Ljósmæðrablaðið - 01.12.2014, Blaðsíða 6
6 Ljósmæðrablaðið - desember 2014
Til að búa til sterkt og öflugt félag þarf
öfluga og samstíga heild félagsmanna. Ekkert
félag er sterkara en meðlimir þess. Í litlum
félögum mæðir meira á hverjum og einum og
kröfurnar til hvers einstaklings eru meiri. Ljós-
mæðrafélag Íslands er lítið félag en með mörg
stór verkefni framundan sem ljósmæður þurfa
að leysa sér og faginu til framdráttar. Til að
það takist þarf samstöðu, eitthvert vinnufram-
lag og hugmyndir. Málshátturinn „ber er hver
að baki nema sér bróður eigi“ á vel við í þessu
samhengi. Formaður, stjórn og kjaranefnd
komast ekki nema hálfa leið ef félagsmenn
styðja ekki dyggilega við bakið á þeim.
Kjarasamningar verða lausir 1. mars nk.
Við erum þegar byrjaðar í viðræðum við ríkið
vegna vaktavinnuákvæða kjarasamningsins
og finnum vel að lítill sem enginn vilji er hjá
ríkinu til samninga. Það virðist alveg ljóst að
til þess að fá ríkið að samningaborðinu þarf
aðgerðir, fyrr er ekki hlustað. Við höfum fylgst vel með því hvernig
læknar útfæra sitt verkfall, hvaða „strategíur“ þeir nota og hvort
þær virka og höfum líka verið að hugsa um hvernig við getum sem
best útfært aðgerðir okkar ef það er vilji félagsmanna. En eins og
áður sagði er félagið allir félagsmenn og enginn árangur næst nema
með samstöðu þeirra. Ég vil því biðja alla að skoða sinn hug, hvað
viljið þið ganga langt í samningaviðræðum, eruð þið tilbúnar í
verkfall, eruð þið tilbúnar til að taka virkan þátt í kjarabaráttu? Um
þetta verðum við að taka ákvörðun fljótlega eftir áramót.
Á þessari stundu er ekki ljóst hvort að samstaða náist innan
allra félaga BHM með aðgerðir eða verkföll en miklar þreifingar
eru innan hópsins um það hvaða félög mundu standa saman ef til
kemur. Ein hugmynd hefur verið samstarf félaga sem eiga félags-
menn á LSH/heilbrigðiskerfi. Það eru 11 félög. Ég tek það fram
að ekkert er enn ákveðið. Ennþá er verið að ræða málin og skoða
möguleikana sem við höfum. Ég set þetta aðallega hérna fram til að
minna ykkur á að allir félagsmenn þurfa að fara að hugsa málið og
ákveða hversu langt þeir eru tilbúnir að ganga.
Þau góðu tíðindi hafa orðið í félaginu að búið er að stofna þær
fjórar fagdeildir sem samþykkt var að stofna á síðasta aðalfundi.
Ég held að ef það tekst að blása góðu lífi í deildirnar og ná upp
virkri starfsemi þá verði þetta ómetanlegt fyrir
félagið og fyrir ljósmæðrastéttina í heild sinni.
Við höfum verið að glíma við atvinnuleysi og
við ljósmæður sjálfar sjáum hversu grátlega illa
nýttur auður við erum. Það er ekki nóg ‒ við
þurfum líka að láta ráðamenn átta sig á því.
Eitt af mikilvægustu og brýnustu verkefnum
ljósmæðra er að auka starfssvið sitt. Þar liggja
sóknarfærin. Eitt lítið skref er aðkoma ljós-
mæðra að sýnatökum fyrir Krabbameinsfélag
Íslands. En það er bara fyrsta skrefið, getnað-
arvarnir ættu að vera á okkar snærum, ásamt
ráðgjöf og leiðbeiningum varðandi kven-
heilsu, ráðleggingar til kvenna fyrir getnað (e.
preconceptional care) og svo má lengi telja.
Þess vegna, meðal annars, eru fagdeildirnar svo
mikilvægar. Þar er hægt að vinna ályktanir og
tillögur og þrýsta á um ákveðin verkefni. Fyrir
mig sem formann (og þá sem eftir koma) er
mikill styrkur í því að hafa fagdeild að baki sér
t.d. í viðræðum við opinbera aðila. Ég sé líka fyrir mér að fagdeildir
marki ákveðna stefnu. Hvernig viljum við ljósmæður hafa stefnuna
í barneignarmálum þjóðarinnar? Hvaða opinbera stefnu höfum við í
ýmsum málum sem okkur varða? Hvernig viljum við sjá þjónustuna
og okkar störf árið 2019 eða 2025? Félagið á að hafa ákveðna
og sterka stefnu og hún á að vera opinber og öllum aðgengileg á
heimasíðu félagsins svo enginn þurfi að velkjast í vafa um hvað
ljósmæðrum finnst um málefni er varða stéttina. Þess vegna ítreka
ég það að verkefni fagdeilda eru nær óþrjótandi og af nógu að taka.
Ég bind miklar vonir við fagdeildirnar og þeirra starf. Mikið starf
er óunnið, en ef margir taka sig saman og koma að því verður það
gerlegt. Starf formanns er áttatíu prósent starf og það gefur ekki
mikið svigrúm til að einbeita sér að öðru en hinum daglega rekstri,
sérstaklega þegar kjaraviðræður eru á hverju ári. Ég hvet allar ykkar
sem tækifæri hafa til að koma til starfa í einhverri þeirra fagdeilda
sem höfða til ykkar. Komið hugmyndum ykkar á framfæri, takið
þátt í þeirri hugmyndavinnu og uppbyggingu sem vonandi fer af
stað af fullum krafti nú í vetur.
Síðast en ekki síst óska ég öllum ljósmæðrum og fjölskyldum
þeirra gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári bæði í leik og
starfi.
Áslaug Valsdóttir
formaður Ljósmæðrafélags Íslands
Sterkt félag sem lætur að sér kveða
eða veikt félag sem varla tístir í?
Á VA R P F O R M A N N S L M F Í
Kjörin og fagið