Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2018, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2018, Síða 6
6 21. sept 2018FRÉTTIR NÆSTI KAFLI HEFST HÉR Bjó ðu m up pá frít t s ölu ve rðm at LAXATUNGA 40, 270 MOSFELLSBÆR 54.900.000 kr. Tegund Stærð Herbergi Raðhús 203 M2 6 Bjó ðu m up pá frít t s ölu ve rðm at BREIÐAVÍK 11, 112 REYKJAVÍK (GRAFARVOGI) 43.500.000 kr. Tegund Stærð Herbergi Fjölbýli 109 M2 3 Bjó ðu m up pá frít t s ölu ve rðm at HRAUNBÆR, 110 REYKJAVÍK 45.000.000 kr. Tegund Stærð Herbergi Fjölbýli 87,5 M2 2 Grensásvegi 13 / 108 Reykjavík / S. 570 4800 Þ etta eru gríðarlegir hags­ munir fyrir íslenska skatt­ borgara og því afar mikil­ vægt að allt sé uppi á borðinu. Að mínu mati er algjör­ lega óásættanlegt að það sé verið að pukrast með hverjir festu kaup á þessum eignum,“ segir Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður Mið­ flokksins, í samtali við DV. Í mars á þessu ári lagði Þor­ steinn fram fyrirspurn til félags­ og jafnréttismálaráðherra þar sem hann óskaði eftir upplýsingum um hversu margar fullnustueignir Íbúðalánasjóður hefði selt árlega 2008–2017, hvar þær voru stað­ settar og hvert heildarsöluverð þeirra var. Þá óskaði hann einnig eftir upplýsingum um hverjir það voru sem keyptu þessar eignir, einstaklinga og fyrirtæki. Eftir drjúgan tíma barst loks svar við fyrri liðnum. Rúmlega 3.500 eignir voru seldar á tímabil­ inu og var söluandvirði þeirra yfir 57 milljarðar króna. Ekkert svar barst um hverjir voru kaup­ endur eignanna og lagði Þor­ steinn því fram sömu fyrirspurn öðru sinni í júní síðastliðinn. „Þá brá svo við að ráðuneytið bar fyr­ ir sig Persónuvernd og taldi að ekki væri heimilt að gefa upp nöfn kaupenda eignanna. Ég óskaði þá eftir áliti frá Persónuvernd og fékk fljótlega svar um að Persónu­ vernd gerði ekki athugasemd við að þær upplýsingar yrðu birtar. Þá bjóst ég við að fá upplýsingarnar í hendur en svar var þá sent á Al­ þingi og þinginu látið eftir hvort það yrði birt eða ekki. Það er að sjálfsögðu ekki hlutverk Alþingis að taka ákvarðanir um hvort svör ráðuneyta séu birt eða ekki. Þegar þarna var komið sögu var nýtt þing tekið við og því þurfti ég að leggja fram sömu fyrirspurn aftur á nýju þingi,“ segir Þorsteinn. Að eigin sögn ætlar hann sér að fá þessar upplýsingar opinber­ ar. „Öll þessi fasteignakaup voru þinglýst og því er hér um opinber­ ar upplýsingar að ræða. Ég tel það afar brýnt að það sé upplýst um hverjir keyptu eignir fyrir 57 millj­ arða króna af ríkinu,“ segir Þor­ steinn. Þetta er ekki eina fyrirspurn varðandi Íbúðalánasjóð sem Þor­ steinn hefur mátt bíða drjúga stund eftir svörum við. Hann lagði einnig fram fyrirspurn um hvaða fjárfestar eða lántakendur leigu­ íbúðalána Íbúðalánasjóðs hefðu gert upp 256 lán vegna fasteigna­ viðskipta á Reykjanesi og hversu háa upphæð hver og einn hefði greitt. „Fjármálaeftirlitið gerði athugasemdir við lánveitingar ÍLS til félaga sem áttu að vera með óhagnaðardrifna leigustarf­ semi en voru það ekki, eins og til að mynda Heimavellir hf. Þegar tekið var harðar á því gerðu fjöl­ margir aðilar upp lán sín við sjóð­ inn. Ég tel mikilvægt að fá fram í dagsljósið hvaða aðilar sóttust eftir þessum lánum og hversu há þau voru,“ segir Þorsteinn. Svar­ ið sem barst frá ráðuneytinu var að mögulegt væri að afhenda Al­ þingi upplýsingarnar en að því til­ skildu að þær berist ekki óviðkom­ andi og þagnarskyldu sé gætt. Enn var Alþingi gert að skera úr um hvort birta bæri svarið eða ekki og nú hefur Þorsteinn þurft að leggja fram fyrirspurnina að nýju. „Ég mun ekki gefast upp í þessari baráttu. Þessar upplýs­ ingar verða að komast upp á yfir­ borðið,“ segir Þorsteinn. n „ Ég mun ekki gefast upp í þessari baráttu. Þessar upplýsingar verða að komast upp á yfirborðið. Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is „ÉG MUN EKKI GEFAST UPP“ n Fær ekki uppgefið hverjir keyptu fullnustueignir Íbúðalánasjóðs n Rúmlega 3.500 eignir seldar fyrir meira en 57 milljarða króna

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.