Ljósmæðrablaðið - 01.12.2014, Page 7
7Ljósmæðrablaðið - desember 2014
R I T R Ý N D G R E I N
ÚTDRÁTTUR
Í ýmsum fræðigreinum og bókum er talað um að eitt af því sem ljós-
mæður og læknar sem starfa við fæðingar óttist sé axlarklemma í
fæðingu án þess að þessi fullyrðing sé studd með vísun í rannsóknir.
Tilgangur rannsóknarinnar sem greinin byggist á var að reyna að fá
fram viðhorf íslenskra ljósmæðra til axlarklemmu í fæðingu, byggð á
eigin þekkingu og reynslu.
Þátttakendur í rannsókninni voru 17 ljósmæður og einn ljósmóð-
urnemi. Notuð var eigindleg rannsóknaraðferð, rýnihóparannsókn.
Voru þátttakendur valdir með hentugleikaúrtaki og skiptust þeir í
þrjá hópa. Eitt viðtal var tekið við hvern hóp. Stuðst var við fyrir-
bærafræðilega og menningarbundna nálgun við söfnun og greiningu
gagna.
Greind voru þrjú meginþemu með undirþemum: Öryggi, virðing,
samvinna og traust; Þekking – fagleg reynsla, að þekkja aðferðirnar;
Erfið lífsreynsla – „maður verður heilsulaus á sálinni“. Frásagnir
ljósmæðranna endurspegluðu staðgóða þekkingu á viðbrögðum við
axlarklemmu og mikilvægi tengsla og trausts milli þeirra og konu í
fæðingu, þörfina fyrir þverfaglega samvinnu og að þekking þeirra og
reynsla væri virt. Þær hafa upplifað erfiðleika og áföll í tengslum við
starfið, en leitast við að finna leiðir til að styrkja sig og halda áfram.
Af niðurstöðum rannsóknarinnar má álykta að þörf sé á sálfélags-
legu teymi sem stutt geti við bakið á ljósmæðrum sem lenda í áföllum
sem tengjast starfi þeirra. Tímabært er að huga að því að skrá
axlarklemmur betur, en opinberar tölur hér á landi eru ekki aðgengi-
legar. Þá sýna niðurstöðurnar að vel má flokka axlarklemmur eftir
alvarleika sem getur þá líka stuðlað að markvissari vinnubrögðum
við að losa axlir í fæðingu.
Lykilorð: Axlarklemma, fæðing, ljósmæður, erfið reynsla, þekking.
ABSTRACT
In various scientific articles and books it is stated that one of the
things that midwives and obstetricians fear most during a birth is the
occurrence of a shoulder dystocia. This statement is, however, rarely
supported by research. The purpose of this study was to explore the
attitude of Icelandic midwives towards shoulder dystocia, built on
their own knowledge and experience.
It is a qualitative research based on focus group interviews.
Participants in the study were 17 midwives and one midwifery
student. Participants were chosen with a convenience sampling
and were split into three groups. Each group was interviewed once.
Phenomenological and ethnographical approaches were used when
conducting and analysing the interviews.
Three main themes with subthemes were identified: Safety, cooper-
ation, trust; Knowledge – professional experience, “a step ahead”;
Difficult experience “your soul suffers as a result“. The midwives’
narratives show professional knowledge about interventions needed
in handling shoulder dystocia and the importance of trust and conn-
ection with the woman giving birth. Furthermore, they emphas-
ised the need for interdisciplinary cooperation and that their own
knowledge and work experience would be recognised. They have
experienced difficulty and trauma in their professional practice and
seek to find ways to gain the strength to carry on their work.
Based on the results the conclusion can be drawn that a
psychosocial team is needed to support midwives that have
experienced trauma in their work and help them work through the
experience. Furthermore, the frequency of shoulder dystocia needs
to be better documented as presently the official number in Iceland
is not available. Additionally, the results show that shoulder dystocia
Þekking og reynsla ljósmæðra af
axlarklemmu í fæðingu
„... ef ég hef gert allt sem í mínu valdi stendur ...“
RANNSÓKN Fyrirspurnir
Björg Sigurðardóttir
bjorg@hss.is
Ólöf Ásta Ólafsdóttir 2
ljósmóðir PhD
Björg Sigurðardóttir 1
ljósmóðir M.Sc.
1. Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, 2. Lektor við námsbraut í ljósmóðurfræði Hjúkrunarfræðideild HÍ.