Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2018, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2018, Blaðsíða 9
21. sept 2018 FRÉTTIR 9 af því er til kominn vegna þess að fimm af ellefu ráðherrum eru kon- ur, sem er hlutfallslega hærra hlut- fall en hjá karlpeningnum, og fimm af átta þingflokksformönnum eru konur. Af tuttugu ódýrustu þing- mönnunum eru aðeins þrjár konur. Reglurnar endurspegla ekki raunveruleikann Þingmenn úr landsbyggðar- kjördæmunum þremur fá greiddar fastan húsnæðis- og dvalarkostnað en þingmenn á höfuðborgarsvæðinu fá hann ekki. Helgi Bernódusson, skrif- stofustjóri Alþingis, hefur áður sagt við DV að landsbyggðar- þingmenn geti ekki afþakkað þessar sporslur, þeir yrðu að taka við þeim. Lögheimilið skipti engu máli í því sambandi og hvort þingmennirnir héldu heimili í kjördæminu. Smári McCarthy, þingmaður Pírata, er einn af þeim sem fá slíkar greiðslur en hann er þing- maður Suðurkjördæmis. Smári býr við Hringbrautina í Reykja- vík og heldur ekki annað heim- ili í kjördæmi sínu. Fær hann um 134 þúsund krónur á mánuði vegna þessa. Í samtali við DV segir hann: „Mér hefur fundist þetta frekar asnalegt og í rauninni ósann- gjarnt. Það er ekkert dýrara fyrir mig að búa í bænum heldur en Reykjavíkurþingmenn. Það eru tilfelli þar sem þingmenn halda úti tveimur heimilum og í þeim tilfellum kannski í lagi að styðja þá. Sumir búa fyrir norðan en eru með litla íbúð í Reykjavík á meðan þing- ið stend- ur yfir. En ég bý ekki við slíkar aðstæð- ur og það tekur mig engan tíma að keyra út í kjördæmi.“ Er þetta ekki bruðl með al- mannafé? „Ég veit ekki hvort að bruðl sé rétta orðið. En reglurnar eru aðeins of stífar og settar fram á forsendum sem eiga ekki við. Ég skil að það séu gerðar regl- ur í kringum þetta til að koma til móts við mismunandi þarfir en þær þurfa að endurspegla raun- veruleikann.“ Hefur þú reynt að hafna þess- um greiðslum? „Ég spurði út í þetta á sínum tíma, með það í huga hvort ég gæti hafnað þessu. En ég hef ekki sagt við skrifstofu Alþingis að ég vilji losna við þetta. Aðallega út af svarinu sem ég fékk.“ Frægt er orðið að Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, ákvað að gefa 300 þúsund krónur af sínum launum til góðgerðar- mála frá nóvembermánuði árið 2016 þegar kjararáð tilkynnti um ríflega launahækkun til embætt- ismanna. „Ég bað ekki um þessa launahækkun,“ sagði Guðni í yfir- lýsingu og hlaut mikið lof fyrir. Smári segist gefa til góð- gerðarmála. „Ég hef ekki farið hátt með það. Ég styrki mánaðarlega ákveðið sett af góðgerðarsam- tökum og einnig frjálsa fjöl- miðla, innlenda og erlenda.“ Notar þú allan þennan pening í það? „Nei, það er misjafnt. Sumt er fast en annað endrum og eins.“ Gefur mikið til góðgerðarmála Eitt af því sem hefur verið gagn- rýnt í tengslum við laun þing- manna er sérstakt álag formanna flokka sem ekki sitja í ríkisstjórn. Er það hálft þingfararkaup sem gerir 550 þúsund krónur á mánuði árið 2018. Greiðslurnar hafa hækkað mikið á undan- förnum árum vegna ákvarðana kjararáðs um þingfararkaupið. Reglurnar voru settar í des- ember árið 2003, í ríkisstjórnar- tíð Davíðs Oddssonar og Hall- dórs Ásgrímssonar, og var ætlað að jafna aðstöðumun ráðherra og stjórnarandstöðuformanna. Þetta var harðlega gagnrýnt þegar reglurnar voru settar og er umtalað enn í dag. Sem dæmi má nefna að Katrín Jakobsdóttir hefur fengið 21,6 milljónir, Sig- mundur Davíð Gunnlaugsson 18,6 milljónir og Steingrímur J. Sigfússon tæpar 15 milljónir í slíkum greiðslum. Fjórir formenn hafa fengið þessar greiðslur árið 2018. Þeir eru Logi Einarsson, Þorgerð- ur Katrín Gunnarsdóttir, Inga Sæland og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. Píratar kasta ten- ingi á hverju ári um hver þeirra verður skráður formaður hjá þinginu. Það er gert til að fá að- stoðarmann og ritara fyrir þing- flokkinn en skráður formaður er skilyrði fyrir því. Píratar þiggja hins vegar ekki formannsálag- ið því ólíkt húsnæðisgreiðsl- unum er hægt að afþakka það. Logi Einarsson segir um þessar greiðslur: „Það er vel í lagt og mín vegna mætti breyta þessu. Flokkarn- ir gætu þá komið sér saman um það. Þetta var gert á sínum tíma, löngu áður en ég byrjaði á þingi, til að jafna aðstöðumun en ég myndi ekki gera neinar athugasemdir ef það yrði farið yfir öll launamálin og tel raunar að það sé nauðsynlegt til að ná sáttum í samfélaginu.“ Logi segist ekki hafa mynd- að sér skoðun á því hvort það sé eðlilegt að Alþingi og þá ríkis- sjóður greiði formannslaun stjórnmálaflokka. „Ég gef mikið til góðgerðar- mála eins og ég held að mörg okkar sem eru af- lögufær geri. En ég held þeirri skrá fyr- ir mig. Ég held að það verði að ræða þetta mál í víðu samhengi án þess að hver og einn þingmaður sé að taka ákvörðun um slíkt. Við þurfum að ná saman um hver laun kjör- inna fulltrúa eiga að vera.“ Er þetta ekki farið að valda hita á vinnumarkaði? „Jú, og ég skil það vel. Sam- fylkingin studdi tillögu Pírata í vor um að lækka laun þing- manna. Til þess einmitt að geta brugðist við þeirri óánægju sem eðlilega er uppi í samfélaginu. Við erum tilbúin til að skoða þá hluti sem að okkur snúa.“ n Umboðsaðilar: Húsgagnaval - Höfn / Bara snilld ehf. - Egilsstöðum 1. Steingrímur J. Sigfússon Vinstri græn 15.637.222 2. Logi Einarsson Samfylking 15.179.363 3. Ásmundur Einar Daðason Framsóknarflokkur 14. 459.034 4. Katrín Jakobsdóttir Vinstri græn 14.435.124 5. Kristján Þór Júlíusson Sjálfstæðisflokkur 14.377.510 6. Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir Sjálfstæðisflokkur 14.002.198 7. Sigurður Ingi Jóhannsson Framsóknarflokkur 14.002.198 8. Þórunn Egilsdóttir Framsóknarflokkur 13.972.519 9. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Viðreisn 13.322.034 10. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir Vinstri græn 13.255.838 11. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Miðflokkur 13.249.600 12. Svandís Svavarsdóttir Vinstri græn 13.063.911 13. Sigríður Á. Andersen Sjálfstæðisflokkur 13.063.911 14. Lilja Dögg Alfreðsdóttir Framsóknarflokkur 13.063.911 15. Guðmundur Ingi Guðbrandsson Vinstri græn 13.063.911 16. Guðlaugur Þór Þórðarson Sjálfstæðisflokkur 13.063.911 17. Bjarni Benediktsson Sjálfstæðisflokkur 13.063.911 18. Lilja Rafney Magnúsdóttir Vinstri græn 12.959.963 19. Inga Sæland Flokkur fólksins 12.801.333 20. Líneik Anna Sævarsdóttir Framsóknarflokkur 12.185.494 21. Njáll Trausti Friðbertsson Flokkur fólksins 12.080.111 22. Guðjón S. Brjánsson Samfylking 11.669.770 23. Albertína Friðbjörg Samfylking 11.662.298 24. Páll Magnússon Sjálfstæðisflokkur 11.466.214 25. Halla Signý Kristjánsdóttir Framsóknarflokkur 11.251.296 26. Anna Kolbrún Árnadóttir Miðflokkur 11.225.268 27. Oddný G. Harðardóttir Samfylking 11.149.100 28. Ásmundur Friðriksson Sjálfstæðisflokkur 10.813.324 29. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir Píratar 10.781.323 30. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir Sjálfstæðisflokkur 10.772.125 31. Rósa Björk Brynjólfsdóttir Vinstri græn 10.749.814 32. Bryndís Haraldsdóttir Sjálfstæðisflokkur 10.571.155 33. Sigurður Páll Jónsson Miðflokkur 10.525.785 34. Vilhjálmur Árnason Sjálfstæðisflokkur 10.472.731 35. Birgir Þórarinsson Miðflokkur 10.376.538 36. Silja Dögg Gunnarsdóttir Framsóknarflokkur 10.319.996 37. Gunnar Bragi Sveinsson Miðflokkur 10.315.262 38. Smári McCarthy Píratar 10.182.448 39. Brynjar Níelsson Sjálfstæðisflokkur 10.072.916 40. Ólafur Ísleifsson Flokkur fólksins 10.061.177 41. Haraldur Benediktsson Sjálfstæðisflokkur 10.042.117 42. Ari Trausti Guðmundsson Vinstri græn 10.015.266 43. Þorsteinn Sæmundsson Miðflokkur 9.837.736 44. Hanna Katrín Friðriksson Viðreisn 9.767.694 45. Helga Vala Helgadóttir Samfylking 9.674.657 46. Jón Þór Ólafsson Píratar Píratar 9.610.310 47. Bergþór Ólason Miðflokkur Miðflokkur 9.594.227 48. Karl Gauti Hjaltason Flokkur fólksins 9.553.329 49. Birgir Ármannsson Sjálfstæðisflokkur 9.534.481 50. Ólafur Þór Gunnarsson Vinstri græn 9.497.046 51. Willum Þór Þórsson Framsóknarflokkur 9.435.289 52. Óli Björn Kárason Sjálfstæðisflokkur 9.435.289 53. Halldóra Mogensen Píratar Píratar 9.367.751 54. Guðmundur Andri Thorsson Samfylking 9.364.614 55. Jón Gunnarsson Sjálfstæðisflokkur 9.334.737 56. Ágúst Ólafur Ágústsson Samfylking 9.210.975 57. Steinunn Þóra Árnadóttir Vinstri græn 9.192.554 58. Kolbeinn Óttarsson Proppé Vinstri græn 9.154.278 59. Þorsteinn Víglundsson Viðreisn 9.044.775 60. Andrés Ingi Jónsson Vinstri græn 8.450.557 61. Jón Steindór Valdimarsson Viðreisn 8.428.148 62. Guðmundur Ingi Kristinsson Flokkur fólksins 8.263.863 63. Björn Leví Gunnarsson Píratar 8.261.657 64. Helgi Hrafn Gunnarsson Píratar 7.825.283 Heildarlisti þingmanna og ráðherra Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar Smári McCarthy þingmaður Pírata.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.