Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2018, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2018, Blaðsíða 20
20 21. sept 2018 M annkynið hefur alltaf treyst á hafið sem upp- sprettu fæðu en allan þann tíma sem sjómenn hafa róið til fiskjar hafa menn deilt um fiskinn. Það geta verið deilur um veiðisvæði, veiðarfæranotkun eða eitthvað annað tengt veiðun- um. Eftir því sem okkur mönnun- um fjölgar er meiri ásókn í fisk á matarborðið enda er fiskur hollur og góður matur. En samhliða þessari mannfjölgun þá aukast líkurnar á að til stríðsátaka komi vegna yfirráða yfir fiskimiðum. Við Íslendingar könnumst auðvit- að nokkuð vel við slík átök enda eru þorskastríðin varla liðin þjóð- inni úr minni en þar börðumst við gegn Bretum um yfirráð yfir þeirri miklu auðlind sem fiskimiðin okk- ar eru. Í heildina aukast tekjur fólks um allan heim og það dregur úr fátækt, þótt auðvitað sé mikið verk óunnið til að binda enda á fátækt. Samhliða þessu eykst sókn fólks í fisk og þau hollu prótín sem í honum eru. Sameinuðu þjóðirn- ar áætla að að frá miðju síðasta ári þar til 2050 muni mannkyn- inu fjölga úr 7,6 milljörðum í 9,8 milljarða. Það verða því 29 prósent fleiri munnar sem þarf að metta um miðja öldina en í dag. Mesta fjölgunin verður í Asíu, Afríku og Suður-Ameríku en í þessum heimshlutum hafa lífskjör millj- óna manna batnað það mikið á undanförnum árum að þeir til- heyra nú millistéttinni í stað þess að teljast fátækir. Þetta á meðal annars sinn þátt í að þörfin fyrir prótín á heimsvísu eykst mikið á næstu áratugum, um allt að 78 prósent að sumra mati. Þetta þrýstir á stjórnvöld að tryggja að- gang að góðum mat til að milli- stéttin fái það sem hún þarf. Anna ekki eftirspurn Það er ljóst að ekki verður hægt að anna aukinni eftirspurn eftir fiski. Um allan heim er ofveiði stunduð á flökkufiski og má þar nefna túnfisk og flyðru. Skortur á fiski hefur nú þegar þvingað kínverska flotann fjær heimamiðum í leit að fiski og það sama á við um fiskiskipaflota annarra ríkja. Nú er unnið hörð- um höndum að því að ná stjórn á fiskveiðum um allan heim en það dregur úr árangrinum að ólög- legar veiðar eru umfangsmiklar en þær eru taldar nema 20 til 50 prósentum af heildar aflanum ár hvert. Slíkar veiðar ógna efna- hagslífinu, hafa slæm samfélags- leg áhrif og mjög neikvæð um- hverfisáhrif á viðkvæm veiðisvæði og viðkvæma fiskistofna. Ef ekki er hægt að stýra veiðunum er hætt við að fiskistofnar hrynji en það hefur eðlilega slæmar afleiðingar á þau samfélög sem hafa lífsviður- væri sitt af fiskveiðum, bæði efna- hagsleg og samfélags áhrif. Ef fiskistofnar hrynja um miðja öldina eins og ætla má að gerist miðað við núverandi sókn í fisk mun myndast mikill þrýstingur á stjórnvöld víða um heim um að tryggja „sínu fólki“ nægan fisk. Þetta gæti orðið til að öflug ríki muni reyna að hrifsa auðlindirnar frá veikari og minni ríkjum. Átök um hafsvæði Hafréttarsamningur Sameinuðu þjóðanna frá 1982, United Nations Convention on the Law of the Sea, er grunnurinn að öllum kröfum ríkja um yfirráð yfir fiskveiðilög- sögu. Rúmlega 150 ríki hafa stað- fest sáttmálann. En kröfur um slík yfirráð enda oft með deilum á milli ríkja enda ásælast fleiri en eitt ríki stundum sama hafsvæðið. Til dæmis deila Kanada og Banda- ríkin um yfirráð yfir tveimur litl- um eyjum undan strönd New Brunswick í Kanada með tilheyr- andi hafsvæðum. En öllu alvar- legri deilur eiga sér stað á sunnan- og austanverðu Kínahafi þar sem Kínverjar fara mikinn og gera miklar kröfur um yfirráð. Til að styrkja stöðu sína hafa þeir búið til eyjar og halda úti öflugri flota- starfsemi. Kínverjar vonast til að mikil viðvera þeirra og varanlegar tilbúnar eyjar muni styrkja kröf- ur þeirra um yfirráð á svæðinu. Það er einmitt hægt að nota fiski- skip í þessum tilgangi án þess að það ögri öðrum ríkjum hernaðar- lega, auk þess er ódýrara að halda þeim úti en herskipum. En Kín- verjar hafa gengið hart fram gagn- vart sjómönnum frá öðrum ríkj- um sem hafa verið við veiðar á umdeildum svæðum. Þeir hafa meðhöndlað þá samkvæmt kín- verskum lögum og hafa lokað ákveðnum veiðisvæðum í langan tíma og notað strandgæslu sína og her til að framfylgja slíkum bönn- um. Þetta hefur leitt til átaka við erlenda sjómenn. Þetta myndi kannski ekki vekja mikla athygli eða áhyggjur ef þetta væri viður- kennt yfirráðasvæði Kínverja en svo er ekki. Kínverjar fara fram eins og um þeirra eigin efnahags- lögsögu sé að ræða en ekki alþjóð- legt hafsvæði og jafnvel efnahags- lögsögu annarra ríkja. Kínverjar og Japanir deila um yfirráð yfir eyjum í Austur-Kína- hafi sem heita Senkaku á japönsku en Diaoyu á kínversku. Kínverjar hafa eflt flotastarfsemi sína við eyjarnar og því hafa Japanir svarað með því að gera hið sama. Ef svo fer að strandgæsluskip frá öðru ríkjanna skjóti á strandgæsluskip frá hinu ríkinu til varnar fiskiskipi er hætt við að slíkri skothríð verði svarað og þá getur ástandið farið úr böndunum á örskotsstund. Kínverjar neyta um þriðjungs alls sjávarafla heims og þarlendir embættismenn hafa gert það deg- inum ljósara að þeir telji forgangs- atriði að tryggja þjóðinni nægan fisk til að viðhalda pólitísku jafn- vægi. Kínverjar taka þátt í starfi alþjóðlegra stofnana sem vinna að vernd fiskistofna og stjórn á fiskveiðum. Greenpeace áætlar að samt sem áður eigi Kínverjar stærsta úthafsskipaflota heims sem telji rúmlega 2.500 skip. Þessi skip eru sögð stunda stór- felldar iðnaðarveiðar á fjarlægum miðum, til dæmis við Senegal og Argentínu en Kínverjar geta ekki einu sinni borið því við að þeir eigi rétt á yfirráðum yfir hafsvæðum þar. n FRÉTTIR - ERLENT RÁIN Hafnargata 19a Keflavík S. 421 4601 FERSK OG FALLEG ÞJÓNUSTAR ÞIG Í MAT OG DRYKK Baráttan um fiskinn – Átök framtíðarinnar? Kristján Kristjánsson ritstjorn@dv.is Kínverjar láta að sér kveða á úthöfunum Kínverski flotinn stendur vörð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.