Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2018, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2018, Page 32
Heilsa 21. september 2018KYNNINGARBLAÐ KOLLAGEN ER EKKERT VENJULEGT PRÓTEIN: Eflir heilsu og varðveitir æskuljóma húðarinnar Kollagen er mikilvægt prótein sem gegnir lykilhlutverki í varðveislu á æskuljóma húðarinnar. Mamma veit best flytur inn NeoCell kollagen í duftformi, en NeoCell er leiðandi í framleiðslu og þróun á kollagenbætiefnum í heiminum. „Kollagen er prótein, en það er ekkert venjulegt prótein. Kollagen er byggingareining líkamans og er sérlega mikilvægt þegar kemur að viðhaldi húðarinnar. Með hækkandi aldri minnka kollagenbirgðir líkam- ans og hann á æ erfiðara með að framleiða það sjálfur. Afleiðingarn- ar eru þær að byggingar- og burðarvefur líkamans lætur á sjá. Eftir því sem kollagenframleiðslan minnkar verða kollagenþræðirnir stökkari og byrja að brotna nið- ur, en það veldur þessum klass- ísku ummerkjum öldrunar eins og hrukkumyndun, meiðslum á sinum og liðverkjum. Þess vegna styður inntaka á kollageni við heilsu og æskuljóma líkamans,“ segir Greta Ósk Óskarsdóttir, bætiefnaráðgjafi hjá Mamma veit best sem flytur inn NeoCell kollagen í duftformi. „Kollagenduftið frá NeoCell hefur verið þróað þannig að það vinnur með hinum náttúrulegu endurnýj- unarferlum í líkamanum. Það er í senn bætiefni og snyrtivara því það hjálpar líkamanum að byggja upp og endurnýja líkamsvefi um leið og það hefur fegrandi áhrif á húðina. Kollagenduftið færir húðinni aukna mýkt og raka og styrkir jafnframt neglur og hár,“ segir Greta. NeoCell býður upp á hæsta ráð- lagða dagskammt á markaðinum til að snúa hratt og örugglega við tapi á kollageni í líkamanum. „Með því að halda uppi heilbrigðu framboði af kollagenpeptíðum í líkamsvessum er líkaminn hvattur til uppbyggingar og nýmyndunar á kollagenvefjum. Venjulega eru kollagensameindir mjög stórar og vega að meðal- tali 400.000 daltón en NeoCell kollagen hefur verið forunnið með ensímum svo það vegur aðeins 3.000 daltón. Upptaka á NeoCell kollageni er um 90% og því vinnst það einstaklega vel í líkamanum,“ segir Greta. NeoCell hefur verið leiðandi fyr- irtæki í framleiðslu á kollageni í tvo áratugi og bættist nýverið við úr- valið hjá Mamma veit best. „NeoCell er söluhæsta kollagen í Bandaríkj- unum. Fyrirtækið setur markið hátt og gerir ýtrustu gæðakröfur til vara sinna og hefur það að markmiði að vörurnar séu með öllu öruggar og algjörlega hreinar. Hver einasta vörulota sem er framleidd er prófuð og vottuð á rannsóknarstofum af þriðja aðila,“ segir Greta. Sjá nánar á mammaveitbest.is Greta Ósk Óskarsdóttirm, Mamma veit best

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.