt hvers
vegna Darin fór þarna upp.
Okkur var sagt að eiturefnar-
annsókn hefði sýnt fram á áfengi í
blóði hans og smávegis koffín, og
að hann hefði látist vegna innvort-
is blæðinga.“
Hafið þið einhverjar hugmynd-
ir um hvað gerðist þetta kvöld?
„Okkur grunar að honum hafi
verið byrluð ólyfjan. Samkvæmt
eiturefnarannsókn þá neytti hann
aðeins áfengis en satt að segja þá
set ég spurningarmerki við það
hversu áreiðanlegar þessar niður-
stöður eru þegar eiturefnarann-
sókn er framkvæmd níu dögum
eftir andlátið.
Við erum hrædd um að ein-
hver hafi verið að elta hann, eða
að hann hafi sjálfur verið að elta
einhvern sem stal frá honum,
eða þá að hann hafi verið með of-
skynjanir eftir að hafa verið byrluð
ólyfjan.“
Segja útilokað að Darin hafi
neytt eiturlyfja
Darin var að sögn Tammy alls ekki
hvatvís.
„Hann var einstaklega
skipulagður. Hann setti allt upp
í Excel-skjal, Íslandsferðina þar
á meðal. Áður en hann fór var
hann búinn að skipuleggja hvern
einasta dag í ferðinni, kortleggja
allan kostnað og lista niður kosti
og galla þess að dvelja á gistiheim-
ili eða í tjaldi. Hann skipti mánað-
arlaununum sínum niður á mis-
munandi reikninga, einn fyrir
ferðalög, einn fyrir skattgreiðslur,
einn fyrir sparnað og svo framveg-
is.
Þar sem þetta var hans
persónuleiki þá vitum við fyrir víst
að hann myndi aldrei fara að ferð-
ast þvert yfir hnöttinn til þess að
neyta eiturlyfja,“
segir Tammy og bætir við að
þau hafi rætt ítarlega við nánustu
vini Darins. Þeir segjast aldrei hafa
séð hann snerta eiturlyf.
„Darin var heldur ekki þung-
lyndur eða neitt slíkt. Það eina
sem komst að hjá honum var hvert
hann ætti að ferðast næst. Ég veit
það fyrir víst að hann var í full-
komnu andlegu jafnvægi og það
sem var efst í huga hans var að
skipuleggja næsta ferðalag. Hann
var hraustur og liðugur og ein-
hverra hluta vegna hefur hann
klifrað upp á þakið á Icelandic
Craft Bar. Eins og ég segi, það er
eins og hann hafi verið að flýja í
burtu frá einhverjum, eða þá verið
með ofskynjanir.“
Að framanverðu virðist þakið
vera mjög bratt. Ef einhvern ann-
ar hefur komist upp á þakið líka
þá er líklegt að sá hinn sami hefði
líka fallið. Kannski hefur einhver
elt hann á bak við húsið?“ segir
Tammy jafnframt. „Við erum viss
um að mennirnir tveir sem sjást
á myndinni vita eitthvað um mál-
ið. Það væri óskandi ef við gætum
bara fundið þá.“
Tammy segir að það hafi einnig
verið gríðarlega erfitt ferli sem
tók við þegar flytja þurfti lík son-
ar hennar heim til Bandaríkjanna.
„Það tók 15 daga að fá hann
hingað út til Bandaríkjanna vegna
þess að það þurfti fyrst að fram-
kvæma krufningu. Við erum ekki
enn búin að sjá skýrsluna.
Hann bjó í rúmlega níu klukku-
stunda akstursfjarlægð frá okkur
og var komin í sitt fyrsta starf eftir
útskrift, en hann hafði áður verið
í lærlingsstöðu hjá sama fyrirtæki.
Samstarfsfélagar hans hafa margir
hverjir haft samband við mig og
deilt með mér fallegum orðum um
Darin. Planið hjá honum var að
flytja til New Orleans þegar hann
kæmi heim frá Íslandi, en þar beið
hans verkefni.
Viku áður en hann hélt til Ís-
lands var honum úthlutað hættu-
legu verkefni í vinnunni þar sem
hann þurfti að fara niður í stórt
tæki. Hann hringdi bæði í pabba
sinn og mig og sagðist elska okkur.
Eftir á sendi hann okkur síðan
skilaboð til að láta okkur vita að
allt hefði gengið vel og að það væri
í lagi með hann.
Við vorum stöðugt með
áhyggjur af Darin á þessum ferða-
lögum hans af því að hann óttaðist
aldrei neitt. Það er versta martröð
allra foreldra að fá símtal í líkingu
við það sem við fengum frá sendi-
ráðinu.
Við sitjum hér eftir með
tómarúm í hjartanu og ég efast
um að það muni nokkurn tím-
ann hverfa. Þetta er það skelfileg-
asta sem hægt er að ganga í gegn-
um.“ n
Auður Ösp Guðmundsdóttir
audur@dv.is