Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2018, Blaðsíða 61
KYNNING
DEKURA:
Einstök þjónusta í umsjón
leiguhúsnæðis
Félagarnir Davíð Karl Wiium og Davíð Vilmundarson eru
brautryðjendur í umsjón
og umsýslu eigna í skamm-
tímaleigu. Árið 2014 stofn-
uðu þeir þjónustufyrirtækið
Dekura sem sérhæfir sig í
umsjón á húsnæði sem leigt
er út í gegnum Airbnb og
aðra sambærilega vefi. Þá
bjóða þeir einnig sérhæfða
umsjón gistiheimila af öllum
stærðum og gerðum.
Þjónustuframboð Dekura
fyrir eigendur húsnæðis í
skammtímaleigu spannar
vítt svið og leggur fyrirtækið
áherslu á að bjóða faglega
og heildræna þjónustu til
viðskiptavina sinna.
Rekstur skammtímaleigu-
húsnæðis getur verið ansi
tímafrekur og krefst tölu-
verðra fórna og umtals-
verðrar skipulagningar af
hálfu leigusala. Það er ótal
margt sem þarf að huga að
þegar kemur að því að gera
leigjanda ánægðan. Fyrir
utan það að hafa íbúðina í
toppstandi, tandurhreina og
allt aðgengi með besta móti
þegar nýr leigjandi bankar
upp á, þá þarf leigusali að
vera til taks til að taka á
móti leigjendum og vera auk
þess reiðubúinn til að leysa
úr hinum ýmsu vandamál-
um sem upp geta komið á
öllum tímum sólarhrings.
Samhliða fullri vinnu og fjöl-
skyldu getur þetta verið ansi
þungur baggi fyrir leigusala
að takast á við. Dekura býður
upp á heildarþjónustu sem
tekur á öllu því sem viðkemur
rekstri á eignum í skamm-
tímaleigu, allt frá þrifum upp
í alhliða umsjón eignanna. Þá
sér Dekura um öll samskipti
við gesti auk þess sem allt
lín, handklæði og annað sem
þarf að vera til staðar fyrir
gesti meðan á dvöl stendur
er innifalið í heildarþjónustu
félagsins.
Með aðstoð Dekura getur
leigusali tekið á móti töluvert
fleiri viðskiptavinum en ella
og fengið betri umsagn-
ir, sem eykur samstundis
verðgildi íbúðarinnar og
leigutekjurnar sem af henni
koma. Hjá fyrirtækinu starfa
í dag 12 manns sem sjá um
hin ýmsu verkefni og státar
Dekura sig af einu færasta
þrifnaðarteymi í bransan-
um. Auk þess starfrækir
Dekura fullbúið þvottahús
í höfuðstöðvum sínum við
Skólavörðustíg. Eftir fjögur ár
í þessum rekstri vita starfs-
menn Dekura hvað til þarf
til að uppfylla gæðakröfur
ferðamanna og hvernig
hámarka má nýtingu leigu-
húsnæðis.
Þar sem nú er orðið heim-
ilt að leigja út eign sína í allt
að 90 daga á ári þá færist
sífellt í aukana að fólk nýti
sér þá heimild til að fjár-
magna að hluta til eða fullu
þegar farið er í frí.
Sífellt eykst straumur
ferðamanna til landsins og
komur þeirra farnar að dreif-
ast jafnar yfir árið og aðal-
ferðatímabil ársins sífellt að
lengjast, því er gott að vera
tímanlega í skipulagningu á
útleigu húsnæðis fyrir þau
sem á það hyggja.
Dekura er í nánu sam-
starfi við teymi sérfræðinga
í leyfismálum og aðstoðar
viðskiptavini sína við að fá
þau leyfi sem þarf, viðskipta-
vininum að kostnaðarlausu,
hvort sem um er að ræða
90 daga leyfi eða fullgilt
gistileyfi.
Til þess að panta þjón-
ustu frá Dekura má hafa
samband í gegnum vefsíðu
fyrirtækisins https://dekura.
is eða senda póst á netfang-
ið dekura@dekura.is.