Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2018, Blaðsíða 9
21. sept 2018 FRÉTTIR 9
af því er til kominn vegna þess að
fimm af ellefu ráðherrum eru kon-
ur, sem er hlutfallslega hærra hlut-
fall en hjá karlpeningnum, og fimm
af átta þingflokksformönnum eru
konur. Af tuttugu ódýrustu þing-
mönnunum eru aðeins þrjár konur.
Reglurnar endurspegla ekki
raunveruleikann
Þingmenn úr landsbyggðar-
kjördæmunum þremur fá
greiddar fastan húsnæðis- og
dvalarkostnað en þingmenn á
höfuðborgarsvæðinu fá hann
ekki. Helgi Bernódusson, skrif-
stofustjóri Alþingis, hefur áður
sagt við DV að landsbyggðar-
þingmenn geti ekki afþakkað
þessar sporslur, þeir yrðu að
taka við þeim. Lögheimilið
skipti engu máli í því sambandi
og hvort þingmennirnir héldu
heimili í kjördæminu.
Smári McCarthy, þingmaður
Pírata, er einn af þeim sem fá
slíkar greiðslur en hann er þing-
maður Suðurkjördæmis. Smári
býr við Hringbrautina í Reykja-
vík og heldur ekki annað heim-
ili í kjördæmi sínu. Fær hann um
134 þúsund krónur á mánuði
vegna þessa. Í samtali við DV
segir hann:
„Mér hefur fundist þetta frekar
asnalegt og í rauninni ósann-
gjarnt. Það er ekkert dýrara fyrir
mig að búa í bænum heldur en
Reykjavíkurþingmenn. Það eru
tilfelli þar sem þingmenn halda
úti tveimur heimilum og í þeim
tilfellum kannski í lagi að styðja
þá. Sumir búa fyrir norðan en
eru með litla íbúð í Reykjavík á
meðan þing-
ið stend-
ur yfir.
En ég bý
ekki við
slíkar
aðstæð-
ur og það
tekur mig engan tíma að keyra út
í kjördæmi.“
Er þetta ekki bruðl með al-
mannafé?
„Ég veit ekki hvort að bruðl
sé rétta orðið. En reglurnar eru
aðeins of stífar og settar fram á
forsendum sem eiga ekki við.
Ég skil að það séu gerðar regl-
ur í kringum þetta til að koma til
móts við mismunandi þarfir en
þær þurfa að endurspegla raun-
veruleikann.“
Hefur þú reynt að hafna þess-
um greiðslum?
„Ég spurði út í þetta á sínum
tíma, með það í huga hvort ég
gæti hafnað þessu. En ég hef ekki
sagt við skrifstofu Alþingis að ég
vilji losna við þetta. Aðallega út
af svarinu sem ég fékk.“
Frægt er orðið að Guðni Th.
Jóhannesson, forseti Íslands,
ákvað að gefa 300 þúsund krónur
af sínum launum til góðgerðar-
mála frá nóvembermánuði árið
2016 þegar kjararáð tilkynnti um
ríflega launahækkun til embætt-
ismanna. „Ég bað ekki um þessa
launahækkun,“ sagði Guðni í yfir-
lýsingu og hlaut mikið lof fyrir.
Smári segist gefa til góð-
gerðarmála.
„Ég hef ekki farið hátt með
það. Ég styrki mánaðarlega
ákveðið sett af góðgerðarsam-
tökum og einnig frjálsa fjöl-
miðla, innlenda og erlenda.“
Notar þú allan þennan pening
í það?
„Nei, það er misjafnt. Sumt er
fast en annað endrum og eins.“
Gefur mikið til góðgerðarmála
Eitt af því sem hefur verið gagn-
rýnt í tengslum við laun þing-
manna er sérstakt álag formanna
flokka sem ekki sitja í ríkisstjórn.
Er það hálft þingfararkaup
sem gerir 550 þúsund krónur á
mánuði árið 2018. Greiðslurnar
hafa hækkað mikið á undan-
förnum árum vegna ákvarðana
kjararáðs um þingfararkaupið.
Reglurnar voru settar í des-
ember árið 2003, í ríkisstjórnar-
tíð Davíðs Oddssonar og Hall-
dórs Ásgrímssonar, og var ætlað
að jafna aðstöðumun ráðherra
og stjórnarandstöðuformanna.
Þetta var harðlega gagnrýnt
þegar reglurnar voru settar og
er umtalað enn í dag. Sem dæmi
má nefna að Katrín Jakobsdóttir
hefur fengið 21,6 milljónir, Sig-
mundur Davíð Gunnlaugsson
18,6 milljónir og Steingrímur J.
Sigfússon tæpar 15 milljónir í
slíkum greiðslum.
Fjórir formenn hafa fengið
þessar greiðslur árið 2018. Þeir
eru Logi Einarsson, Þorgerð-
ur Katrín Gunnarsdóttir, Inga
Sæland og Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson. Píratar kasta ten-
ingi á hverju ári um hver þeirra
verður skráður formaður hjá
þinginu. Það er gert til að fá að-
stoðarmann og ritara fyrir þing-
flokkinn en skráður formaður er
skilyrði fyrir því. Píratar þiggja
hins vegar ekki formannsálag-
ið því ólíkt húsnæðisgreiðsl-
unum er hægt að afþakka það.
Logi Einarsson segir um þessar
greiðslur:
„Það er vel í lagt og mín vegna
mætti breyta þessu. Flokkarn-
ir gætu þá komið sér saman
um það. Þetta var gert á sínum
tíma, löngu áður en ég byrjaði
á þingi, til að jafna aðstöðumun
en ég myndi ekki gera neinar
athugasemdir ef það yrði farið
yfir öll launamálin og tel raunar
að það sé nauðsynlegt til að ná
sáttum í samfélaginu.“
Logi segist ekki hafa mynd-
að sér skoðun á því hvort það sé
eðlilegt að Alþingi og þá ríkis-
sjóður greiði formannslaun
stjórnmálaflokka.
„Ég gef mikið til góðgerðar-
mála eins og ég held að mörg
okkar sem
eru af-
lögufær
geri. En
ég held
þeirri
skrá fyr-
ir mig. Ég
held að
það verði að ræða þetta mál í
víðu samhengi án þess að hver
og einn þingmaður sé að taka
ákvörðun um slíkt. Við þurfum
að ná saman um hver laun kjör-
inna fulltrúa eiga að vera.“
Er þetta ekki farið að valda
hita á vinnumarkaði?
„Jú, og ég skil það vel. Sam-
fylkingin studdi tillögu Pírata
í vor um að lækka laun þing-
manna. Til þess einmitt að geta
brugðist við þeirri óánægju sem
eðlilega er uppi í samfélaginu.
Við erum tilbúin til að skoða þá
hluti sem að okkur snúa.“ n
Umboðsaðilar: Húsgagnaval - Höfn / Bara snilld ehf. - Egilsstöðum
1. Steingrímur J. Sigfússon Vinstri græn 15.637.222
2. Logi Einarsson Samfylking 15.179.363
3. Ásmundur Einar Daðason Framsóknarflokkur 14. 459.034
4. Katrín Jakobsdóttir Vinstri græn 14.435.124
5. Kristján Þór Júlíusson Sjálfstæðisflokkur 14.377.510
6. Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir Sjálfstæðisflokkur 14.002.198
7. Sigurður Ingi Jóhannsson Framsóknarflokkur 14.002.198
8. Þórunn Egilsdóttir Framsóknarflokkur 13.972.519
9. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Viðreisn 13.322.034
10. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir Vinstri græn 13.255.838
11. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Miðflokkur 13.249.600
12. Svandís Svavarsdóttir Vinstri græn 13.063.911
13. Sigríður Á. Andersen Sjálfstæðisflokkur 13.063.911
14. Lilja Dögg Alfreðsdóttir Framsóknarflokkur 13.063.911
15. Guðmundur Ingi Guðbrandsson Vinstri græn 13.063.911
16. Guðlaugur Þór Þórðarson Sjálfstæðisflokkur 13.063.911
17. Bjarni Benediktsson Sjálfstæðisflokkur 13.063.911
18. Lilja Rafney Magnúsdóttir Vinstri græn 12.959.963
19. Inga Sæland Flokkur fólksins 12.801.333
20. Líneik Anna Sævarsdóttir Framsóknarflokkur 12.185.494
21. Njáll Trausti Friðbertsson Flokkur fólksins 12.080.111
22. Guðjón S. Brjánsson Samfylking 11.669.770
23. Albertína Friðbjörg Samfylking 11.662.298
24. Páll Magnússon Sjálfstæðisflokkur 11.466.214
25. Halla Signý Kristjánsdóttir Framsóknarflokkur 11.251.296
26. Anna Kolbrún Árnadóttir Miðflokkur 11.225.268
27. Oddný G. Harðardóttir Samfylking 11.149.100
28. Ásmundur Friðriksson Sjálfstæðisflokkur 10.813.324
29. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir Píratar 10.781.323
30. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir Sjálfstæðisflokkur 10.772.125
31. Rósa Björk Brynjólfsdóttir Vinstri græn 10.749.814
32. Bryndís Haraldsdóttir Sjálfstæðisflokkur 10.571.155
33. Sigurður Páll Jónsson Miðflokkur 10.525.785
34. Vilhjálmur Árnason Sjálfstæðisflokkur 10.472.731
35. Birgir Þórarinsson Miðflokkur 10.376.538
36. Silja Dögg Gunnarsdóttir Framsóknarflokkur 10.319.996
37. Gunnar Bragi Sveinsson Miðflokkur 10.315.262
38. Smári McCarthy Píratar 10.182.448
39. Brynjar Níelsson Sjálfstæðisflokkur 10.072.916
40. Ólafur Ísleifsson Flokkur fólksins 10.061.177
41. Haraldur Benediktsson Sjálfstæðisflokkur 10.042.117
42. Ari Trausti Guðmundsson Vinstri græn 10.015.266
43. Þorsteinn Sæmundsson Miðflokkur 9.837.736
44. Hanna Katrín Friðriksson Viðreisn 9.767.694
45. Helga Vala Helgadóttir Samfylking 9.674.657
46. Jón Þór Ólafsson Píratar Píratar 9.610.310
47. Bergþór Ólason Miðflokkur Miðflokkur 9.594.227
48. Karl Gauti Hjaltason Flokkur fólksins 9.553.329
49. Birgir Ármannsson Sjálfstæðisflokkur 9.534.481
50. Ólafur Þór Gunnarsson Vinstri græn 9.497.046
51. Willum Þór Þórsson Framsóknarflokkur 9.435.289
52. Óli Björn Kárason Sjálfstæðisflokkur 9.435.289
53. Halldóra Mogensen Píratar Píratar 9.367.751
54. Guðmundur Andri Thorsson Samfylking 9.364.614
55. Jón Gunnarsson Sjálfstæðisflokkur 9.334.737
56. Ágúst Ólafur Ágústsson Samfylking 9.210.975
57. Steinunn Þóra Árnadóttir Vinstri græn 9.192.554
58. Kolbeinn Óttarsson Proppé Vinstri græn 9.154.278
59. Þorsteinn Víglundsson Viðreisn 9.044.775
60. Andrés Ingi Jónsson Vinstri græn 8.450.557
61. Jón Steindór Valdimarsson Viðreisn 8.428.148
62. Guðmundur Ingi Kristinsson Flokkur fólksins 8.263.863
63. Björn Leví Gunnarsson Píratar 8.261.657
64. Helgi Hrafn Gunnarsson Píratar 7.825.283
Heildarlisti þingmanna og ráðherra
Logi Einarsson,
formaður
Samfylkingarinnar
Smári McCarthy
þingmaður
Pírata.