Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2018, Side 50
50 21. september 2018
A
ðfaranótt 15. ágúst 1977 var
eins og hver önnur nætur
vakt í Big Ear útvarps
sjónaukanum hjá The Ohio
State University í Bandaríkjunum.
Skyndilega nam tækjabúnaðurinn
öðruvísi merki en venjulega. Það
varði í 72 sekúndur og var „hávært“
og mun sterkara en önnu merki
sem bárust utan úr himingeimn
um þessa nótt. Merkið var einnig á
þröngu tíðnisviði, það náði aðeins
yfir mjög lítið tíðnisvið, svipað og
gervimerki. Merkið var á tíðninni
1,420 megahertz sem er einnig köll
uð 21 sentimetra línan. Það er sama
tíðni og útvarpsbylgjur sem hlut
laus vetnisgös úti í geimnum senda
frá sér. Þessi tíðni er að mestu laus
við hljóðtruflanir frá öðrum hlut
um. Einn þeirra vísindamanna sem
unnu í Big Ear hafði mikinn áhuga
á þessari tíðni í leitinni að merkja
sendingum frá vitsmunaverum
utan jarðarinnar og taldi að tíðnin
gæti verið notuð til að senda skila
boð um óravíddir alheimsins.
Merkið var ekki endurtekið og
síðari tilraunir til að finna það báru
ekki árangur. Á þessum tíma var
Big Ear útvarpssjónaukinn notað
ur til að leita að merkjasendingum
frá vitsmunaverum utan jarðarinn
ar en enginn hafði búist við að sjá
neitt í líkingu við þetta merki og
það heyrðist aldrei aftur í Big Ear.
Þar sem fleiri merki bárust ekki
var ómögulegt að segja mikið um
merkið og það var líka erfitt að rekja
uppruna þess, hvaðan það var sent,
vegna þess hversu skammvinnt það
var. Það virtist koma frá Bogmanns
merkinu en ekki var hægt að segja
til um það með fullri vissu.
Stjörnufræðingurinn Jerry R.
Ehman tók eftir merkinu nokkrum
dögum síðar þegar hann var að fara
yfir gögn sem Big Ear hafði numið.
Hann skrifaði þá WOW! með rauð
um penna á útprentun á merkinu
og gerði hring utan um það. Það
varð síðan þekkt sem WOW! merk
ið.
Ehman og fleiri stjörnu
fræðingar reyndu ítrekað að nema
merkið aftur og bera kennsl á það
og uppruna þess. Reiknað var með
að merkið myndi heyrast með
þriggja mínútna millibili í móttöku
hornum útvarpssjónaukans en það
gerðist ekki. Ehman reyndi í marga
mánuði að finna merkið aftur eftir
að Big Ear nam það fyrst en án ár
angurs.
1987 og 1989 leitaði Robert
H. Gray að merkinu með því að
nota META loftnetssamstæðuna
í Oak Ridge Observatory en hann
fann það ekki. Það sama var uppi
á teningnum 1995 þegar H. Paul
Shuch, forstjóri SETI (sem er verk
efni sem snýst um að leita að vits
munalífi utan jarðarinnar), gerði
nokkrar tilraunir með 12 metra út
varpssjónauka hjá National Radio
Astronomy Observatory í Green
Bank í VesturVirginíu. Hann gerði
aðra tilraun, sem stóð frá 1995 til
1996, og notaði þá Very Large Array,
sem er miklu nákvæmari en Big Ear
en niðurstaðan var sú sama, ekkert
heyrðist.
Árið 2012 voru 35 ár liðin frá
því að WOW! merkið heyrðist. Til
að halda upp á það var straum
ur stafrænna merkja sendur frá
Arecibo stjörnuathugunarstöðinni
í átt að upptakasvæði merkisins.
Sendingin samanstóð af um 10.000
Twitterskilaboðum sem voru sam
in sérstaklega af þessu tilefni af
National Geographic Channel og
var myllumerkið #Chasing UFOs
notað en það var um leið kynning
á samnefndri þáttaröð sjónvarps
stöðvarinnar. Einnig fylgdu með
stutt myndskeið þar sem frægt fólk
flutti stutt skilaboð.
Margar kenningar hafa verið
settar fram í gegnum tíðina um
uppruna merkisins. Því hefur ver
ið varpað fram að það hafi átt nátt
úruleg upptök. Aðrir hafa haldið
því fram að það hafi verið af völd
um vitsmunavera. En þær skýringar
sem voru settar fram skýrðu merk
ið ekki og áratugum saman var það
talið sterkasti möguleikinn á að við
hefðum numið merkjasendingu frá
vitsmunaverum utan jarðarinnar.
40 árum síðar töldu vísindamenn
sig hafa leyst málið
Eins og gefur að skilja höfðu vís
indamenn og áhugamenn um
rannsóknir á himingeimnum velt
þessu máli fyrir sér í gegnum tíð
ina. Það var síðan á síðasta ári
sem vísindamenn töldu sig hafa
fundið skýringuna á uppruna hins
dularfulla WOW! merkis. Þá stigu
vísindamenn við the Centre of
Planetary Science fram og sögðust
hafa skýringu á hugsanlegum upp
runa merkisins. Þeir sögðust telja að
merkið hafi komið frá halastjörnu
sem ekki hafi verið þekkt 1977
þegar merkið barst til Big Ear. Nán
ar tiltekið sögðu þeir að merkið
hafi komið frá vetnisskýi sem fylgdi
halastjörnunni. Þeir sögðu að
hreyfingar halastjörnunnar skýrðu
af hverju merkið hafi aldrei heyrst
aftur. Tvær halastjörnur voru á ferð
um himingeiminn, á því svæði sem
talið er að Big Ear hafi numið merk
ið frá, 1977 en á þeim tíma var ekki
vitað um tilvist þeirra. Þær birtust
aftur á himinhvolfinu frá nóvem
ber 2016 þar til í febrúar 2017 og
þá höfðu vísindamenn tækifæri til
að prófa kenningu sína. Að þeirra
sögn pössuðu merkin sem bárust
frá þeim við WOW! merkið sem
Big Ear útvarpssjónaukinn nam 40
árum áður. Til að staðfesta þetta
enn betur rannsökuðu þeir merki
frá þremur halastjörnum til viðbót
ar og fengu svipaðar niðurstöður.
Vísindamennirnir segja að þeir geti
ekki sagt til um með fullri vissu að
WOW! merkið hafi borist frá þess
um tveimur halastjörnum en geti
með nokkuð mikilli vissu sagt að
það hafi átt uppruna sinn hjá ein
hvers konar halastjörnu. n
TÍMAVÉLIN
LOWE ALPINE BAKPOKI 18L
14.995 kr.
Faxafen 12
108 Reykjavík
Sími 534 2727
alparnir.is
HREYFING • KRAFTUR • ÁNÆGJA
Erum f utt í Faxafen 12
PROVIDUS PRIMUS
4.995 kr.
SALOMON XA ENDURO
HERRA OG DÖMU SKÓR
23.995 kr.
15. ágúst 1977 –
WOW!
Wow! merkið fræga
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is