Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2018, Blaðsíða 20
20 21. sept 2018
M
annkynið hefur alltaf
treyst á hafið sem upp-
sprettu fæðu en allan
þann tíma sem sjómenn
hafa róið til fiskjar hafa menn deilt
um fiskinn. Það geta verið deilur
um veiðisvæði, veiðarfæranotkun
eða eitthvað annað tengt veiðun-
um. Eftir því sem okkur mönnun-
um fjölgar er meiri ásókn í fisk á
matarborðið enda er fiskur hollur
og góður matur. En samhliða
þessari mannfjölgun þá aukast
líkurnar á að til stríðsátaka komi
vegna yfirráða yfir fiskimiðum.
Við Íslendingar könnumst auðvit-
að nokkuð vel við slík átök enda
eru þorskastríðin varla liðin þjóð-
inni úr minni en þar börðumst við
gegn Bretum um yfirráð yfir þeirri
miklu auðlind sem fiskimiðin okk-
ar eru.
Í heildina aukast tekjur fólks
um allan heim og það dregur úr
fátækt, þótt auðvitað sé mikið verk
óunnið til að binda enda á fátækt.
Samhliða þessu eykst sókn fólks
í fisk og þau hollu prótín sem í
honum eru. Sameinuðu þjóðirn-
ar áætla að að frá miðju síðasta
ári þar til 2050 muni mannkyn-
inu fjölga úr 7,6 milljörðum í 9,8
milljarða. Það verða því 29 prósent
fleiri munnar sem þarf að metta
um miðja öldina en í dag. Mesta
fjölgunin verður í Asíu, Afríku
og Suður-Ameríku en í þessum
heimshlutum hafa lífskjör millj-
óna manna batnað það mikið á
undanförnum árum að þeir til-
heyra nú millistéttinni í stað þess
að teljast fátækir. Þetta á meðal
annars sinn þátt í að þörfin fyrir
prótín á heimsvísu eykst mikið
á næstu áratugum, um allt að
78 prósent að sumra mati. Þetta
þrýstir á stjórnvöld að tryggja að-
gang að góðum mat til að milli-
stéttin fái það sem hún þarf.
Anna ekki eftirspurn
Það er ljóst að ekki verður hægt að
anna aukinni eftirspurn eftir fiski.
Um allan heim er ofveiði stunduð á
flökkufiski og má þar nefna túnfisk
og flyðru. Skortur á fiski hefur nú
þegar þvingað kínverska flotann
fjær heimamiðum í leit að fiski og
það sama á við um fiskiskipaflota
annarra ríkja. Nú er unnið hörð-
um höndum að því að ná stjórn á
fiskveiðum um allan heim en það
dregur úr árangrinum að ólög-
legar veiðar eru umfangsmiklar
en þær eru taldar nema 20 til 50
prósentum af heildar aflanum ár
hvert. Slíkar veiðar ógna efna-
hagslífinu, hafa slæm samfélags-
leg áhrif og mjög neikvæð um-
hverfisáhrif á viðkvæm veiðisvæði
og viðkvæma fiskistofna. Ef ekki er
hægt að stýra veiðunum er hætt
við að fiskistofnar hrynji en það
hefur eðlilega slæmar afleiðingar
á þau samfélög sem hafa lífsviður-
væri sitt af fiskveiðum, bæði efna-
hagsleg og samfélags áhrif.
Ef fiskistofnar hrynja um miðja
öldina eins og ætla má að gerist
miðað við núverandi sókn í fisk
mun myndast mikill þrýstingur á
stjórnvöld víða um heim um að
tryggja „sínu fólki“ nægan fisk.
Þetta gæti orðið til að öflug ríki
muni reyna að hrifsa auðlindirnar
frá veikari og minni ríkjum.
Átök um hafsvæði
Hafréttarsamningur Sameinuðu
þjóðanna frá 1982, United Nations
Convention on the Law of the Sea,
er grunnurinn að öllum kröfum
ríkja um yfirráð yfir fiskveiðilög-
sögu. Rúmlega 150 ríki hafa stað-
fest sáttmálann. En kröfur um
slík yfirráð enda oft með deilum
á milli ríkja enda ásælast fleiri en
eitt ríki stundum sama hafsvæðið.
Til dæmis deila Kanada og Banda-
ríkin um yfirráð yfir tveimur litl-
um eyjum undan strönd New
Brunswick í Kanada með tilheyr-
andi hafsvæðum. En öllu alvar-
legri deilur eiga sér stað á sunnan-
og austanverðu Kínahafi þar sem
Kínverjar fara mikinn og gera
miklar kröfur um yfirráð. Til að
styrkja stöðu sína hafa þeir búið
til eyjar og halda úti öflugri flota-
starfsemi. Kínverjar vonast til að
mikil viðvera þeirra og varanlegar
tilbúnar eyjar muni styrkja kröf-
ur þeirra um yfirráð á svæðinu.
Það er einmitt hægt að nota fiski-
skip í þessum tilgangi án þess að
það ögri öðrum ríkjum hernaðar-
lega, auk þess er ódýrara að halda
þeim úti en herskipum. En Kín-
verjar hafa gengið hart fram gagn-
vart sjómönnum frá öðrum ríkj-
um sem hafa verið við veiðar á
umdeildum svæðum. Þeir hafa
meðhöndlað þá samkvæmt kín-
verskum lögum og hafa lokað
ákveðnum veiðisvæðum í langan
tíma og notað strandgæslu sína og
her til að framfylgja slíkum bönn-
um. Þetta hefur leitt til átaka við
erlenda sjómenn. Þetta myndi
kannski ekki vekja mikla athygli
eða áhyggjur ef þetta væri viður-
kennt yfirráðasvæði Kínverja en
svo er ekki. Kínverjar fara fram
eins og um þeirra eigin efnahags-
lögsögu sé að ræða en ekki alþjóð-
legt hafsvæði og jafnvel efnahags-
lögsögu annarra ríkja.
Kínverjar og Japanir deila um
yfirráð yfir eyjum í Austur-Kína-
hafi sem heita Senkaku á japönsku
en Diaoyu á kínversku. Kínverjar
hafa eflt flotastarfsemi sína við
eyjarnar og því hafa Japanir svarað
með því að gera hið sama. Ef svo
fer að strandgæsluskip frá öðru
ríkjanna skjóti á strandgæsluskip
frá hinu ríkinu til varnar fiskiskipi
er hætt við að slíkri skothríð verði
svarað og þá getur ástandið farið
úr böndunum á örskotsstund.
Kínverjar neyta um þriðjungs
alls sjávarafla heims og þarlendir
embættismenn hafa gert það deg-
inum ljósara að þeir telji forgangs-
atriði að tryggja þjóðinni nægan
fisk til að viðhalda pólitísku jafn-
vægi. Kínverjar taka þátt í starfi
alþjóðlegra stofnana sem vinna
að vernd fiskistofna og stjórn á
fiskveiðum. Greenpeace áætlar
að samt sem áður eigi Kínverjar
stærsta úthafsskipaflota heims
sem telji rúmlega 2.500 skip.
Þessi skip eru sögð stunda stór-
felldar iðnaðarveiðar á fjarlægum
miðum, til dæmis við Senegal og
Argentínu en Kínverjar geta ekki
einu sinni borið því við að þeir eigi
rétt á yfirráðum yfir hafsvæðum
þar. n
FRÉTTIR - ERLENT
RÁIN
Hafnargata 19a
Keflavík
S. 421 4601
FERSK OG FALLEG
ÞJÓNUSTAR
ÞIG Í MAT OG
DRYKK
Baráttan um fiskinn –
Átök framtíðarinnar?
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is
Kínverjar láta að sér kveða á úthöfunum
Kínverski flotinn stendur vörð